Morgunblaðið - 15.12.2017, Page 32

Morgunblaðið - 15.12.2017, Page 32
32 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017 Elín Þórunn Eiríksdóttir, viðskiptafræðingur og fram-kvæmdastjóri tjónasviðs hjá Sjóvá, á 50 ára afmæli í dag. Elíner mikil fjölskyldukona og nýtir mest af frítíma sínum í að vera með sínum nánustu. Hver eru áhugamálin? „Ég hef gaman af ferðalögum, útivist og stangveiði. Við fjölskyldan erum einnig dugleg að fara á skíði. Dóttir okkar er á kafi í fótbolta og fer töluverður tími í að fylgja henni eftir sem okkur finnst mjög gaman. Okkur finnst mikil forréttindi að ferðast saman og síðasta ferðin með fjölskyldunni var til Parísar í haust,“ segir Elín Þórunn aðspurð. „Ég er mikil áhugamanneskja um mat, finnst gaman að elda og baka og prófa nýjungar á þessu sviði. Það er fátt skemmtilegra en að borða góðan mat í góðum hópi fólks. Ég er svo lánsöm að hafa hitt mikið af áhugaverðu fólki á lífsleiðinni og er í nokkrum vinahópum sem hittast reglulega, þetta finnst mér dýrmætt.“ Elín Þórunn er í bókaklúbbi sem hittist reglulega til að ræða bæk- urnar sem hafa verið lesnar. „Ég les töluvert og er komin með lista yf- ir nýjustu jólabækurnar sem ég ætla að lesa. Fyrsta jólabókin í ár er Sakramentið eftir Ólaf Jóhann og síðan ætla ég að lesa bókina eftir Ragnar Jónasson. Svo tilheyrir Arnaldur líka jólunum, það er alltaf gaman að lesa bækurnar hans. Les líka bækur sem tengjast starfinu eins og stjórnunarbækur, núna er ég að glugga í Lethal Leadership eftir Christian Orsted.“ Eiginmaður Elínar er Sigurjón Arnarsson viðskiptafræðingur og dóttir þeirra er Selma Sól, f. 2005. Elín Þórunn ætlar að stinga af úr bænum í tilefni afmælisins og njóta lífsins í faðmi fjölskyldunnar. Fjölskyldan Elín Þórunn, Sigurjón og Selma Sól í París í haust. Komin með lista yfir nýjustu bækurnar Elín Þórunn Eiríksdóttir er fimmtug í dag Þ orvaldur fæddist í Reykjavík 15.12. 1947 en ólst upp við almenn- an sveitabúskap í Álf- hólum í Vestur- Landeyjum. Hann gekk í barna- skóla í Vestur-Landeyjum, var í Skógaskóla, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1968, stundaði nám í líffræði og umhverfisfræði við Háskóla Íslands og háskólann í Þrándheimi, lauk Cand.Real-prófi í líffræði frá há- skólanum í Þrándheimi 1977 og kennsluréttindanámi frá Háskóla Íslands 1981. Á uppvaxtarárunum vann Þor- valdur við landbúnað og fleira sem til féll í Rangárþingi. Hann vann við gróðurrannsóknir RALA 1973- 78, sinnti stundakennslu við Há- skóla Íslands og Kennaraháskóla Þorvaldur Örn Árnason, líffræðingur og kennari – 70 ára Ískaldur Eiríksjökull Þorvaldur Örn og Ragnheiður Elísabet unna íslenkri nátt́úru. Hér eru þau á Arnarvatnsheiði. Vill jöfnuð, öryggi og frið um allan heim Glaðleg mæðgin Afmælisbarnið með móður sinni. Hún lést í febrúar sl.. Hafnarfjörður Hlynur Örvarsson fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 15. desember 2016 kl. 10.47 og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 4.084 g og var 51 cm að lengd við fæðingu. For- eldrar hans eru Örvar Sveinsson og Halldóra Hallgrímsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. JÓLATVENNA Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.