Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2018, Qupperneq 11

Ægir - 01.01.2018, Qupperneq 11
11 bera saman við hversu miklum úrgangi er raunverulega skilað í höfn,“ segir Sigríður. Hún segir hafnarstarfsmenn leggja mik- inn metnað í vinnuna og að þeir standi sig upp til hópa mjög vel. Þá sé metnaðurinn ekki bara mikill hjá höfnum heldur hafi útgerðir einnig staðið sig með miklum ágæt- um. Samræmd reglugerð um alla álfu Eftirlit skal fara fram á fimm ára fresti og tekur Sigríður fjögur ár í að fara hringinn í kringum landið og heimsækja hafnir. Fimmta árið fer í úrvinnslu og að heimsækja stakar hafnir ef þörf krefur. „Ég hef ekki enn komið í höfn þar sem ástandið er slæmt. Ég vann í fiski á árum áður og það er ótrúlegt hve mikið hefur breyst.“ Reglugerðin, sem eftirlitið byggir á, á sér stoð í tilskipun frá Evrópusambandinu en allar hafnir Evrópu eiga að fylgja þessu eftir. Lífríki hafsins er enda mikilvæg auðlind sem heldur sig ekki innan tilbúinna landamæra okkar mannfólks- ins. „Við höfum fengið ESA í eft- irlitsheimsókn til okkar sem kom mjög vel út. Það var ekki allt fullkomið en þeir voru samt heilt yfir mjög ánægðir með þessa heimsókn. Í okkar reglu- gerð eru jafnframt atriði sem eru ítarlegri en evrópska tilskip- unin segir til um, en eiga að fara inn í endurskoðaða tilskip- un þeirra sem tekur gildi 2020.“ Móttaka úrgagns frá skipum Íslenskar hafnir standa sig vel „Ég hef ekki enn komið í höfn þar sem ástandið er slæmt. Ég vann í fiski á árum áður og það er ótrúlegt hve mikið hefur breyst,“ segir Sigríður sem hefur í starfi sínu heimsótt stærstan hluta íslenskra hafna og gert úttekt á úrgangsmálum. Vélstjóra vantar á línubátinn Gísla Súrsson Þ arf að vera með 24 m réttindi 750kw. Áhugasamir senda skilaboð á hallibangsa73@gmail.com eða hringja í síma 698 7925.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.