Fréttablaðið - 25.05.2018, Page 10

Fréttablaðið - 25.05.2018, Page 10
UMHVERFISMÁL Ný fullkomin sorp- brennslustöð á Vestfjörðum myndi ekki aðeins draga stórlega úr urðun óflokkaðs sorps heldur líka mæta nánast allri orkuþörf svæðisins að mati Braga Más Valgeirssonar vél- fræðings, sem hefur kynnt slíkar hugmyndir fyrir sveitarfélögum á Vestfjörðum. Hann hefur unnið að þessu verkefni undanfarið eitt og hálft ár ásamt þeim Stefáni Guð- steinssyni skipatæknifræðingi og Júlíusi Sólnes, verkfræðingi og fv. umhverfisráðherra. „Ég fékk hugmyndina þegar ég vann í svona sorpbrennslustöð í Noregi 2013-2016. Síðan þá hef ég viðað að mér gögnum og kynnt mér þetta mjög vel,“ segir Bragi. Hugmyndir Braga og félaga ganga út á stöð sem gæti brennt 80-100 þúsund tonnum af sorpi á ári og framleitt um leið 7,5 MW af raforku og 23 MW af hitaorku. Fullkomnar mengunarvarnir og hreinsibúnaður eiga að tryggja að loft- og lyktarmengun verður nán- ast engin. „Markmiðið er að taka við öllu sorpi af landsbyggðinni sem annars færi í urðun og eitthvað frá Sorpu. Þetta er gríðarlega þarft verkefni og í raun borðleggjandi dæmi,“ segir Bragi. Hann segir ljóst að aðgerða sé þörf til að ná mark- miðum um að minnka hlutfall þess úrgangs sem sé urðaður. „Það er hins vegar ekkert verið að gera í þessum málum. Við erum með allt niðrum okkur.“ Sorpið yrði flutt í gámum sjóleiðina og myndu þær siglingar einnig nýtast til almennra flutninga. Heildarkostnaður við verkefnið er talinn nema um 16 milljörðum króna. Þá er reiknað með að um fimmtán störf skapist með tilkomu stöðvarinnar auk afleiddra starfa. Bragi telur að stöðin geti verið komin í gagnið tveimur og hálfu ári eftir að skrifað væri undir samn- inga. Hann segir það vonbrigði hve lengi stjórnsýslan sé að taka við sér. „Hlutirnir gerast hægt í opinbera kerfinu en menn eru þó að vakna.“ Gísli Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðabæjar, segir að eigi verkefnið að verða að veruleika þurfi fyrst að afla því fylgis meðal íbúa á svæðinu. „Þótt háhitabruni eigi ekki að skila mengun er fólk samt brennt af fyrri reynslu.“ Þar er hann að vísa í málefni sorp- brennslustöðvarinnar Funa í Skutulsfirði en stöðinni var lokað í ársbyrjun 2011 eftir að upp kom díoxínmengun. „Það er engin fram- tíð í því að halda áfram að urða úrgang. Við erum alltaf að bæta flokkun og auka moltugerð en samt er verið að keyra allt sorp héðan suður í Borgarfjörð sem skemmir vegina.“ Málið sé hins vegar skammt á veg komið og huga þurfi að mörg- um þáttum. Hugmyndin sé engu að síður algerlega raunhæf. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar, segist hafa fengið óformlega kynningu á verkefninu en það hafi ekki verið kynnt fyrir kjörnum fulltrúum ennþá. „Þetta er áhugavert verkefni en mörgum spurningum er ósvarað og of snemmt að segja nokkuð um framhaldið,“ segir Jón Páll. sighvatur@frettabladid.is Sorpbrennslustöð gæti farið langt með að anna orkuþörf Verði hugmyndir um sorpbrennslustöð á Vestfjörðum að veruleika gæti það leyst bæði sorpurðunarvanda landsbyggðarinnar og farið langt með að anna orkuþörf svæðisins. Hugmynd um sorpbrennslustöð hefur verið kynnt sveitarfélögum á Vestfjörðum. Heildarkostnaður talinn um 16 milljarðar íslenskra króna. Hugmyndin um sorpbrennslustöðina er sótt til Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/B&W Q7 e-tron Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H EK LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fi nn a á w w w .h ek la .is /a by rg d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is 10.420.000 kr.Verð frá VIÐSKIPTI Greinendur ráðgjafarfyrir- tækisins Capacent hafa hækkað verð- mat sitt á Högum um tólf prósent og telja hlutabréf verslanarisans undir- verðlögð á markaði um 26 prósent. Í nýju verðmati Capacent, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er gengi bréfa Haga metið á 56,2 krónur á hlut en til samanburðar stóð gengi félagsins í 44,6 krónum á hlut við lokun markaða í gær. Bent er á að síðasta rekstrarár, sem lauk í febrúar, hafi aðallega einkennst af endurskipulagningu. Í kjölfar þeirrar vinnu megi búast við samdrætti í kostnaði og að kostnaður endur- spegli meira tekjuþróun. Gera sérfræðingarnir ráð fyrir að rekstrarhagnaður Haga hækki hratt. Hann verði 3,8 milljarðar króna á yfirstandandi rekstrarári samanborið við 3,0 milljarða á síð- asta rekstrarári. Þess má þó geta að rekstrarhagnaðurinn var 5,1 millj- arður á rekstrarárinu 2016 til 2017. Capacent telur óvarlegt á þessari stundu að leggja mat á virði sam- einaðs félags Haga og Olís, enda liggi fyrir að skilyrði samrunans verði íþyngjandi ef af honum verði. Sameiningin gæti þó aukið rekstrar- hagnað og framlegð Haga um 40 til 50 prósent. – kij Hækka verðmat sitt á Högum Finnur Árnason, forstjóri Haga. 2 5 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 5 -2 0 1 8 0 5 :1 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 6 -D 0 2 4 1 F E 6 -C E E 8 1 F E 6 -C D A C 1 F E 6 -C C 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.