Morgunblaðið - 29.12.2017, Page 8

Morgunblaðið - 29.12.2017, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 Fyrir nákvæmlega tólf mánuðum var á þess- um síðum fjallað um einstakt íþróttaár sem þá var að baki – 2016. Þá um sumarið fór karla- landsliðið í fótbolta fram úr öllum væntingum með því að komast í átta liða úrslit Evrópu- keppninnar í Frakklandi og fjölmargir aðrir ís- lenskir íþróttamenn voru áberandi, í hinum ýmsu greinum. Ekki síst afrekskonurnar okk- ar í sundi og golfi. Smáþjóðin Íslendingar vakti athygli og um- tal heimsbyggðarinnar með árangrinum á EM í Frakklandi. Fyrst með því að komast þangað og síðan með því að slá eftirminnilega í gegn. Fyrir 335 þúsund manna þjóð hefði þetta átt að vera toppurinn. Varla var möguleiki á að ná lengra? En samt hefur það gerst. Ísland er komið á stærsta sviðið í umfangsmestu og vinsælustu íþróttagrein heims. Hvern hefði órað fyrir því að Ísland ætti eftir að komast í lokakeppni heimsmeistaramóts karla? Vera í hópi þeirra 13 Evrópuþjóða sem kæmust í gegnum undan- keppnina? Og það án þess að þurfa að fara í umspil. Ísland var líklega í sterkasta riðli undankeppninnar með þremur öðrum löndum sem léku á EM í Frakklandi. Með Króatíu, Úkraínu og Tyrklandi, auk Finnlands og Kósóvó. Heimir Hallgrímsson, Aron Einar Gunnars- son, Gylfi Þór Sigurðsson og allir hinir stefndu hinsvegar bara að einu marki: Þeir ætluðu að vinna riðilinn og fara á HM. Það var ákaflega einfalt í þeirra augum. Eftir ósigur gegn Finn- landi í Tampere í byrjun september virtist draumurinn þó nánast úti og í mesta lagi mögulegt að ná inn í umspilið með góðum úr- slitum í lokaleikjunum. En þarna sýndi þessi magnaði hópur enn og aftur úr hverju hann er gerður. Glæsilegur sigur vannst á Úkraínu á Laugardalsvellinum í nánast hreinum úrslita- leik um hvort liðið kæmist í góða stöðu fyrir síðustu tvo leikina. Síðan kom þessi ótrúlegi sigur í Tyrklandi, á einhverjum erfiðasta úti- velli sem fyrirfinnst í Evrópufótboltanum. Tyrkir tapa sárasjaldan á heimavelli og þá helst bara gegn albestu liðum heims. Fullkomni leikurinn í Eskisehir En í þessum eftirminnlega leik í Eskisehir þar sem íslenska liðið hreinlega gjörsigraði það tyrkneska, 3:0, komu fram svo margir af þess- um eiginleikum sem liðið býr yfir. Ekki síst heimavinnan og undirbúningurinn. Búið var að kortleggja tyrkneska liðið, ekki bara út frá leikfræðinni heldur líka sálfræðinni. Það er svo sem ekkert einsdæmi í fótboltanum eða öðrum íþróttum að búið sé að greina andstæð- inginn í þaula. Liðum og leikmönnum gengur hinsvegar misvel að útfæra það sem fyrir er lagt af þjálfurum og aðstoðarmönnum þeirra. Ísland átti hreinlega fullkominn leik í Esk- isehir. Allt gekk samkvæmt skipulagi og áætl- un og niðurstaðan var einhver glæsilegasti sig- ur í allri knattspyrnusögu Íslands. Og til að kóróna allt saman skoruðu Finnar óvænt jöfn- unarmark í uppbótartíma í Króatíu um það bil sem flautað var til leiksloka í Eskisehir. Ísland var komið í efsta sæti riðilsins fyrir loka- umferðina og þurfti „bara“ að sigra Kósóvó á heimavelli til að komast á HM í Rússlandi. Það verkefni leystu strákarnir af fagmennsku og sóma, og nú eru tíu prósent landsmanna á höttunum á eftir miðum og ferðum til Rúss- lands næsta sumar. Hvernig var hægt að endurtaka leikinn? Ís- lenska liðið og styrkleiki þess kemur engum lengur á óvart. Andstæðingarnir vita allt um leikmenn Íslands og liðið og enginn ætti leng- ur að vanmeta það sem mótherja. Sú tíð á að vera liðin að óvænt úrslit náist vegna þess að andstæðingurinn hélt að verkefnið yrði auð- veldara en raunin varð. Knattspyrnuheimurinn hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Gríðarlegar tekjur hafa gert þá leikmenn sem ná langt í íþróttinni að auðkýfingum. Um leið hefur dregið úr metnaðinum og þjóðarstoltinu hjá mörgum þeirra knattspyrnumanna sem nú skipa bestu lið heims. Þeir eru ekki jafn til- búnir til þess að fórna öllu fyrir land og þjóð og fyrri kynslóðir. Liðsheildir eins og Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck hafa skapað hjá íslenska landsliðinu á undanförnum árum eru fágætari