Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2018, Qupperneq 14

Ægir - 01.01.2018, Qupperneq 14
14 undagreindur og stærðarflokk- aður og flokkast í blæðihjólinu eftir fyrirfram skilgreindu ferli. Þegar 300 kílóa skammti er náð í blæðingarhjóli fer fiskurinn í tveggja þrepa ofurkælingu með kældum sjó niður í mínus 0,8 gráður í svokölluðum Rotex- kælikerum en þrjú slík eru sam- hliða eftir endilöngu vinnsluþil- farinu. Í kælikerunum eru stórir sniglar og milli blaða í þeim fer 300 kg skammtur af fiski og færist hægt og bítandi áfram í átt að hleðslustöðvunum og kælist á þessari leið. Við endann á Rotex-búnaðinum færist fisk- urinn síðan upp á færibönd sem flytur hann að hleðslustöð- unum, sem áður voru nefndar, og þaðan síðan niður í lest. Fimm menn verða á vinnsluþil- farinu hverju sinni og geta allir byrjað í blóðgun og slægingu eftir að búið er að hífa trollið en síðan færist einn þeirra fram á hleðslustöðvarnar til að raða fiskinum í kör. Af hesti yfir á bíl! „Byltingin sem við erum ganga í gegnum frá því sem við vorum áður á Sturlaugi H. Böðvarssyni er gríðarleg og í rauninni ólýs- anleg á allan hátt. Bæði hvað varðar skipið sjálft, aðbúnað og svo tæknina í vinnslunni. Hér erum við að hefja störf á skipi sem er eiginlega vinnsluskip í sjálfu sér þó hér sé aflinn ekki frystur eins og á frystitogurun- um,“ segir Eiríkur. „Skrefinu sem er verið að stíga í þessum skipum með t.d. sjálfvirkni í lestinni og þessum búnaði í vinnslunni má alveg líkja við að fara af hesti yfir á bíl. Lestin er orðin einn allsherjar róbót sem þó þarf ekki nema fjóra takka til að stýra! Og þang- að á enginn maður að þurfa fara, hvorki í veiðiferð né þegar landað er úr skipinu nema til eftirlits. Það er mikil breyting.“ Eiríkur er ekki í neinum vafa um að þessir nýju togarar HB Granda, önnur ný skip í fiski- skipaflotanum og nýjar vinnslur eru til vitnis um stórstígar breytingar sem eru að verða á skömmum tíma í íslenskum sjávarútvegi. Breytingar sem í framtíðinni komi til með að verða horft til. Hann segir bæði Akurey AK hefur verið við bryggju á Akranesi frá því í júní í fyrra.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.