Morgunblaðið - 15.12.2017, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2017
Þetta er mikið rit þar semVeiðivötn eru þunga-miðjan, landið þar, vötninsjálf, gróður og dýralíf og
hvernig menn hafa nytjað svæðið og
umgengist náttúruna þar. Höfundur
gjörþekkir þetta umhverfi, hefur ver-
ið þar langdvölum, kynnst ótal
„vatnakörlum“ og safnað frásögnum
þeirra í sarpinn í áratugi, auk þess
lesið feiknin öll af heimildum. Hér er
enda allt undir. Lýsingar á svæðinu
eru nákvæmar, hvernig best er að
koma að því, hverju vatni lýst, hverj-
um læk og fljóti, fjallað um jarðelda,
söguna frá landnámi til nútíma, ör-
nefni tíunduð og ótalmargt fleira;
auðvelt er að fallast á röksemda-
færslu Gunnars fyrir nafnbreytingu
vatnanna, en lengst af hétu þau
Fiskivötn í máli manna.
Ýtarlega er fjallað um könnunar-
leiðangra sem fóru fyrr á tíð um
Veiðivatnasvæðið. Það lætur að lík-
um að svo fiskisæl vötn voru mönnum
búbót enda lágu þeir við og veiddu
silung. Urriði var ríkjandi tegund, en
nú hefur bleikja lagt undir sig nokkur
vötn á hans kostnað. Veiðunum er vel
lýst sem og verkunaraðferðum.
Skýrslur eru birtar um veiðina; ýms-
ar töflur og greinargerðir eru undir
bókarlok til glöggvunar, t.d. um ein-
stök vötn, veiðifélag Landmanna o.fl.
Það kemur ekki á óvart að menn
deildu um eignarrétt á þessari mat-
arkistu og Gunnar gerir grein fyrir
málaferlum fyrr og síðar í þeim efn-
um. Svo sem vænta má um svo sér-
stakt landsvæði í óbyggðum hafa orð-
ið þar dulrænir atburðir og menn
hefur dreymt talsvert, jafnvel fyrir
daglátum! Öllu slíku gerir Gunnar
góð skil. Þessi bók er fróðleiksnáma
um allt sem að vötnunum lýtur, bein-
línis allt.
Gunnar skrifar um efni sitt af
þekkingu og ástríðu og nokkurri sér-
visku sem er til prýði og stíll hans er
einkar persónulegur; hann hikar ekki
við að fella dóma t.d. um náttúru-
vernd, veiðimenn, akstur um hálend-
ið o.fl. Hann hefur skoðanir á flestu
sem varðar umgengni manna á sögu-
sviðinu og lætur þær óspart í ljós;
hann er líka málhagur. Á stöku stað
tekur hann til varna fyrir fyrri tíðar
menn, t.d. bílstjóra sem festi bíl sinn
á torfæru vaði fyrir áratugum og ekki
amast hann við mönnum sem hafa
gull á glasi, svo framarlega sem þeir
neyti þess prúðmannlega. 847 tilvís-
anir og aftanmálsgreinar eru á 56 bls.
undir bókarlok, sumar langar, aðrar
tilgreina einungis bók og blaðsíðutal.
Ýmsir sérfræðingar leggja í púkkið,
t.d. um lífríkið, samsetningu vatns
o.fl. og birtar eru frásagnir einstakra
manna af Veiðivatnaferðum. Margar
ljósmyndir prýða bókina, bæði gaml-
ar og nýjar og að ósekju hefðu ýmsar
þeirra mátt fá betra rými; mikil vinna
og natni einkennir marga mynda-
texta. Bókin er brotin um með hlið-
stæðum hætti og árbækur Ferða-
félagsins, textinn er prentaður í
tvídálk, letur af þeirri stærð að mikið
efni rúmast á hverri síðu. Þetta er
einyrkjaútgáfa og að sönnu hefði
mátt lesa fleiri prófarkir; prentvillur
eru allt of margar í svo veglegu riti.
Gunnar leggur áherslu á orð sín með
undirstrikunum í texta. Að jafnaði fer
ekki milli mála hvaða skoðun hann
hefur, en með þessu móti hnykkir
hann á efninu; undirstrikanir eru nú
fátíðar í prentmáli, ská- og fleitletrun
algengari. Þá eru gæsalappir mikið
notaðar, bæði utan um tilvísanir og
um einstök orð sem gefa merkingu
þeirra ákveðinn blæ.
Þessi bók er náma upplýsinga og
alls konar fróðleiks um Veiðivötn og
Tungnaársvæðið – sem vonandi fá að
vera í friði fyrir vélrænum ágangi
manna.
Fróðleiksnáma Veiðivatnabók Gunnars Guðmundssonar frá Heiðarbrún er að mati rýnis skrifuð af þekkingu og
ástríðu og nokkurri sérvisku sem er til prýði. Á myndinni eru Veiðivötn, séð til Tjaldvatns.
Þjóðfræði
Veiðivötn á Landmannaafrétti
bbbmn
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún:
Veiðivötn á Landmannaafrétti og öll
Tungnaáröræfin I-II
Innbundin, 909 bls.
Bókhlaða Gunnars Guðmundssonar
2017.
SÖLVI
SVEINSSON
BÆKUR
Veiðivötn í gjörhygli
Kvikmyndin Harry Potter og fang-
inn frá Azkaban frá árinu 2004
verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl.
20. Myndin byggist á samnefndri
bók J.K. Rowling um galdrastrák-
inn kunna.
Á morgun kl. 20 verður sýnd jóla-
myndin Hvernig Trölli stal jólunum
með Jim Carrey í aðalhlutverki.
Myndin, sem er frá 2000, er byggð á
þekktri bók eftir Dr. Seuss.
Á sunnudag kl. 20 er síðan komið
að Strange Days frá 1995 í leik-
stjórn Kathryn Bigelow. Í aðal-
hlutverkum eru Ralph Fiennes,
Angela Bassett og Juliette Lewis.
Myndin er hluti af Svörtum sunnu-
dögum.
Galdrastrákur, jól og kviksyndi hryllings
Hogwarts Daniel Radcliffe og Emma
Watson í hlutverkum sínum í Harry Potter.
Allt um sjávarútveg
Sýnd kl. 10.15
Sýnd kl. 8
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
Sýnd kl. 2, 4
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 2, 10.20 í 3D
Sýnd kl. 3, 5, 9 í 2D
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 6
Verð 7.995 kr
Verð 5.995 kr
Verð 9.995 kr
Verð 21.995 kr
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Verð 6.995 kr
Verð 6.995 kr
ICQC 2018-20
(I-II, 910 bls.) er komin út og kostar kr. 8.500,–
Sölustaðir:
Veiðivon, Mörkinni 6, 108 Reykjavík. | Árvirkinn, Eyravegi 32, Selfossi.
Landvegamót, Rang. | Mosfell, Hellu. | Fóðurblandan, Hvolsvelli.
Bókin
VEIÐIVÖTN Á LANDMANNAAFRÉTTI