Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017
Vönduðum hálendis-
vegum fylgja margir
kostir. Þeir stytta
vegalengdir milli
landshluta. Þeir opna
fleirum möguleika til
að upplifa sérstæða
fegurð miðhálendis Ís-
lands. Þeir eru mik-
ilvæg varaleið milli
landshluta. Þeir eru
mjög hagkvæmir, þeir
lækka kostnað umferðarinnar og þá
má kosta af veggjöldum í einka-
framkvæmd án útgjalda fyrir skatt-
greiðendur.
Í dag ná uppbyggðir vegir með
bundnu slitlagi á Suðurlandi upp að
Þórisvatni. Á Norðurlandi ná þeir
vel inn í Eyjafjörð og inn Bárðardal.
Á Austurlandi liggur uppbyggður
vegur að Kárahnúkastíflu. Hálend-
isvegir frá þessum vegendum sem
myndu mætast á Sprengisandi
verða samtals um 289 km langir, sjá
mynd af hálendinu.
Vegalengdin milli Egilsstaða og
suðvesturhornsins um hálendisveg-
ina verður 256 km styttri en um
þjóðveg 1 eða um 3 klst. Leiðin milli
Akureyrar og Suðurlandsundirlend-
isins styttist um 200 km eða 2,5 klst.
en milli Akureyrar og suðvestur-
hornsins um 10 km. Hálendisleiðin
milli Akureyrar og Egilsstaða verð-
ur hins vegar 47 km lengri en núver-
andi þjóðvegur 1 um Möðrudals-
öræfi.
Arðsemi og ábati
Þörfin fyrir vegafé frá kjördæm-
um er það mikil að jafnvel hinar arð-
sömustu vegaframkvæmdir, sem
hægt er að komast af
án, komast ekki að,
samanber Hvalfjarð-
argöngin. Þau spara um
50 km akstur fyrir 5.500
bíla á sólarhring núna,
en urðu ekki að veru-
leika fyrr en hópur
áhugasamra aðila tók
sig saman um þau í
einkaframkvæmd.
Svipað gildir um há-
lendisvegi. Þeir verða
ekki að veruleika næstu
áratugi nema þá í einkaframkvæmd.
Með það í huga skoðaði undirritaður
arðsemi hálendisveganna, sjá töflu.
Tvær veggerðir koma helst til
greina. Uppbyggðir heilsársvegir
eru arðsamari en ódýrari bugðóttir
mjóir ferðamannavegir sem fylgja
landslagi. Skýringin er aðallega að
uppbyggðu vegirnir verða opnir nán-
ast allt árið en ferðamannavegir yfir
sumartímann.
Hér er miðað við meðalveggjöld,
2.000 kr. á legg, þ.e. 4.000 kr. fyrir
leiðina yfir hálendið. Þá er miðað við
að 60% af umferðinni REY-EGI fær-
ist á hálendisvegina, 30% af REY-
EYJ og 15% af EYJ-EGI umferð. Til
viðbótar skapa hálendisvegirnir nýja
umferð sem metin er 20% ofan á um-
ferð þjóðvegar 1 á svæðinu.
Arðsemi
Arðsemi uppbyggðra hálendis-
vega í einkaframkvæmd er þá 1,4
milljarðar kr. á ári, eða 7%. Lán fyrir
stofnkostnaði til 30 ára með 3% vöxt-
um mætti þá greiða niður á um 20 ár-
um.
Ábati umferðarinnar, það er bíla,
ökumanna og farþega, reiknast 8,5
milljarðar kr. á ári vegna styttri
leiða. Þjóðhagslegur hagnaður sam-
tals telst þá 10,2 milljarðar kr. á ári
sem er 53% heildar arðsemi af fjár-
festingunni.
Annar ábati
Hálendisvegir verða mikilvæg
varaleið þegar núverandi vegir
bregðast tímabundið, til dæmis á
Suðurlandi, þegar gos og stjórflóð
ryðja burtu vegum og brúm. Hluti
umferðarinnar sem nú er um lág-
lendisvegina flyst á hálendisvegina
sem léttir á þjóðvegi 1 sem sparar í
viðhaldi.
Umhverfisáhrif
Með góðum hálendisvegum opnast
miðhálendið fólki sem hefur í reynd
ekki getað notið þess hingað til. Stór-
brotið landslagið og lítt snortin víð-
ernin munu draga til sín fjölda fólks,
tugi jafnvel hundruð þúsunda árlega.
