Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 ✝ HalldóraHjaltadóttir fæddist í Hólum í Nesjum 3.1. 1929. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- austurlands 27. nóvember 2017. Hún var dóttir Önnu Þórunnar Vilborgar Þorleifs- dóttur húsfreyju, f. 13.11. 1893, d. 7.6. 1971, og Hjalta Jónssonar, bónda og hreppstjóra í Hólum, f. 6.8. 1884, d. 21.7. 1971. Anna og Hjalti eignuðust átta börn, þau misstu nýfædda stúlku og fárra mánaða dreng er hét Þor- leifur. Systkini Halldóru eru: Sigurður, f. 1923, d. 2008, Jón, f. 1924, Sigurborg, f. 1926, d. 2011, Þorleifur, f. 1930, og Ei- ríkur, f. 1935, d. 1943. Uppeld- isbróðir Halldóru var Hjálmar Kristinsson, f. 1945, d. 2013. Halldóra ólst upp í Hólum með fjölskyldu sinni. Halldóra kvæntist 25.12. 1955 Agli Jóns- syni, f. í Hoffelli 14.12. 1930, d. 12.7. 2008. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Guðmunds- dóttir húsmóðir, f. 1.6. 1901, d. 4.8. 1985, og Jón Jónsson Malm- quist bóndi, síðast í Akurnesi, f. 12.10. 1888, d. 26.3. 1956. Börn Halldóru og Egils eru: 1)Anna, f. 28.3. 1955. Maki 1)Vignir Hjaltason, f. 1.1. 1951, þau gerður, f. 13.11. 1956, maki Ásgeir Núpan Ágústsson, f. 1.1. 1959. Börn þeirra eru Val- gerður, f. 10.7. 1992 andvana, Reynir, f. 12.9. 1993, sambýlis- kona Jóna Sigríður Ólafsdóttir, f. 20.1. 1997, og Þórður, f. 12.9. 1993, sambýliskona Snædís Erla Leósdóttir, f. 30.10. 1994. 3) Hjalti, f. 11.4. 1960, maki Birna Jensdóttir, f. 6.3. 1953. Börn þeirra eru Halldóra, f. 13.7. 1985, Óskar Smári, f. 22.12. 1987, d. 28.12. 1987, og Fjóla Dögg, f. 23.3. 1990, maki Juan Manuel Aguirre de los Santos, f. 22.5. 1990. Sonur Birnu er Þor- björn Gíslason, f. 7.4. 1971. Maki Olga Gíslason, f. 23.6. 1973. Þau skildu. Dóttir þeirra er María Gíslason, f. 11.10. 2008. 4) Eiríkur, f. 13.7. 1962, maki Elín Oddleifsdóttir, f. 22.5. 1965. Börn þeirra eru Ásta Steinunn, f. 5.4. 1991, sambýlis- maður Sigfinnur Mar Þrúð- marsson, f. 24.12. 1988, Egill, f. 1.9. 1993, sambýliskona Astrid Guldbæk Koefoed, f. 3.5. 1993, Sigurborg, f. 21.1. 2000, og Oddleifur, f. 14.8. 2001. Einnig ólst upp hjá þeim Halldóru og Agli, Orri Brands- son, f. 16.12. 1948, maki S. Harpa Guttormsdóttir, f. 16.4. 1958. Sonur þeirra er Gutt- ormur Jökull, f. 25.2. 1985. Halldóra stundaði nám við Kvennaskólann á Hverabökkum og Húsmæðraskólann á Hall- ormsstað. Halldóra og Egill stofnuðu nýbýlið Seljavelli 1.9. 1955. Útför Halldóru fer fram frá Bjarnaneskirkju í dag, 6. des- ember 2017, klukkan 14. skildu. Synir þeirra eru: a) Egill, f. 5.2. 1977, maki a1) Klara Ísfeld Árna- dóttir, f. 20.6. 1977, þau skildu. Dætur þeirra eru Stein- unn Anna, f. 25.11. 1998, og Saga, f. 21.9. 2003. Maki a2) Bryndís Ósk Bragadóttir, f. 6.4. 1987. Barn þeirra Bragi Egilsson, f. 29.7. 2014. Barn Bryndísar er Júlía Sól Héðinsdóttir, f. 1.10. 2009. b) Hjalti Þór, f. 24.1. 1978, maki Guðrún Ingólfsdóttir, f. 10.3. 1979. Börn þeirra eru Salvör Dalla, f. 9.5. 2003, Siggerður Egla, f. 29.3. 2005, Kári, f. 25.5. 2007, og Katla, f. 18.2. 2014. c) Ólafur Páll, f. 3.10. 1984, maki c1) Unnur Eva Arnarsdóttir, f. 23.6. 1982, þau skildu. Synir þeirra eru Arnar Hrafn, f. 6.7. 