Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 22

Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 Margt gengur Bandaríkjunum í haginn. Annað árið í röð hækka tekjur í öllum tekju- hópum. Meðalaldur þeirra sem eru á vinnu- markaði er tiltölulega lágur, fólk leggur hart að sér og framleiðni er mikil. Bandarískir háskólar og aðrar rannsóknastofnanir eru öflugar á svið- um á borð við efnisvísindi, hugbúnaðarþróun, örtækni, líftækni, erfðavísindi og mörgum öðr- um, sem eru mikilvæg fyrir hagvöxt framtíðar og hátt atvinnustig. Sjálfstæði okkar í orku- málum fer áfram vaxandi og við notum hreinni orku en áður. Framfarir hafa orðið í að hlaða niður sólar- og vindorku og báðir þessir orku- gjafar eru að miklu leyti óbeislaðir. Við okkur blasir líka vandi í efnahagsmálum: mikil misskipting er í tekjum og auði; atvinnu- þátttaka fullorðinna manna án háskólagráðu er lítil, sérstaklega hjá hvítum körlum; afgerandi munur er á vexti velmegandi borga og útborga og strjálbýlla sýslna með litlum bæjum; gap- andi misbrestur hefur orðið á uppbyggingu inn- viða landsins, allt frá ófullnægjandi vegum og brúm til ryðgaðra og hættulegra vatnsleiðslna, rafveitukerfis sem hefur ekki bolmagn til að flytja orku frá stöðum þar sem ódýrast og hreinlegast er að framleiða hana þangað sem þörfin mest og skortsins á hagstæðu, hraðvirku breiðbandsneti á svæðum, sem brýn þörf er að verði með í efnahagslífi þjóðarinnar. Það eru einnig áskoranir í mannauðsmálum. Í skólakerfi okkar sem er með tólf ára skóla- skyldu eru einhverjir bestu skólar heims, en erfiðlega hefur gengist að yfirfæra ágæti þeirra og kosti yfir á skóla í öðrum umdæmum og ríkj- um þar sem skilyrði geta verið mjög frábrugð- in. Æðra menntakerfi okkar er enn það besta í heimi, en kostnaður og skuldir stúdenta eru al- varlegt vandamál. Umbætur í heilbrigðiskerf- inu hafa fært milljónum manna hagstæða gæðasjúkratryggingu í fyrsta skipti, en við höf- um sóað of miklum tíma í tilraunir til að þurrka þær framfarir út í stað þess að laga vanda- málin, sem enn eru til staðar, og undirbúa okk- ur undir það að þjóðin eldist. Framtíð innflytj- enda án leyfis – þar á meðal er ungt fólk undir 18 ára aldri og milljónir vinnusamra manna, sem borga skatta – er óviss þótt ljóst sé að ekki mun fjölga á vinnumarkaði án þeirra. Fæðing- artíðni í Bandaríkjunum er varla nóg til að halda í horfinu. Frá Charleston til Charlottes- ville erum við minnt á kynþáttagjána. Hún er bölvun og það gæti haft hræðilegar afleiðingar að endurvekja hana. Og ópíóðaneyðin og af- sprengi hennar, heróín og fentanýl, eru að drepa og örkumla sláandi fjölda Bandaríkja- manna. Í nokkur ár höfum við vitað að þetta væri gríðarlegt heilbrigðisvandamál, en þó höf- um við nánast hvergi bolmagn eða skipulag til að snúa þróuninni við. Loks blasa við erfið og alvarleg verkefni í ör- yggismálum, allt frá útbreiðslu kjarnorkuvopna til hryðjuverka, loftslagsbreytinga og net- öryggis. Síðasti þátturinn gæti orðið erfiðastur viðureignar þar sem hann setur í hættu öll þau kerfi, sem við þurfum til að taka á hinum vanda- málunum og lýðræðið að auki. Þrátt fyrir almenna framþróun í efnahags- málum eftir hrunið 2008 hafa allar þessar áskoranir átt þátt í því að dregið hefur úr efna- hagslegum hreyfanleika, pólitísk og félagsleg útilokun hefur farið vaxandi og milljónir sam- borgara okkar búa við meira óöryggi en áður. Þessi öfl hafa aukið klofninginn meðal okkar og gert jafnvel enn erfiðara að endurheimta tilfinn- ingu okkar fyrir sameiginlegum tilgangi. Góðu fréttirnar eru að kröftug tilraun til að taka á vandamálum okkar með þekktum að- gerðum með viðráðanlegum kostnaði myndi efla efnahagslíf okkar og byggðir landsins með hærri