Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 28

Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 FRÉTTAMYNDIR AF INNLENDUM VETTVANGI Þjóðin var slegin óhug þegar fréttir bárust af því að ung stúlka, Birna Brjánsdóttir, hefði ekki skilað sér heim úr miðbæ Reykjavíkur 15. janúar. Allt tiltækt lið var fengið til þess að sinna einhverri umfangs- mestu leit í sögu landsins (já mynd til hægri). Lík hennar fannst að lokum 23. janúar rétt vestur af Selvogsvita. Var þá þegar orðið ljóst að um sakamál væri að ræða. Efnt var til minningargöngu um Birnu laugardaginn 28. janúar og er áætlað að rúmlega 10.000 manns hafi gengið upp Laugaveg og að Arnarhóli, þar sem mínútuþögn var haldin í minningu Birnu. Lögðu þátttakendur í göngunni blóm við þann stað á Laugavegi þar sem síðast sást til Birnu í eftirlitsmyndavélum, auk þess sem kveikt var á kertum á Arnarhóli. Voru þrír sjómenn af grænlenska togaranum Polar Nanoq hand- teknir vegna gruns um aðild að morði Birnu og voru tveir þeirra úr- skurðaðir í gæsluvarðhald. Fljótlega beindust böndin að öðrum þeirra, Thomas Möller Olsen, og var hann ákærður fyrir morðið á Birnu og fíkniefnasmygl. Hlaut hann 19 ára dóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir þau brot í lok septembermánaðar. Er um að ræða einn þyngsta dóm í sögu lýðveldisins. Morgunblaðið/Eggert Harmleikur sem skók þjóðina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íbúar höfuðborgarsvæðisins vöknuðu hinn 26. febrúar við það að fallið hafði 51 sentímetri af snjó um nóttina. Var þetta mesta snjódýpt sem sést hafði þar í febrúarmánuði, en gamla met- ið var 48 sentímetrar árið 1952. Olli snjórinn ýmsum vandræðum, sér í lagi fyrir akandi veg- farendur, en aðrir sáu tækifæri í þessu og brugðu á leik í mjöllinni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Snjódýptin aldrei meiri í febrúar Svala Björgvinsdóttir söngkona varð hlutskörpust í undankeppni Ríkisútvarpsins fyrir söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, og hlaut hún því farseðilinn til Kænu- garðs sem þar var í boði. Framlag Svölu, Paper, þótti líklegt til árangurs hjá sumum Eurovision-spekúlöntum, en þegar til kastanna kom náði hún ekki í aðalkeppnina. Morgunblaðið/Eggert Hrærð Svala til Kænugarðs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.