2005, og Vignir Valur, f. 17.11. 2006. Maki c2) Þorbjörg Þor- steinsdóttir, f. 20.7. 1982. Dætur þeirra eru Ragna Maren, f. 24.4. 2013, og Aldís Anna, f. 5.5. 2015. Maki 2)Ari Guðni Hann- esson, f. 16.2. 1960. Fóstursonur Önnu og Ara er Guðjón Bjarni Óskarsson, f. 12.7. 1986. Sam- býliskona hans er Íris Björk Óttarsdóttir, f. 15.4. 1993. Dótt- ir hennar er Máney Erna Gunn- arsdóttir, f. 24.11. 2014. 2) Val- Á úthallandi vetri 1955 fæddist ég í Hólum í Hornafirði. Ég var frumburður foreldra minna þeirra Dóru og Egils sem síðar kenndu sig við Seljavelli. Á næstu sjö árum fæddust hin systkinin mín þrjú. Nóg var að gera hjá móður minni á þessum árum; auk þess að standa í barneignum voru foreldrar mínir að reisa nýbýlið sitt Seljavelli, þar sem þau bjuggu sín búskaparár. Einnig starfaði pabbi sem búnað- arráðunautur, sem þýddi fjarverur utan heimilis og þá hvíldu bústörfin á mömmu. Mamma var afar dugleg kona og vílaði ekki fyrir sér að ganga í þau verkefni sem til féllu, hvort sem voru úti eða inni. Hún var mjög myndarleg við allt sem hún tók sér fyrir hendur og gerði allt vel. En hún bjó yfir fleiri hæfi- leikum. Hún var góð kona, raunsæ og réttlát og heiðarleg fram í fing- urgóma. Hún var traust í því sem henni var trúað fyrir, bar tak- markalausa virðingu fyrir eigum annarra, og það sem henni var sagt í trúnaði fór aldrei lengra. Mamma var trúuð kona og því miðlaði hún til okkar krakkanna, hún kenndi okkur bænir og með þær áttum við alltaf að fara. Á kveðjustund er ég svo innilega þakklát fyrir þessi 62 ár sem ég átti með henni, að vera mér góð fyrirmynd með sínum góðu eiginleikum sem hafa gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og fyrir að hafa innrætt mér trú sem sannarlega hefur komið sér vel á lífsins leið. Ég get sann- arlega tekið undir með stórskáld- inu okkar Matthíasi Jochumssyni þar sem hann segir í ljóði til móður sinnar: en enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir. Anna Egilsdóttir. Í dag fylgjum við tengdamóður minni til sinnar hinstu hvílu. Hall- dóra var dóttir hjónanna í Hólum, Hjalta Jónssonar og Önnu Þor- leifsdóttur. Anna var glaðsinna kona, afar vinnusöm og söng gjarn- an við vinnuna. Hjalti var hagleiks- maður á tré og járn en líka mikill ís- lenskumaður. Hann samdi einnig nokkuð af ljóðum. Þetta var vega- nestið sem Dóra fékk að heiman, og víst er að hún var þakklát fyrir það, hún talaði oft um foreldra sína og af mikilli virðingu. Hún fór snemma að vinna eins og börn gerðu á hennar tíð, auk almennra sveitastarfa var í Hólum símstöð, póstafgreiðsla og veðurathugunar- stöð. Að lokinni barnaskólagöngu fór Dóra í kvennaskóla á Hvera- bökkum. Þar var mest áhersla lögð á handavinnu en einnig kenndi Jó- hannes úr Kötlum þar íslensku. Hún sagði mér frá því hvernig hann kenndi þeim að meta ljóð- listina og bókmenntir almennt. Það er öruggt að Dóra tók vel eftir í þeim tímum því hún var alla tíð ljóðelsk og kunni vel að meta góðar bókmenntir. Dóra fór einnig í Hús- mæðraskólann á Hallormsstað og naut sín vel. Ég heyrði það aldrei frá henni en hef það engu að síður fyrir víst að þar hlaut hún