Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 22
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Microsoft hefur tilkynnt útgáfu nýs stýripinna fyrir Xbox leikjatölvuna, sem ber
heitið „Xbox Adaptive Con troller“.
Hann er hannaður til að fleiri ein-
staklingar með fötlun geti spilað
tölvuleiki og gerir notendum kleift
að tengja alls kyns aukahluti sem
bæta aðgengi og setja stýringar leikja
upp eins og þeim hentar.
Milljónir manna um allan heim
kjósa að spila tölvuleiki, sem bjóða
upp á mun meiri gagnvirkni en
önnur vinsæl afþreying eins og kvik-
myndir, sjónvarpsþættir og bækur.
Til að fleiri geti notið listformsins
hefur Microsoft hannað þennan
nýja stýripinna, en hefðbundnir
stýripinnar geta verið óhentugir fyrir
fólk með fötlun og jafnvel hindrað
þau í að spila, því þeir eru hannaðir
þannig að það þarf að halda um þá
með báðum höndum og hreyfa alla
fingurna til að nota takkana.
Stjórnborð með
marga möguleika
Nýi stýripinninn er hannaður til að
tengjast alls kyns aukahlutum sem
eru þegar á markaðnum. Það eru til
Xbox stýripinni fyrir fatlaða
Tölvufyrirtækið Microsoft hefur tilkynnt nýjan stýripinna fyrir Xbox leikjatölvuna sem er hann-
aður sérstaklega fyrir einstaklinga með fötlun. Stýripinninn kemur á markað seinna á þessu ári.
Það er hægt að tengja aukahluti við stýripinnann til að leysa af alla venjulegu
takkana. MYND/XBOX.COM
ýmis fyrirtæki sem selja aukahluti til
að hjálpa einstaklingum með fötlun
að spila tölvuleiki sem margir eiga
nú þegar og tengin á nýja stýripinn-
anum eru hönnuð til að passa fyrir
þann aukabúnað, svo það sé ekki
þörf á að kaupa nýja aukahluti fyrir
þessa græju. Nýi stýripinninn virkar
líka ekki bara fyrir Xbox One leikja-
tölvuna, heldur einnig á PC tölvum
sem nota Windows 10.
Í raun mætti kalla þetta stjórn-
borð frekar en stýripinna. Græjan
er ferhyrningslaga og um 30 cm á
lengd og framan á henni eru tveir
stórir hringlaga takkar sem er hægt
að stilla til að virka sem hvaða takki
sem er á hefðbundnum stýripinna.
Aftan á henni er röð af tengjum og
hvert þeirra samsvarar takka á hefð-
bundnum stýripinna. Í þau er hægt
tengja alls kyns aukahluti sem henta
hverjum og einum og setja þann-
ig stýringarnar upp eins og manni
hentar. Svo eru USB tengi á hliðun-
um þar sem er hægt að tengja stýri-
pinna sem fylla í skarðið fyrir vinstri
og hægri pinnann á hefðbundnum
stýripinna. Það verður svo hægt að
vista nokkrar mismunandi upp-
setningar í minni stýripinnans, ef
þörf er á.
Það er líka hægt að nota nýja
stýripinnann ásamt hefðbundnum
stýripinna með því að hafa hluta af
stýringunum á þeim nýja og hluta
þeirra á hefðbundnum stýripinna,
sem er þægilegt fyrir þá sem geta
ekki notað báðar hendur.
Tölvuleikir eiga
að vera fyrir alla
Tölvuleikjaheimurinn hefur ekki
verið sérlega aðgengilegur fyrir
einstaklinga með fötlun til þessa.
Það hafa verið stigin skref í rétta
átt á síðustu árum, en að mestu
leyti hafa stórfyrirtækin sem mala
gull á leikjavélum og því sem þeim
fylgir látið smærri fyrirtæki sjá um
að hanna og framleiða vörur sem
auka aðgengið. Þessi nýi stýripinni
er skýrasta merkið um að Micro-
soft vilji þjónusta einstaklinga með
fötlun.
Fræinu að nýja stýripinnanum var
sáð árið 2015. Nokkrir starfsmenn
Microsoft ákváðu að reyna að bæta
aðgengi fyrir tölvuleiki og smíðuðu
frumgerð, sem var svo þróuð lengra
árið eftir. Það ár tilkynnti Phil
Spencer, forstjóri tölvuleikjadeildar
Microsoft, að tölvuleikir ættu að vera
fyrir alla og að það yrði lögð aukin
áhersla á að skilja og mæta þörfum
einstaklinga með ólíka líkamlega
getu. Í fyrra var svo ákveðið að gera
frumgerðina að söluvöru í samstarfi
við ýmsa hópa sem þekkja vel þarfir
einstaklinga með fötlun.
Þessari nýju þróun er fagnað. Það
er talið til marks um breytingu á
tölvuleikjaiðnaðinum að stórfyrir-
tæki eins og Microsoft vilji gera sitt
besta til að sinna þörfum einstakl-
inga með fötlun og það má sterklega
gera ráð fyrir að Sony, framleiðandi
PlayStation leikjatölvunnar, reyni að
hanna svipaða lausn fyrir sína vél.
Nýi stýripinninn mun kosta um 10
þúsund krónur í verslun Microsoft
og kemur á markað seinna á árinu.
Nýi stýripinninn er nokkurs konar
stjórnborð sem hægt er að tengja
alls kyns aukabúnað við og þannig
stilla stýringarnar að eigin þörfum.
MYND/XBOX.COM
Hefðbundinn
Xbox One stýri-
pinni hentar
ekki öllum. NOR-
DICPHOTOS/GETTY
Opnunartímar: 1. maí – 30. sept. alla daga kl. 11 - 18 eða eftir samkomulagi
Sími: 483 1504 & 483 1082 | husid@husid.com | www.husid.com
HÚSIÐ Á EYRARBAKKA
Byggðasafn Árnesinga er staðsett í Húsinu,
sögufrægum bústað kaupmanna sem var
byggt 1765. Húsið er eitt elsta hús landsins
og glæsilegur minnisvarði þess tíma er
Eyrarbakki var einn helsti verslunarstaður
landsins.
Þar eru margar og áhugaverðar sýningar
um sögu og menningu Árnessýslu, fornfrægt
píanó, herðasjal úr mannshári og koppur
kóngsins eru meðal sýningargripa. Hlýlegur
og heimilislegur andi er aðalsmerki safnsins.
Húsið á Eyrarbakka
Stendur undir nafni
99x100
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
5
-9
5
B
8
1
F
D
5
-9
4
7
C
1
F
D
5
-9
3
4
0
1
F
D
5
-9
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K