Morgunblaðið - 15.12.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017
þÁ HÁTÍÐ ER Í BÆ
J
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég held að almættið hafikomið því svo fyrir að viðmamma vorum mikiðsaman þrjá síðustu dag-
ana í lífi hennar. Þannig fannst mér
mamma vera að segja „Ég elska
þig“, en samband okkar mömmu í
gegnum tíðina var stundum erfitt.
Mig langaði að miðla þessum
síðustu dögum okkar mömmu áfram
til systkina minna með því að gera
litla bók handa þeim, en þegar ljóðin
fóru að flæða óvænt fram af sprengi-
krafti núna í nóvember, þá ákvað ég
að slá til og gefa út ljóðabók,“ segir
skáldkonan Elísabet Jökulsdóttir
um nýju ljóðabókina sína sem ber
titilinn, Dauðinn í veiðar-
færaskúrnum, en hún kemur út í
dag. Bókin fjallar um síðustu sjö
dagana í lífi móður hennar, Jóhönnu
Kristjónsdóttur, en hún lést í vor.
Bókin fjallar ekki aðeins um dauð-
ann og aðdraganda hans, heldur líka
um ástvinamissi, tilfinningarnar
sem fylgja því að kveðja þann sem
stendur hjartanu nærri og hefur
fylgt allt lífið.
Ákvað að hafa ást
frekar en reiði
„Ekkert samband er eins náið og samband foreldris og barns, enginn elskar mann
skilyrðislaust nema foreldrar, börn og Guð. Maður getur fyrirgefið foreldrum það
sem maður getur kannski ekki fyrirgefið maka,“ segir Elísabet Jökulsdóttir um
ljóðabók sína, Dauðinn í veiðarfæraskúrnum, en hún missti móður sína í vor.
Slæðugjörningur Mæðgurnar Jóhanna og Elísabet við Varmá í Hveragerði.
Jólamarkaðurinn í Strassborg er sá elsti í Frakk-
landi og er sóttur heim af tveimur milljónum
manna. Ísland er heiðursgestur í ár á jólamarkað-
inum í Strassborg og fær landið þar mikla kynningu.
Þar er íslenskt jólaþorp með kynningu á Íslandi og
íslenskum varningi sem vakið hefur mikla athygli.
Íslenskir tónleikar voru af þessu tilefni síðastliðið
miðvikudagskvöld fyrir fullri kirkju í Saint Guilli-
aume-kirkjunni, og í gærkvöldi voru sömu tónleikar í
Saint Pierre le Vieux.
Yfirskrift tónleikanna er ,,Niðamyrkrið ljómar“ og
þar koma fram Björg Þórhallsdóttir sópransöng-
kona, Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari, Elísabet
Waage hörpuleikari, Matthías Nardeau óbóleikari og
Hilmar Örn Agnarsson organisti, ásamt kammerkór.
Tónlistarfólkið er í Frakklandi í boði konsúls Íslend-
inga í Strassborg, Patrice Dromson og mennta-
málaráðuneytisins.
Tónleikana ætla þau að endurtaka heima á Íslandi
nk. sunnudagskvöld, 17. desember, í Seltjarnar-
neskirkju kl. 20. Allir eru hjartanlega velkomnir á
þessa hugljúfu aðventutónleika við kertaljós.
Hugljúfir aðventutónleikar við kertaljós í Seltjarnarneskirkju nk. sunnudag
Tríó Hilmar Örn Agnarsson, Björg Þórhallsdóttir og Elísabet Waage.
Ísland heiðursgestur á jólamarkaði í Strassborg
Þessi jólaveinn var fljótur í förum þar sem hann renndi
sér hratt á hjólabretti í borg englanna í Bandaríkjun-
um, Los Angeles, enda mikið að gera hjá honum líkt og
bræðrum hans að koma pökkum á réttan stað.
Ýmsar leiðir til að ferðast með pakka
AFP
Jólasveinn þeytist um
á hlaupabrettinu
Að vera eða vera ekki „jóla-barn“? Er spurning semenginn spyr þig yfir há-tíðarnar. Það er sterk-
lega gert ráð fyrir að allir séu jafn
spenntir fyrir jólunum og Will Fer-
rel í kvikmyndinni Elf.
Útvarpsstjórar þessa lands hafa
sammælst um að frá miðjum nóv-
ember skal ekki vera spilað neitt
annað í útvarpinu en þau fimmtán
jólalög sem við Íslendingar eigum.
Lagalistinn skal vera endurtekinn
með auglýsingahléum, alla tíma sól-
arhringsins, þangað til einhver
hringir og kvartar yfir hrakandi
andlegri heilsu í byrjun janúar.
Ég reyni eftir bestu getu að
þykja vænt um allar þessar litlu
jólahefðir sem við höfum komið
okkur upp sem þjóð, ég lofa, ég
reyni. Í raun þykir mér samt eigin-
lega bara vænt um eina jólahefð og
það er þegar Ikea-geitin er tendr-
uð. Það er falleg stund að sjá hana
og veraldarvefinn loga samtímis.
Ég hef enn ekki komist að því
hvort þessi föngulega geit sé í raun
á vegum Ikea eða tálbeituaðgerð
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
til að svæla út brennuvarga þessa
lands. Jólin fyrir mér eru svolítið
eins og ofurhressi
starfsmaðurinn á
Joe & the
Juice. Ég
mun
leggja
mig all-
an fram
við að vera
eðlilegur [lærð
hegðun] en hann mun
láta eins og það skemmti-
legasta sem gerðist þann
daginn sé það að hann fékk
að afgreiða mig. Samtalið
mun óumflýjanlega inni-
halda orðið „meistari“ á
einhverjum tímapunkti og ég óttast
um innihald vörunnar sem ég var
að kaupa. Enginn er svona hress á
sunnudagsmorgnum. Mig langar
helst að faðma hann og segja:
„Þetta er allt í lagi, það þarf ekki
allt að vera frábært, þú þarft ekki
að þykjast“ en ég er nokkuð viss
um að það skili litlu og áður en ég
veit af verður hann búinn að spyrja
mæðgurnar í röðinni fyrir aftan
mig hvort þær séu nokkuð systur.
Jólagleði Íslendinga er að mörgu
leyti svipuð: Það skal vera gaman
að versla í Kringlunni og Smára-
lind, það er allt í lagi að þetta jóla-
lag sé spilað í fimmta sinn, þér
finnst skata góð.
Það eina sem ég veit
verra en yfirdrifin ást á
jólunum er tánings-
legur biturleiki yfir
hátíðunum. Ég er
táknmynd þeirrar
klisju yfir hátíðarnar
en í ár ætla ég að
reyna að njóta,
ég lofa, ég
reyni.
»Í raun þykir mér samteiginlega bara vænt
um eina jólahefð og það er
þegar Ikea-geitin er tendr-
uð. Það er falleg stund að
sjá hana og veraldarvefinn
loga samtímis.
Heimur Magnúsar Heimis
Magnús H.
Jónasson
mhj@mbl.is