Það er jákvætt fyrir þá sem upplifa
og landið sem ferðamannaland.
En stóraukin umgengni um há-
lendið kallar á gott skipulag og um-
hirðu. Skipuleggja þarf landnýtingu,
afmarka uppbyggingarreiti, leggja
göngustíga og fleira sem tilheyrir
fjölsóttum ferðamannastöðum.
Hálendisvörsluna mætti kosta
með aðgöngugjaldi sem mætti inn-
heimta samhliða veggjaldinu af stök-
um ferðum.
Fólk á að geta notið landsins í sátt
við náttúruna. Aukinni umferð fylgir
álag fyrir umhverfið en ef vel er að
verki staðið má vernda umhverfið
vel, sem skiptir miklu vegna framtíð-
arhagsmuna.
Heillandi framtíð
Hálendisvegir eru arðbærir í
einkaframkvæmd án útgjalda fyrir
skattgreiðendur. Umhverfisáhrifin
eru vonandi ásættanleg fyrir flesta,
þegar litið er á ábata af styttri ferð-
um og áhugaverðri upplifun.
Samkvæmt þessu ætti að skoða
ábata og kostnað við hálendisvegi
nánar.
Nánari upplýsingar: https://
gudjonsigurbjarts.wordpress.com/
halendisvegir/
Eftir Guðjón
Sigurbjartsson
Guðjón Sigurbjartsson
»Hálendisvegir eru
mjög arðbærir en
þeir verða ekki að veru-
leika fyrr en hópur
áhugasamra tekur sig
saman um þá í einka-
framkvæmd.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
gudjonsigurbjartsson@gmail.com
Hálendisvegir, arðsemi og áhrif
Við að horfa á
Helga í Góu í Kastljósi
RÚV rifjaðist upp að í
lok árs 2005 skrifaði
ég þrjár greinar um
lífeyrissjóðina. Á sama
tíma barðist Helgi fyr-
ir því að lífeyrissjóð-
irnir byggðu hentugar
leiguíbúðir fyrir eldri
borgara. Þá kom hann
líka fram í RÚV og
sýndi á myndrænan hátt hversu lítið
mál þetta væri fyrir sjóðina. Eftir
hrun hefi ég oft hugsað hversu mikið
betur lífeyrissjóðir hefðu farið út úr
hruninu hefðu þeir borið gæfu til að
fylgja ráðum Helga í Góu.
Helgi þekkir ekki að gefast upp og
safnar nú undirskriftum almennings
til stuðnings þess að lífeyrissjóðir
byggi hagstæðar íbúðir fyrir eldri
borgara. Kröfuna styður hann sterk-
um rökum.
Grein mín birtist fyrir 12 árum.
Tilefni er til að birta hana aftur með
tilliti til þess að nú stefnir í nýtt hrun
skv. byggingakranavísitölunni.
Lífeyrisþjófnaður
Ég fékk mikil viðbrögð við grein
minni „Til hvers eru lífeyrissjóðir?“.
Ekkert heyrðist þó frá forsvars-
mönnum lífeyrissjóða. Samt notaði
ég stór orð. Kallaði þá þjófa. Það
hefði ég ekki sett á prent nema ég
gæti staðið við það og geri það hér
með:
Að loknu námi starfaði ég í Sviss.
Þar var frjálst val að vera í lífeyris-
sjóði og nokkrir í boði. Ég valdi líf-
eyrissjóð opinberra starfsmanna og
var í honum á þriðja ár. Skömmu eft-
ir að ég flutti heim kom yfirlit frá
bankanum úti, sem launin mín voru
jafnan lögð inn á. Það var komin stór
innborgun. Lífeyrissjóðurinn hafði
endurgreitt mér allt sem ég hafði
borgað í hann. Allir geta verið sam-
mála um að samanborið við þetta þá
er maður rændur hérna heima.
Ég hefi mikið velt fyr-
ir mér hvort það standist
landslög að lífeyrissjóðir
slái eign sinni á inneign
sjóðsfélaga þegar þeir
kveðja þennan heim.
