Morgunblaðið - 15.12.2017, Page 8

Morgunblaðið - 15.12.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður, skrifar á bloggi sínu: „Hingað til hef- ur það ekki verið vandamál að tala um hvítan snjó.    Mest selda jólalagið frá upphafi er „I’m Dreaming of a White Christmas“ (Mig dreymir hvít jól).    Enginn hefur efast um það hvaðþað þýðir og engum hefur fram að þessu dottið í hug að það gæti flokkast undir rasisma að tala um hvítan snjó.    Nú bregður hins vegar svo við áþessum ofurteprutímum, að biðjast verður afsökunar á því að tala um hvítan snjó.    University College í London(UCL) hefur beðist afsökunar eftir að twitter færsla var talin ras- ísk, en UCL tísti þá „Dreaming of white campus? (We can’t guarantee snow but we’ll try)“. Háskólinn segir að því miður hafi orðalag tístsins ekki verið nægilega vandað.    Þegar svo er komið að biðjast þarfafsökunar á því að tala um hvítan snjó erum við þá ekki komin yfir öll skynsamleg mörk í rétttrún- aðinum og búin að dæma okkur til alvarlegrar sjálfsritskoðunar og tjáningarbanns?“    Háskólinn ætti að láta skrifadoktorsritgerð um samsærið að snjókarl sé karlkyns. Jólapakkinn karlkyns. Ágústus keisari karlkyns og jólakalkúnninn. En snjódrífan, ryksugan, uppþvottavélin og borð- tuskan eru kvenkyns.    Er Weinstein á bak við þetta? Jón Magnússon Rétttrúnaður heil- agur, annað heiðið STAKSTEINAR Hæstiréttur dæmdi í gær Geirmund Kristinsson, fv. sparisjóðsstjóra Sparisjóðsins í Keflavík, í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir um- boðssvik. Þá var honum gert að greiða áfrýjunarkostnað og mál- svarnarlaun verjanda síns, samtals 6,1 milljón kr. Í dóminum er vísað til aldurs Geirmundar og að hann hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá er vísað til heilsufars hins dæmda og talið hæfilegt að skil- orðsbinda refsingu. Geirmundur var ákærður fyrir umboðssvik með því að hafa misnot- að aðstöðu sína með lánveitingum til einkahlutafélaga. Fjárhæðirnar nema tæpum átta hundruð millj. kr. Í ákæru sagði að Geirmundur hefði stefnt fé sparisjóðsins í verulega hættu þegar hann fór út fyrir heimildir til lánveitinga með því að veita einka- hlutafélaginu Duggi 100 millj. kr. yfirdráttarlán 16. júní 2008, það er áður en afstaða lánanefndar og áhættumat lá fyrir. Þá var endurgreiðslan ekki tryggð með nokkrum hætti. Í dómi Hæstaréttar segir að ber- sýnileg hætta hafi verið á því að lán- takinn hefði enga burði til að standa skil á endurgreiðslu lánsins, enginn samningur hafi verið gerður um end- urgreiðslu og engin trygging til stað- ar. Hafi það einnig farið svo að fjár- hæðin glataðist sparisjóðnum að mestu leyti. Er það niðurstaða Hæstaréttar að Geirmundur hafi gerst sekur um umboðssvik. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður sýknað Geirmund af ákæru um umboðssvik í nóvember 2016, en þar fór ákæruvaldið fram á fjögurra ára fangelsisrefsingu. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar í byrjun janúar sl. Í málflutningi fyrir Hæstarétti fór ákæruvaldið fram á tveggja ára fangelsisrefsingu í máli Geirmundar. Var krafa um refsingu í málinu því lækkuð um tvö ár milli dómstiga. sbs@mbl.is Átján mánaða skilorðs- dómur fyrir umboðssvik Geirmundur Kristinsson  Fyrrv. sparisjóðsstjóri í Keflavík dæmdur í Hæstarétti Hæstiréttur dæmdi í gær tvo karla til greiðslu 100 þús. kr. sektar vegna skrifa þeirra í athugasemda- kerfum. Þau lutu að samþykkt bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar um sam- starf við Samtökin ’78 vegna hinsegin fræðslu. Þriðji maðurinn var sýknaður. „Á nú að fara að eyðileggja sakleysi barnanna að foreldrum forspurðum? Ég myndi flokka þetta undir barnaníð að vera að troða kynvillu í saklaus börn,“ sagði í athugasemd annars manns- ins sem var dæmdur. Í dómnum segir meðal annars að á löggjafanum hvíli ekki aðeins sú skylda að haga lögum á þann hátt að tjáningarfrelsi sé ekki skert í ríkara mæli en svigrúm stendur til eftir kröfum. Löggjafa er einnig skylt að tryggja með lögum einka- lífi manna friðhelgi. Ólafur Börkur Þorvaldsson skil- aði sératkvæði í dóminum. Hann sagði ummælin innlegg í umræðu á netinu þar sem oft væri látið vaðið á súðum, sem væri ekki refsisvert. Dæmdir í sekt fyrir ummæli á netinu Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Veður víða um heim 14.12., kl. 18.00 Reykjavík -3 heiðskírt Bolungarvík 0 skýjað Akureyri -1 alskýjað Nuuk -8 skýjað Þórshöfn 4 rigning Ósló -1 skýjað Kaupmannahöfn 3 súld Stokkhólmur 1 rigning Helsinki 0 skýjað Lúxemborg 3 skýjað Brussel 3 skúrir Dublin 4 skýjað Glasgow 1 léttskýjað London 3 léttskýjað París 5 skúrir Amsterdam 5 skúrir Hamborg 3 rigning Berlín 3 rigning Vín 4 heiðskírt Moskva 0 snjókoma Algarve 16 skýjað Madríd 9 þoka Barcelona 14 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 rigning Aþena 16 léttskýjað Winnipeg -11 snjókoma Montreal -17 snjókoma New York -2 skýjað Chicago -6 snjókoma Orlando 16 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:17 15:30 ÍSAFJÖRÐUR 12:03 14:54 SIGLUFJÖRÐUR 11:47 14:35 DJÚPIVOGUR 10:55 14:50

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.