Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2018, Síða 28

Ægir - 01.01.2018, Síða 28
28 með þá áhöfn, en þetta voru mikið til Ólafsfirðingar. Allt hörkuduglegir menn og það var mikið lán að fá þá. Það hefur því verið nokkuð góður gangur á okkur allan þennan tíma, en þó lagaðist mikið árið 2009, þegar skipinu var breytt þannig að við fengum meiri orku aftur í skrúfu. Þá fór okkur að ganga betur, en það var Bragi vinur minn Ragnarsson, tæknimaður hjá Brimi, sem lagaði þetta fyrir mig,“ segir Víðir Jónsson. „Brim keypti skipið af Rammanum árið 2007 á 170 milljónir með öllum veiðarfær- um og áhöfn. Svona eftir á finnst manni svolítið skrítið hvers vegna Ramminn seldi þetta skip en ekki eitthvert ann- að þar sem svona lítið fékkst fyrir það. Aflaverðmæti á ári síð- ustu árin hafa verið yfir tveir milljarðar og besta árið hjá okk- ur var 3,7 milljarðar. Þá vorum við að fiska fyrir 10 milljónir á dag og vorum mikið uppi í Bar- entshafi. Það er svo sem margt sem maður getur sagt um þetta allt saman. Við erum á síðustu fimm árum búnir að vera mjög mikið uppi í Barentshafi, nokkra mánuði hvert ár. Engu að síður vorum við á sama tímabili að landa 17.170 tonnum af ufsa af Íslandsmiðum. Það er um 6.000 tonnum meira en næsta skip. Þessi árangur skipsins stenst al- veg fyllilega samanburð við það sem best hefur verið gert áður. Tölurnar segja það ein- faldlega.“ Margþættar ástæður En hverjar eru skýringarnar á þessum miklu afköstum? „Það eru svo sem margþættar ástæður fyrir þessum góða ár- angri, en umræðan er svolítið skrítin því menn segja oft að það séu allir hættir að fiska síð- an kvótakerfið kom. Það sé kvótinn sem ráði því hvernig skipunum gengur. Ég er ekki þeirrar skoðunar og það hefur ekkert breyst að mönnum gengur misvel að fiska. Ég er svo lánsamur að búa að mjög góðu fólki, góðu millidekki, góðri útgerð og frábærum vél- stjórum sem þurfa að sinna öll- um græjum á millidekki og allt þetta hjálpast að. Svo er mikill áhugi á því að spá í það hvernig við stundum veiðarnar og hvernig við gerum þetta allt. Ég hef haft mikil áhrif á það sem skipstjóri, hvenær er farið á ákveðin veiðisvæði og hvernig veiðiferðum er háttað. Ég held að það myndi verða verra fyrir útgerðina ef skrifstofan færi að stjórna veiðunum, hvert farið er, klukkan hvað og hvenær. Ég held að það sé betra að við skipstjórarnir höfum aðeins hönd í bagga með þetta. Það eru því margir þættir sem hafa áhrif á árangurinn. Ég bendi til dæmis á þá staðreynd að Kleifabergið er eina skipið núna sem er með frystilest undir millidekkinu. Fyrir vikið er meiri kuldi á milli- dekkinu hjá okkur en á skipum þar sem vélarrúmið er undir því. Þess vegna helst fiskurinn hjá okkur lengur kaldur og er þannig betra hráefni fyrir vinnsluna og skilar betri afurð- um. Þá eru afköstin meiri þegar fiskurinn er ekki farinn að slapp- ast. Þetta er margþætt og allt hefur lagst á eitt. Svo reynum við bara að vera þar sem fiskur- inn er. Við höfum mikið verið að glíma við ufsa undanfarin ár. Hann getur verið kraftmikill þegar við hittum á hann en er líka stundum erfiður,“ segir Víð- ir. Sakaðir um að stunda brottkast Víðir og hans menn á Kleifa- berginu voru fyrr í vetur sakaðir um að stunda brottkast í frétta- skýringaþættinum Kveik. „Ég get hins vegar alveg tek- ið undir það sem kom í þættin- um Kveik um makrílinn sem þar var sýndur. Ég var reyndar ekki um borð þá en það skemmdist hjá þeim makríll og hann fór í sjóinn. Á þessum tíu árum hafa líklega 10.000 tog verið tekin og við það kemur ýmislegt upp á, en heilt yfir reynum við að vanda okkur. Ég myndi vera síð- asti maður til að taka undir það að aldrei færi neitt kvikindi í sjó- inn þar sem ég hef verið við stjórnvölinn. En að það sé gert með einhverjum skipulögðum hætti er hreinlega rangt. Við er- um að reyna að vanda okkur. Það fer alltaf einn og einn fiskur í sjóinn og það mun ekki hætta að gerast þó ég fari í land. Brottkast getur aldrei verið núll. Það er hægur vandi að láta hlutina líta illa út með mynd- broti sem tekið er í fimmtán sekúndur.“ Þetta kannast enginn við Fyrsta frétt í ríkissjónvarpinu 22. nóvember fjallaði um brottkast á fiski, sem búið var að hausa. Þar átti að hafa verið hent um þremur tonnum að beiðni skip- stjóra og að áhöfninni ofbjóði. „Þetta kannast ég ekki við og þetta kannast hinn skipstjór- inn heldur ekki við að hafi gerst árið 2016 eins og sagt var. Þetta kannast enginn við af þeim 40 mönnum sem eru um borð. Það eru tíu menn á vakt á millidekk- inu á tveimur gengjum. Ég er búinn að hringja þrisvar í Sjón- varpið og spyrja að því hvort þeir telji sig vera með rétta frétt og hvort ég geti þá fengið að vita hvenær þessi myndbrot voru tekin, hvaða dag og klukk- an hvað. Ég fær bara þvert nei og er því í erfiðri stöðu til að verja mig. En ég verð að bera virðingu fyrir því að fréttamenn þurfa ekki að gefa upp heimild- armenn þó að mér finnist það hart þar sem ég veit að fréttin er röng. Sú umræða sem varð eftir þetta særði mann svolítið mik- ið, því maður getur hvergi borið hönd fyrir höfuð sér. Meira að segja fullyrti einhver á fundi á Akureyri á milli jóla og nýárs hjá skipstjórafélaginu að við hent- um öllum fiski nema þeim stóra. Það er skelfilegt að sitja undir þessu og sá stimpill sem er kominn á mig og skipið er ekki góður og ég næ honum aldrei af.“ Eftirlitsmenn reglulega um borð Víðir segir að í þessu tilfelli sé hægt að benda á að það komi Gott karfahol komið inn á dekk.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.