hæstu einkunn. Hún hefði gjarnan kosið meiri menntun en það tíðkaðist ekki á þeim tíma. Hún dásamaði það oft hve fjölbreytt og mikil menntun er í boði fyrir ungt fólk í dag og hvatti barnabörnin til náms. Þau Egill reistu sér nýbýlið Seljavelli árið 1955. Það var mikið átak fyrir þessi ungu hjón. Vatnið af skornum skammti fyrstu árin og einnig rafmagnið. Þvottinn fór hún með til mömmu sinnar í Hólum til að byrja með. Ekki var það til að gera vinnuna léttari að Egill sinnti margvíslegum störfum utan bús- ins, bæði sem ráðunautur og þing- maður, og var vinnu sinnar vegna oft fjarverandi. Bústörfin og barna- uppeldið hvíldu því mikið á hennar herðum. Eftir að synir þeirra tóku meira yfir bústörfin losnaði á ákveðinn hátt um Dóru og hún fór suður með Agli yfir vetrartímann. Ekki var þó hægt að fara fyrr en allir garðávextir voru komnir í hús og slátrun og sláturgerð lokið. Einnig passaði hún svo upp á að koma tímanlega heim fyrir jólin til að undirbúa komu þeirra og aftur að vori var hún mætt í upphafi vor- verka. Leiðir mínar lágu á Seljavelli fyrir 28 árum. Hún hafði stungið upp á við Eirík að bjóða mér í kaffi vegna tengsla minna við vinkonu sína frá Hverabökkum, Kristrúnu frá Skipholti, en Eiríkur tók illa í þá hugmynd. Talaði hún oft um það í seinni tíð að það hefði nú verið lán að hún gerði það ekki, „þá hefði ég virkað eins og einhver hjónabands- miðlari,“ sagði hún og hló við, „þið þurftuð ekki á því að halda“. Að búa undir sama þaki og tengdamóðir sín er ekki endilega víst að sé fyrsti kostur í hugum allra tengdadætra. En það var vandalaust í okkar tilfelli. Þrátt fyr- ir að Dóra hefði sterkar og ákveðnar skoðanir á flest öllu og vildi hafa stjórnina vissi hún alveg hvar á að draga mörkin. Hún bar virðingu fyrir okkar þörfum og skoðunum. Nábýlið við hana í öll þessi ár var einstakt, hlýja og væntum- þykja í orðum og gjörðum. Þar bar aldrei skugga á. Blessuð sé minn- ing Halldóru Hjaltadóttur. Elín Oddleifsdóttir Amma á Seljó féll frá frekar óvænt ef svo að orði mætti komast. Þegar ég hugsa til baka um okk- ar tíma hefði ég ekki getað eignast betri ömmu. Amma átti heima á Seljavöllum mestalla sína ævi þó að hún hafi bú- ið af og til í Reykjavík. Það var aldrei meiri til hlökkun hjá okkur bræðrum en þegar við lögðum leið okkar til Reykjavíkur til hennar. Hún átti íbúð í Reykja- vík með afa og voru mikil veislu- höld þegar við mættum. Amma var mjög dugleg og ákveðin manneskja, hlýleg, blíð og alltaf til staðar fyrir okkur öll. Amma hafði svo sannarlega miklar skoðanir á hlutunum. Hún var dugleg að segja sínar skoðanir við mig í seinni tíð. Þá aðallega hvað varðaði vinnu mína, vildi hún þá helst tryggja að peningamálin hjá mér væru örugglega í lagi. Þegar ég byrjaði uppbyggingu á Seljavöllum II kom ekkert annað til greina en að amma tæki fyrstu skóflustunguna að gistihúsinu. Hún leysti það verkefni að sjálf- sögðu með mikilli prýði og var hún vel undirbúin fyrir það verkefni. Hún mætti með skrifaða punkta og hélt smá ræðu fyrir viðstadda. