Morgunblaðið - 15.12.2017, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundur Elísabet í stofunni heima, henni finnst eins og það hafi losnað um köggul í brjóstinu við ljóðaskrifin.
Lífið er ekki svarthvítt
„Það er ekki auðvelt að missa
mömmu sína, þó að hún sé komin á
efri ár, en reyndar fannst mér
mamma alltaf ung. Ekkert samband
er eins náið og samband foreldris og
barns, enginn elskar mann skilyrð-
islaust nema foreldrar, börn og Guð.
Maður getur fyrirgefið foreldrum
það sem maður getur kannski ekki
fyrirgefið maka. Ég fann að ég fyr-
irgaf mömmu allt þegar hún dó, her-
bergið heima hjá henni þar sem hún
lá dáin, fylltist af ljósi sem tók allt
með sér.“
Elísabet segir að átökin á milli
hennar og móður hennar hafi byrjað
strax þegar hún var í vöggu.
„Mamma fór í fæðingar-
þunglyndi þegar ég fæddist, og þar
byrjar sektarkenndin hjá henni, en
þá vissu konur ekkert hvað þetta
var. Kannski langaði hana að til
henda mér út um gluggann, eins og
maður heyrir að sumum konum hafi
liðið í því ástandi. Fæðingar-
þunglyndi og alkóhólismi hafði mikil
áhrif á samband okkar mömmu, en
þegar mamma var vond við mig, þá
var það ekki af því að hún væri vond
manneskja, heldur var það með-
virkni, alkóhólismi og þunglyndi
sem var þar að verki. Ég veit núna
að þetta eru sjúkdómar. Og ég veit
að lífið er ekki svarthvítt, ekki frek-
ar en fólk.“
Í anda mömmu að skilja eftir
sig ráðgátu fyrir okkur
Elísabet segir að móðir hennar
hafi ekki verið hrædd við dauðann,
en hún hafi kannski ekki verið sátt
við að skiljast við afkomendur sína.
„Hún var mikil fjölskyldukona og
hafði okkur með í ráðum í því sem
hún var að gera. Hún hafði vísinda-
legan áhuga á okkur afkomend-
unum, hvernig við værum gerð. Það
er alveg í hennar anda að skilja eftir
ráðgátu með því að deyja ein heima
hjá sér. Ég veit ekkert hvað gerðist
eða hvað hún var að hugsa. Af
hverju vildi hún ekki að ég gisti hjá
henni þessa nótt sem kom svo í ljós
að var hennar síðasta? Kannski vissi
hún að það væri komið að þessu og
hún vildi vera ein.“
Skrifin hafa hjálpað mikið
Elísabet segir að hana hafi
dreymt draum þar sem hún var að
keyra með öll
systkini sín og
mamma þeirra
hafi legið eins og
múmía aftur í
bílnum.
„Mér fannst
táknrænt að bíll-
inn varð bensín-
laus hjá mér í
draumnum, á
planinu við Kenn-
araháskólann.
Mamma naut
þess að kenna og
hún var alltaf að
kenna mér og
leiðbeina í lífinu.
Ég réði draum-
inn þannig að
mamma væri að
segja mér að fara
nýjar leiðir, svo
ég ákvað að prófa
að skrifa ljóðin út frá frúnni á neðri
hæðinni, skáldaðri persónu í lífi
mömmu. Og það eru ekki endilega
skil á milli þess hvor okkar er að tala
í ljóðabókinni minni, ég eða frúin.
Mamma setti oft inn færslur á Face-
book hjá sér um þessa frú, sem eng-
inn vissi hver var. Fólk var oft að
spyrja um þessa leyndardómsfullu
frú en mamma svaraði aldrei, hún
hélt sínu striki og sagði sögur af
kómísku sambandinu á milli þeirra
tveggja. Ég er með ákveðna kenn-
ingu um þessa frú sem leysir frá
skjóðunni á síðustu blaðsíðu
ljóðabókarinnar. Fólk getur komist
að því hver sú kenning er með því að
lesa bókina,“ segir Elísabet og hlær.
„Ég ákvað að vera ekki að
ásaka mig eða mömmu í þessum
ljóðum, heldur vera jákvæð þó svo
að sorgin og söknuðurinn komi að
sjálfsögðu við sögu. Ég ákvað að
hafa ást frekar en reiði í þessari bók.
Þannig bý ég til hunang sem hjálpar
mér að takast á við erfiða hluti. Að
skrifa þessa bók hefur hjálpað mér
mikið, mér finnst
eins og það hafi
losnað um köggul í
brjóstinu. Við það
öðlaðist ég innsæi
og pláss fyrir nýj-
ar pælingar.“
Tár mín eru
seld dýrum
dómum
Elísabet ætl-
ar að vera með út-
gáfuhóf nk. þriðju-
dag, 19. desember,
í Eymundsson í
Austurstræti, en í
verslunum þeirra
mun bókin fást,
sem og í Bóka-
kaffinu á Selfossi.
Elísabet mun að
sjálfsögðu líka
vera í eigin per-
sónu við Melabúðina að selja bókina,
eins og hún er þekkt fyrir.
„Ég ætla ekki að lofa því að
fara að gráta í útgáfupartíinu, tár
mín eru seld dýrum dómum,“ segir
hún og hlær. „En það er svo merki-
legt að ég fékk aldrei tár í augun eða
komst við, þegar ég var að skrifa
þessa bók. En þegar ég fór til Jóns
Óskars þegar hann var búinn að
prenta út fyrstu próförk fóru tárin
að renna.“
Bók Dauðinn í veiðarfæraskúrnum.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Samkaup kjörbúðirnar, Samkaup krambúðirnar, Sunnubúðin,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík.
F Laxinn okkar er
einungis unnin
úr ferskum laxi
og þurrsaltaður
með sjávarsalti.
Saltinnihald er
einungis 2%.
FGraflaxinn okkar
er þurrkryddaður
með einstakri
kryddblöndu.
F Frá handflökun að
handsneiðingu eru
gamlar verkhefðir
virtar, sem skilar
sér í mildu bragði
sem gælir við
bragðlaukana.
Grafinn lax
ómissandi á jólaborðið