en áður. Allavega þegar við horf- um á bestu landslið heims. Í þessu umhverfi hafa íslensku landsliðs- mennirnir notið sín til hins ýtrasta. Þeir eru almennt ekki að spila með liðum í fremstu röð og enginn þeirra lék t.d. í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur. Þetta er ekki samansafn afburðaknattspyrnumanna. Liðs- heildin og ekki síst vináttan og samheldnin ut- an vallar sem innan eru gríðarlega dýrmætir eiginleikar sem Heimir hefur náð að nýta af- skaplega vel, um leið og KSÍ hefur skapað honum enn betri umgjörð en áður hefur þekkst í kringum íslenskt landslið í nokkurri íþrótt. Ísland mætir Argentínu, Nígeríu og Króat- íu í Moskvu, Volgograd og Rostov í júnímán- uði. Fæstir gera ráð fyrir því að Ísland komist áfram úr þessum erfiða riðli en við bíðum og sjáum hvað setur. Ísland er allavega með á HM. Það eitt og sér er gríðarlega stór sigur. Kynslóðaskipti í handboltanum Þau landslið Íslands sem léku á stórmótum á árinu 2017 náðu ekki sínum markmiðum. Handboltalandslið karla lék að vanda á HM, vann einn leik af sex og féll út fyrir gestgjöf- unum, Frökkum, í sextán liða úrslitum. Liðið er á leið í lokakeppni EM í Króatíu og er þar í erfiðum riðli með Svíum, Króötum og Serbum. Fáir búast við því að liðið nái langt, enda eru kynslóðaskipti í gangi og margir ungir og efni- legir leikmenn komnir inn í hópinn á meðan „silfur- og bronskynslóðin“ er smám saman að hverfa. Þetta er hinsvegar það lið sem lengst og best hefur borið hróður íslensks íþrótta- fólks á stórmótum og mjög áhugavert verður að fylgjast með þróun þess á næstu misserum. Kvennalandsliðið í fótbolta olli vonbrigðum í lokakeppni EM í Hollandi. Það náði ekki að fylgja eftir frábærum árangri 2013 þegar það komst í átta liða úrslit og féll út í riðlakeppn- inni þar sem það tapaði öllum þremur leikj- unum. Landsliðskonurnar slógu hins vegar eftirminnilega í gegn þegar þær sigruðu Þýskaland 3:2 á útivelli í undankeppni HM. Þau úrslit eru einhver þau óvæntustu og jafn- framt bestu sem nokkurt íslenskt landslið hef- ur náð í stökum leik og þýða að þær eiga raun- hæfa möguleika á að komast á HM 2019. Körfuboltalandslið karla lék í úrslitakeppni EM í annað skiptið í röð en náði ekki að byggja ofan á það og tapaði aftur öllum sínum leikjum. Þar vantar áfram herslumun til að ná lengra. Vann hug og hjörtu þjóðarinnar Í einstaklingsgreinunum var það kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem vann hug og hjörtu þjóðarinnar. Í frumraun sinni á LPGA, sterkustu mótaröð heims, náði hún að festa sig í sessi, komst ofarlega á nokkrum mótum, tryggði sér keppnisréttinn áfram, og virðist hafa hæfileikana og andlega styrkinn til þess að ná lengra á stóra sviðinu. Það eru svo sann- arlega tímamót fyrir golfíþróttina á Íslandi að eignast í fyrsta skipti fulltrúa á þessum vett- vangi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fékk fyrst Íslendinga keppnisrétt á sterkustu mótaröð heims og tryggði sér hann áfram fyrir 2018. Hún náði fjórða sæti á einu mótanna í Indiana. Ljósmynd/golf.is Aron Einar Gunnarsson er fyrirliði karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu og mikill leiðtogi í hópnum, innan vallar sem utan. Fram undan er mikið ævintýri í lokakeppni HM í Rússlandi. Morgunblaðið/Golli Smáþjóðin slær um sig Hvern hefði órað fyrir því að Ísland ætti eftir að komast í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu? Liðsheild eins og þróast hefur hjá íslenska landsliðinu á undanförnum árum er fágætari en áður. VÍÐIR SIGURÐSSON er umsjónarmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is, hefur starfað sem íþróttafréttamaður frá árinu 1981 og skrifað bækur árlega um íslenska knattspyrnu. Liðsheildin og ekki síst vináttan og sam- heldnin utan vallar sem innan eru gríðarlega dýrmætir eiginleikar sem Heimir hefur náð að nýta afskaplega vel, um leið og KSÍ hefur skapað honum enn betri umgjörð en áður hefur þekkst. VARLA VAR MÖGULEIKI Á AÐ NÁ LENGRA EN SAMT HEFUR ÞAÐ GERST ’’ TU RN ING POINTS | TÍM A M Ó T | 2018 |TURNINGPOIN TS |T ÍM A M Ó T | 20 18 |

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.