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en nú hvað þessi litla athöfn fyrir um fjór- um árum gæti skipt mig miklu máli. Fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Amma var mikil jólamanneskja. Við fjölskyldan komum alltaf sam- an á jólunum með ömmu og afa. Alla tíð hef ég borðað jólamatinn með ömmu og haldið jólin með henni. Fyrir það er ég endalaust þakklátur. Guð geymi þig, elsku amma mín, minning þín mun ávallt eiga stóran sess í hjarta mér. Reynir Ásgeirsson. Amma á Seljó var allt það sem einkenndi frábæra ömmu. Vænt- umþykjan og hugulsemin gerði það að verkum að öllum þótti gott að vera í kringum hana. Heimilið hjá ömmu og afa ein- kenndist af hlýleika, enda var það opið öllum. Það var alltaf gott að koma í eldhúsið til ömmu og man ég til dæmis vel eftir þeyttu súr- mjólkinni sem hún bjó stundum til handa mér og Reyni. Algjör herra- mannsmatur. Ég reyndi stundum að kveðast á við ömmu, þótt ég hafi verið alveg skelfilega lélegur í því. Þrátt fyrir það fannst mér gaman að hlusta á allar vísurnar sem hún kunni, enda gat hún setið í marga klukkutíma og aldrei farið með sömu vísuna tvisvar. Ég er mjög þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og mun ég halda fast í þær minningar. Guð geymi þig, elsku amma. Þinn Þórður. Nú kveðjum við ömmu okkar með miklum söknuði. En minning- in lifir og höfum við systur verið heppnar að hafa fengið með ömmu ómetanlegar stundir. Amma var okkar helsta fyrir- mynd. Hún var lífsglöð, bjartsýn, ákveðin og dugleg. Alltaf glæsileg, tignarleg og vel til fara. Hún hafði mikla útgeislun og gaf mikið af sér. Heilsaði með virktum og kvaddi með guðsblessun. Allir fengu að finna hversu innilega þeir voru vel- komnir. Alltaf reiddi hún fram veit- ingar sem myndu sóma sér í kon- unglegum veislum. Við vorum alltaf velkomnar til ömmu og afa. Áttum dásamlega tíma saman. Við fórum í berjamó, veislur, heimsóknir og sunnudags- bíltúra með Álftagerðisbræður í kassettutækinu. Amma bauð okkur í leikhús, út að borða og oft í mat. Við fórum oft með henni til „stráksins“, sem var verslunarmaður í Hlíðunum. Þar þótti henni svo ljómandi upplagt að versla í matinn og þá sérstaklega ef vantaði eitthvert smáræði. Á haustin var amma mætt í kartöflugarðinn. Stóð þar fremst á vélinni, þar sem mest var að gera, allt þar til vertíðin var búin. Hún tók til nesti í garðinn og heitt kakó til þess að ylja mannskapnum. Ef hún sá að einhver var illa klæddur var sá hinn sami beðinn um að fara heim í hlý föt. Menn ættu auðvitað að klæða sig eftir veðri. Á sumrin fórum við í kirkjugarð- inn. Amma klippti öll leiðin og setti blóm á hvert leiði sem tilheyrði fjöl- skyldunni. Ekki mátti gleyma aumingja Lárusi, sem var vinnu- maður í Hólum þegar hún var að alast upp. Fjölskyldan kom saman á að- fangadagskvöld. Amma las hús- lestur þann sem langafi hafði áður lesið. Við nutum lestursins og þökkuðum ömmu fyrir með kossi á kinn. Því næst opnuðum við pakk- ana og mest var gaman að sjá ömmu opna pakkann frá okkur. Það var alltaf gaman að færa henni glaðning, því að gleðin yfir gjöfinni var svo einlæg. Amma kenndi okkur svo margt sem við búum að í dag. Hún var mikill ljóðaunnandi og fór oft með kvæði og kenndi okkur að kveðast á. Ein er sú minning sem við systur deilum og mun ávallt ylja okkar hjartarætur. Þegar slest hafði upp á vinskapinn meðal barnabarnanna átti maður það til að fara rakleiðis heim til ömmu og segja henni frá öllu saman með tárin í augunum eða hágrátandi. Þá tók hún okkur upp, setti okkur í kjöltu sína og hossaði okkur líkt og við værum á hestbaki á meðan hún fór með þessa vísu: Gott er að ríða sandana mjúka það gerir ekki hestana sjúka; þegar við sjáum á bæjunum rjúka, þá skal yfir steinana strjúka. Konur bera mat á borð, og breiða niður dúka. Við skulum ekki skyrinu öllu frá Skagafirði ljúka. Þegar amma hafði lokið við að fara með vísuna var maður búinn að gleyma öllum erfiðleikum. Amma var trúuð og eitt var það sem aldrei mátti gleymast þegar gist var í ömmu húsi, að biðja kvöldbænirnar. Hún var mjög þol- inmóð við okkur og svaraði öllum þeim spurningum um guð sem okk- ur datt í hug að spyrja. Hún trúði á líf eftir dauðann og erum við vissar um að nú sé hún í góðum fé- lagsskap á friðsælum stað. Fjóla Dögg Hjaltadóttir og Halldóra Hjaltadóttir. Það voru ákveðin forréttindi að búa í sama húsi og amma og afi. Þau voru aldrei langt undan. Ég gerði mér oft ferð á neðri hæðina til að heimsækja þau og kom maður sjaldnast að tómum kofanum. Ég held að það finnist ekki sá einstak- lingur sem hafi farið út úr eldhús- inu hjá ömmu svangur. Oft þáðum við systkinin mat niðri hjá ömmu, af ýmsum toga. Hún gaf okkur gjarnan að borða þegar mamma og pabbi voru ekki heima. Í þau skipti sem amma hafði fisk eða einhvers konar óvinsælli mat hafði hún ósjaldan ávaxtasúr- mjólk eða skyr tilbúið sem svona auka aðalrétt, því að þrátt fyrir að fá bæði fisk og ávaxtasúrmjólk eða skyr í matinn mátti ekki sleppa eft- irréttinum. Amma fékk heilablóðfall vorið 2014 og var í kjölfarið lögð inn á Landspítalann í Reykjavík. Vildi svo til að skólinn hjá mér hafði dregist á langinn vegna kennara- verkfalls fyrr um veturinn og var ég því í bænum þennan maí mánuð. Ég gaf mér tíma til að heimsækja ömmu og áttum við góðar stundir saman. Ömmu vafðist sjaldan tunga um tönn. Eitt kvöldið þegar ég hafði heimsótt ömmu upp á Landspítala gaf einn hjúkrunarfræðingurinn á vaktinni sig á tal við mig og spurði mig hvort amma væri vön að tala svona mikið. Ég sagði það vera, þær þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur, þetta væri 100% eðlilegt. Þegar leið á vikuna og ömmu tók að batna fóru læknarnir að hafa orð á því að flytja ömmu á fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaupstað vegna plássleysis á Landspítalanum. Það tók amma vitaskuld ekki í mál og fannst sem að læknarnir mættu nú gjarnan vera betur að sér í landa- fræði. Amma var síðan flutt á hjúkr- unarheimilið á Höfn, þar sem hún varði síðustu árum ævi sinnar. Þrátt fyrir að hafa nær alveg lam- ast á öðrum helmingi líkamans lærði hún að ganga upp á nýtt í göngugrind. Hún sagði það alveg frá degi eitt að hún ætlaði að koma sér heim á Seljavelli. Fyrir rúmu ári fékk hún síðan annað áfall og tapaði þá aftur hæfninni til að ganga. Þetta áfall stoppaði hana ekki og lærði hún bara að ganga upp á nýtt. Þrjóskan, dugnaðurinn og kjarkurinn sem amma hafði var alveg hreint