Vonandi verður einhver
lögfróður til að svara því
með tilliti til eftirfarandi
dæmis:
Flestir ganga í lífeyr-
issjóð um leið og þeir
byrja að vinna. Oft barn-
ungir. Síðar þegar geng-
ið er í hjónaband eru hjónin eitt
frammi fyrir guði og mönnum. Eiga
saman börn, innbú og íbúð. Allt er
sameign nema þau geri kaupmála.
Taki annað hvort eða bæði lán með
veði í sameiginlegri eign, þá skal
makinn skrifa samþykki sitt á
skuldaviðurkenninguna. Svo kemur
að því að annað fellur frá. Þá erfir sá
sem lifir allt nema lífeyrissjóðsrétt-
indin. Sé lífeyrissjóðslán í búinu skal
hann eða hún borga af því þar til það
er upp greitt. Á sama tíma fær hann
eða hún tímabundið skertar bætur úr
lífeyrissjóði makans.
Það eru aðallega konur, sem hafa
farið illa út úr þessu. Bæði lifa þær
lengur og svo hafa þær fram til þessa
verið meira það sem kallað er heima-
vinnandi. Fyrir það starf fást ekki líf-
eyrissjóðsréttindi. Sama hversu stórt
heimilið er og börnin mörg. Merki-
legt að þeir, sem mest berjast fyrir
jafnrétti hafi ekki fengið þetta leið-
rétt.
Ég geri mér grein fyrir að upp úr
miðri síðustu öld jafnaði verðbólgan
misréttið. Fasteignir hækkuðu í verði
á meðan lánin brunnu upp á verð-
bólgubálinu og hjónin eignuðust
óbeint lífeyrissjóð í búinu.
Upptaka lífeyrissjóðsréttinda,
þegar óðaverðbólgan geisaði, hefur
eflaust bjargað mörgum sjóðnum frá
því að fara á hausinn.
Nú eru breyttir tímar. Nýtt og áð-
ur óþekkt vandamál. Fjármagnið
streymir svo skarpt inn að til vand-
ræða horfir. Yfirlýsingar um ónóg
tækifæri til fjárfestinga innanlands
koma frá sjóðunum. Þeir allt að því
neyðast til að auka fjárfestingar í er-
lendum verðbréfum. Á sama tíma er
ekkert lát á fréttum um lakan aðbún-
að eldri borgara, sem flestir eru
stofnfjáreigendur lífeyrissjóðanna.
Til er einföld lausn á verðtrygg-
ingu fjármagns lífeyrissjóða, sem um
leið bætir aðbúnað eldri borgara.
Lausnin felst í því að lífeyrissjóðirnir
stofni sameiginlegt byggingafélag
„Lífbygg“, sem byggir leiguíbúðir
eldri borga. Stofnfé gæti verið „ráns-
fengur“ síðustu 25 ára.
Fjármagn sem fer í byggingar er
verðtryggt um leið og framkvæmt er
fyrir það. Sama er að segja um kaup
sjóða á íbúðunum. Um leið og
greiðsla fyrir íbúð er yfirfærð til „Líf-
bygg“ er hver einasta króna verð-
tryggð. Allir vita að fjárfesting í
steinsteypu á Íslandi er góð. Ekki
áhættufjárfesting líkt og hlutabréf. Í
viðbót við verðtrygginguna bætast
við leigutekjur af íbúðinni frá fyrsta
degi.
Um leið gjörbylta þessar leigu-
íbúðir kjörum þeirra, sem eru að
ljúka starfsaldri. Allir ættu að geta
leigt sér íbúð við hæfi. Þeir sem eiga
íbúð fyrir geta selt hana í rólegheit-
um og notið söluverðsins. Leigt sum-
arhús af lífeyrissjóðnum á sumrin og
ferðast til heitari landa á veturna.
Lífeyrissjóðirnir myndu losna við
að senda einhverja stjóra á aðalfundi
verðbréfasjóða eða hlutafélaga er-
lendis með tilheyrandi dagpeningum
og kostnaði.
Eftir Sigurð
Oddsson
Sigurður Oddsson
»Eftir hrun hefi ég oft
hugsað hversu mikið
betur lífeyrissjóðir
hefðu farið út úr
hruninu hefðu þeir borið
gæfu til að fylgja ráðum
Helga í Góu.
Höfundur er eldri borgari.
siggi@pmt.is
Lífeyrisþjófnaður
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS