Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 10

Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Starfsmönnum hjá bönkum og sparisjóðum hefur fækkað um tæp- lega 1.500 á síðustu 10 árum. Á sama tíma hefur bankaútibúum á landinu fækkað um rúmlega 60. Þessar upp- lýsingar koma fram í grein í SSF blaðinu sem Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja gefa út. Af þeim 1.500 (35% fækkun) sem misst hafa vinnuna hjá viðskipta- bönkum og sparisjóðum undanfarin ár eru 1.100 konur, samkvæmt upp- lýsingum Friðberts Traustasonar, formanns SSF. „En fáir aðrir en við sem í fjár- málakerfinu vinnum hafa áhyggjur af þessu mikla tapi á „kvennastörf- um“, alla vega eru stjórnmálamenn himinlifandi miðað við þeirra mál- flutning,“ segir Friðbert. Hann segir að enn séu uppsagnir og/eða starfslokasamningar í flest- um mánuðum ársins, enda hafi allir viðskiptabankastjórarnir boðað enn frekari „hagræðingu“. Útibúum fækkar jafnt og þétt Í árslok 2008 voru 146 útibú við- skiptabanka starfrækt í landinu en þeim hefur fækkað jafnt og þétt nið- ur í 84 núna. Undanfarin sex ár hef- ur útibúum á höfuðborgarsvæðinu fækkað úr 37 í 21. Frá árinu 2008 hefur útibúum á landsbyggðinni fækkað úr 99 í 63. Þá segir í SSF blaðinu að í sumum útibúum á landsbyggðinni sé ekki boðið upp á fulla þjónustu og af- greiðslutími sé skertur. Því megi tala um af- greiðslustaði frekar en útibú. „Boðuð hefur verið frekari hag- ræðing innan bankanna þrátt fyrir þá stað- reynd að fjöldi starfsmanna sé nú kominn niður fyrir þann fjölda sem starfaði að meðaltali hjá samn- ingsaðilum SSF á árunum 1985- 2005,“ segir í greininni. Árið 2007 voru starfsmenn sem unnu við viðskiptabankastarfsemi 4.326 talsins(1.450 hjá Landsbank- anum, 1.076 hjá Kaupþingi, 1.200 hjá Íslandsbanka og 600 hjá spari- sjóðunum). Í dag er starfsmanna- fjöldi í viðskiptabankastarfsemi 2.850(1.000 hjá Landsbankanum, 900 hjá Arion banka, 900 hjá Ís- landsbanka og 50 hjá sparisjóðun- um). „Það sést vel á þessum tölum að fækkunin hefur verið gríðarleg á undanförnum árum og mikilvægt að stjórnendur og ráðamenn geri sér grein fyrir þeirri hagræðingu sem þegar hefur átt sér stað áður en rík- ari krafa um enn frekari hagræð- ingu er gerð,“ segir í greininni í SSF blaðinu. Í leiðara blaðsins fjallar Friðbert Traustason um jafnrétti og segir m.a.: „Það getur ekki gengið lengur að langflest fjármálafyrirtækin vilji ekki hafa starfsmenn eldri en 66 ára í starfsmannahópnum, en því miður er það staðan í dag.“ Konum stórfækkar í bönkum  Á síðasta áratug hefur bankastarfsmönnum hérlendis fækkað um 1.500 eða 35%  Þar af eru konur 1.100 talsins  Á sama tíma hefur bankaútibúum fækkað um 60 Friðbert Traustason Lára Björg Björnsdóttir hefur ver- ið ráðin upplýsingafulltrúi ríkis- stjórnarinnar. Lára Björg hefur m.a. starfað við almannatengsl. Hafþór Eide hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra. Hann er með BSc-próf í við- skiptafræði. Orri Páll Jóhannsson og Sif Kon- ráðsdóttir hafa verið ráðin aðstoð- armenn Guðmundar Inga Guð- brandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra. Orri er búfræð- ingur með BSc-gráðu í vistfræði og stjórnun náttúrusvæða. Sif er lög- fræðingur og hefur m.a. starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel og sem stundakennari við HÍ. Lára Björg Björnsdóttir Hafþór Eide Orri Páll Jóhannsson Sif Konráðsdóttir Upplýsingafulltrúi og aðstoðarmenn Viðskiptabankarnir (og stærri sparisjóðir) tóku upp þá reglu árið 1995 að allir starfsmenn hefðu yfirgefið bankann eigi síðar en 67 ára (í afmælis- mánuðinum), segir Friðbert Traustason. Hann segir að þessi regla hafi gilt síðustu 22 árin og gildi enn þrátt fyrir áætlanir Samtaka atvinnulífsins og fleiri um hækkun lífeyris- tökualdurs í 70 ár. Bankarnir eru aðilar að SA. Langflestir hafa í raun hætt starfi á aldrinum 65-66 ára. Verða að hætta 67 ára BANKASTARFSMENN Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Unnið er að allsherjarviðgerð á vél Breiða- fjarðarferjunnar Baldurs á þrennum vígstöðvum; í Danmörku, Englandi og hjá Framtaki í Garða- bæ. Enn er þó ekki ljóst hvenær skipið hefur siglingar að nýju; hvort það verður fyrstu dag- ana í janúar eins og að var stefnt eða ekki fyrr en um eða eftir miðjan mánuðinn eins og ýmsir óttast. Ferjan hefur verið úr leik síðan 19. nóvember, en þá bilaði aðalvél skipsins. Talsvert fyrirtæki var að hífa tólf tonna vélina upp úr skipinu og þurfti að stækka lúgu á bílaþilfari og brenna gat á efsta dekkið, að því er Skessuhorn greindi frá. Að viðgerð lokinni þarf að stilla vélar og búnað áður en hægt verður að sigla. Aukaferðir til Flateyjar yfir hátíðar Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir að viðgerðin á aðalvél Baldurs sé mikið verkefni. Sveifarásinn hafi farið til við- gerðar í Danmörku, aðrir vélarhlutar hafi verið sendir til Englands, en umsjón með viðgerðinni hefur Framtak í Garðabæ. „Við fáum vonandi upplýsingar um það á næstu dögum hvenær þessari vinnu lýkur og þá einkum er varðar sveifarásinn. Við vonum enn að það verði í byrj- un janúar en höfum áhyggjur af að það geti dregist,“ segir Gunnlaugur. Í fjarveru Baldurs hefur Særún, sem er mun minna skip, siglt nokkrum sinnum í viku milli Stykkishólms og Flateyjar. Vegagerðin heimilaði Sæferðum að sigla aukaferðir til Flateyjar í kringum hátíðar og hafði Framfarafélag Flat- eyjar m.a. lagt á það áherslu í viðræðum við Sæ- ferðir. Þegar nýlega kom upp bilun hjá Orkubúi Vestfjarða í Flatey fór Særún yfir á Brjánslæk og sótti þangað vinnuhóp og flutti síðan aftur upp á Barðaströnd. Gunnlaugur segir að menn reyni að hjálpast að, en bilunin í Baldri sé högg fyrir alla, ekki síst Sæferðir, sem þessa dagana geti því miður ekki veitt þá þjónustu sem fyrirtækið hefði viljað. Hann segir að sem betur fer hafi færð á vegum verið góð undanfarið miðað við árstíma. Gæti seinkað fram í miðjan janúar Ljósmynd/Sumarliði Ásgeirsson Stykkishólmur Það var talsvert verk að hífa tólf tonna vélina upp úr Breiðafjarðarferjunni Baldri.  Gert við hluta úr aðal- vél Baldurs í Danmörku, Englandi og Garðabæ Pantaðu jólagjafirnar á ELKO.is KÄRCHER PREMIUM 5 SKÚRINGARVÉL O CITIZ & MILK KAFFIVÉL KITCHENAID HRÆRIVÉL MARSHALL ACTON HÁTALARI 29.995 29.995 79.99524.995 Bi rt m eð fy rir va ra um m yn da br en gl og /e ða pr en tv ill ur . NESPRESS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.