tekjum, auknum hreyfanleika upp á við í samfélaginu og auknu öryggi. Margar borgir og fjöldi ríkja sanna það daglega. En sem þjóð erum við á gjörólíkri leið. Allt of oft á það við að ættbálkahyggja byggð á kyn- þætti, trú, afstöðu til kynferðismála og fæðing- arstað hafi tekið við af þjóðahyggju grundvall- aðri á þeirri hugmynd að hægt sé að vera stoltur af sínum ættbálki og taka samt fjöl- breyttu bandarísku samfélagi opnum örmum. Of oft verður gremjan skynseminni yfirsterkari, blindar reiðin okkur fyrir svörunum og er sá skinheilagi talinn ærlegur. Þessar tilhneigingar magnast í heimi Snapchat, Twitter og Facebook þar sem mál tekin fyrir í sjónvarpsfréttum halda aðeins athygli í nokkrar sekúndur og af- koma dagblaða veltur á því hvort netverjar end- urtísta fyrirsögnum af síðum vefmiðla þeirra. Of margar félagsvefsíður eru gróðrarstía öfga- fullra erlendra og innlendra innrásarmanna. Þessar staðföstu tilraunir til að þurrka út mörk staðreynda og tilbúnings, sannleika og lyga, geta yfirskyggt alla kosti okkar tengda heims. Þegar traust hverfur og þekking er gengisfelld sem vörn kerfisins til að koma í veg fyrir breyt- ingar getur allt gerst. Nú þegar sjáum við að borgarar eru milljónum saman sviptir kosn- ingarétti á grundvelli kynþáttar og uppruna, ekki vegna þess að ættu ekki að fá að kjósa, heldur af því að vilja vera þjóðernissinnar sem opna faðminn, frekar en að fara inn í ættbálk- inn. Hver ber sigur úr býtum við þessar að- stæður? Þeir sem þegar hafa komið ár sinni fyr- ir borð munu auðgast meira; óábyrgustu raddir fjölmiðla, sem fjalla um stjórnmál, munu dafna á því að fjalla um hverja nýja deilu og hneyksli. Og óvinir lýðræðis, sem ala á óeiningu og þeirri von að Bandaríkjamenn gangist loks við því að upplýst ríkisvald virkar ekki lengur – og er jafn- vel ekki mögulegt lengur – í heimi nútímans. Fyrir tuttugu og fimm árum þegar ég var kosinn forseti sagði ég að hver og einn Banda- ríkjamaður ætti að fylgja skipun höfunda stjórnarskrárinnar um að gera ríkjasambandið fullkomnara, að þenja stöðugt út skilgrein- inguna á orðinu „við“ og láta skilgreininguna á „þeir“ skreppa saman. Ég er enn þessarar skoðunar. Fyrir vikið er ég hlynntur stefnu, sem ýtir undir samstarf frekar en ágreining og stuðlar að byggja upp efnahag, samfélag og stjórnmál sem snúast um að leggja saman, ekki draga frá, margföldun, ekki deilingu. Því miður virðast of margir valdhafar víða um heim stað- ráðnir í að gera hið gagnstæða. Ef við gerum það hér munum við glutra niður þessu tækifæri til að uppskera okkar björtustu daga. Því er okkar mikilvægasta áskorun að ákveða hverjir við Bandaríkjamenn erum í raun – sem borg- arar, samfélög og þjóð. Allt annað veltur á því. © Bill Clinton. Á vegum The New York Times Syndicate. Edu Bayer fyrir The New York Times Bandaríkin þurfa að finna sameiginlegan tilgang Ættbálkahyggja byggð á kynþætti, trú og afstöðu til kynferðismála hefur tekið við af þjóðahyggju með opinn faðm. BILL CLINTON var 42. forseti Bandaríkjanna. Fyrir vikið er ég hlynntur stefnu sem ýtir undir samstarf frekar en ágreining og stuðlar að því að byggja upp efnahag, samfélag og stjórnmál sem snúast um að leggja saman, ekki draga frá, margföldun, ekki deilingu. TRUMP FORSETI GEFUR ÚT FERÐABANN TIL AÐ ÚTILOKA RÍKISBORGARA ÁTTA RÍKJA FRÁ BANDARÍKJUNUM ’’ TU RN ING POINTS | TÍM A M Ó T | 2018 |TURNINGPOIN TS |T ÍM A M Ó T | 20 18 | Í ágúst mótmæltu hvítir þjóðernis- sinnar því að fjarlægja átti styttu af Robert E. Lee í Charlottesville í Virginíu. Þeim lenti saman við mótmælendur, sem söfnuðust saman gegn þeim, og lét kona lífið. Átökin undirstrikuðu djúpar gjár í bandarísku samfélagi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.