út sagt ótrúlegur. Því miður náði amma ekki markmiði sínu, að komast heim á Seljavelli. Hún er þó ekki langt undan og heldur eflaust áfram að fylgjast með fólkinu sínu sem hún var svo ríkulega stolt af. Ég er afskaplega þakklátur að hafa fengið tækifæri til þess að kynnast ömmu svona vel og fengið að umgangast hana svona mikið. Megi hún hvíla í friði. Egill Eiríksson. Elsku amma. Þú varst svo fjölhæf en efst í mínum huga er hvað þú reyndist mér vel og hvað við vorum miklar vinkonur. Við áttum margt sameig- inlegt og mér leiðist ekki þegar sagt er „þú ert alveg eins og amma þín“, það er sannur heiður. Þú hafðir unun af leikhúsi og menningu og kenndir mér að njóta þessara hluta. Leikhúsferðirnar okkar standa uppúr og ekki síst ferðin heim í íbúð eftir sýningu og kaffiborðið sem var hent upp. Þú varst alltaf tilbúin að taka á móti fólki, alltaf var nóg til en engin só- un. En það voru ekki góðgjörðirnar sem skiptu máli hjá mér heldur hvernig við krufðum hvert atriði í verkinu og köfuðum dýpra. Ég sé það nú að þessi dýpt sem þú kennd- ir mér að koma auga á kemur sér ekki síður vel í daglega lífinu. Íslenskan var þitt mál, skýr- mælt og framburðurinn svo tekið var eftir. Ljóða- og vísnabankinn óþrjótandi og orðaforðinn fjöl- breyttur. Þú hafðir lúmskt gaman af því þegar þú rakst okkur á gat en þá fékkstu tækifæri til að kenna okkur eitthvað nýtt. Þú hlóst í það minnsta mikið að því þegar ég varð eitt spurningamerki þegar þú baðst mig um „kollindoðru“ úr for- stofuskápnum og ljómaðir um leið og þú fórst að útskýra það fyrir mér. Þrátt fyrir góð tök á íslensku máli áttirðu það til að sletta svolítið, sem setti oft skemmtilegan svip. „Þein kjú verrí möts,“ heyrðist t.d. öðru hvoru með viðeigandi handa- bendingum. Í þínum augum voru allir jafnir, gagnkvæm virðing óháð stöðu og aldri. Aldursbil var ekki til hjá þér enda varstu síung, fylgdist vel með tískunni. Parísardressið er mér til dæmis ógleymanlegt, dökkar galla- buxur og rauður gallajakki, 84 ára og varst langflottust í allri París. Það var einmitt tilfellið; hvert sem komið var skarst þú þig út úr fjöld- anum, eins og drottning, en aldrei neitt yfirdrifið. Nú þegar jólin nálgast er frekar erfitt að hugsa hvernig allt saman verður án þín. Þú varst svo stór hluti af jólahaldinu okkar. Ég á þó eftir að sakna þess mest að und- irbúa jólin með þér. Það gat farið mikill tími í að upphugsa fallegar jólagjafir handa hverjum og einum, enginn skilinn útundan og allir urðu að fá jafnt. Þá þurfti að finna nógu vandaða útgáfu af gjöfinni og það var ekki verra ef hún var á „temmilegu“ verði, gæðin voru þó alltaf í fyrsta sæti. Þá átti eftir að koma öllu í pappír og merkja og það kom oft fyrir að þú vildir bæta við sumar gjafirnar ef þú varst ekki alveg nógu ánægð með þær. Þetta voru mínar allra bestu stundir fyrir jólin, þær voru oft á tíðum krefj- andi en það sem stendur upp úr frá aðventunni og jólahátíðinni allri. Allt sem þú gerðir var til fyrir- myndar. Frá því að pakka ofan í ferðatösku, klæða sig uppá, í að takast á við erfiðleika. Eljan, stað- Halldóra Hjaltadóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.