Morgunblaðið - 29.12.2017, Page 29
Stríður straumur ferðamanna kom til landsins á árinu sem er að líða og mátti sjá þá njóta ís-
lenskrar náttúru víða. Þessir ferðamenn nutu sín til að mynda við Gljúfurárfoss, sem einnig er
þekktur sem Gljúfrabúi. Fossinn, sem er í nágrenni Seljalandsfoss, er um 40 metra hár og
fellur ofan í djúpa gjá eins og nafnið gefur til kynna. Hægt er sjá hann í allri sinni dýrð með því
að vaða inn í gljúfrið eða klífa hamravegginn en það kann að reynast lofthræddum ofraun.
Morgunblaðið/RAX
Gljúfrabúi í allri sinni dýrð
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 29
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid forsetafrú tóku á móti fimm sýrlensk-
um fjölskyldum í lok janúar á Bessastöðum. Þrátt fyrir langt ferðalag leyndi gleðin sér ekki
hjá þessum unga dreng og fjölskyldu hans. Benti skoðanakönnun á vegum MMR í febrúar til
þess að tæpt 31% teldi að of fáum flóttamönnum væri veitt hæli hér á landi, en um 24% töldu
fjöldann of mikinn.
Morgunblaðið/Eggert
Tekið á móti flóttamönnum
Hinn 23. júní mátti sjá tignarlega sjón þegar
sex herskip og einn kafbátur sigldu saman
frá Faxaflóa og inn Hvalfjörðinn, með varð-
skipið Tý í broddi fylkingar. Var þess þá
minnst að 75 ár voru liðin frá því að skipalest
bandamanna til Sovétríkjanna, PQ17, var
grandað af kafbátum og herskipum Þjóð-
verja í seinni heimsstyrjöld undan
Noregsströndum, en skipalestin lét úr höfn í
Hvalfirði sumarið 1942. 153 manns fórust
með skipunum og aðeins ellefu af þeim 35
skipum sem lögðu af stað í ferðina náðu til
áfangastaðar síns í Sovétríkjunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Siglt inn
Hvalfjörðinn
Bandaríski verslunarrisinn Costco opnaði í Garðabæ í lok maí, og varð áhrifa verslunarinnar
þegar vart meðal íslenskra neytenda, sem streymdu þar inn og leituðu sér að kjarakaupum
sem aldrei fyrr. Ein af vinsælustu vörunum fyrsta kastið var tveggja metra hár leikfanga-
bangsi sem hreinlega rauk út úr hillunum. Athyglin virðist þó ekki hafa verið öllum bangs-
anna um geð og þessi „örmagna“ bangsi lítur helst út fyrir að vera að reyna að fá sér smá
hænublund áður en fleiri viðskiptavinir koma í heimsókn.
Morgunblaðið/Ófeigur
Bandarískur verslunarrisi
hélt innreið sína á markað
Þeir Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, náðu saman um myndun nýrrar
ríkisstjórnar í upphafi ársins 2016 eftir eina lengstu stjórnarkreppu í manna minnum. Hin nýja
ríkisstjórn hafði einungis eins manns meirihluta og var því ljóst að hennar gætu beðið erfiðir
lífdagar. Bjartsýnin réð þó ríkjum þegar formennirnir þrír undirrituðu stjórnarsáttmálann í
Gerðarsafni í Kópavogi hinn 10. janúar og kynntu hann fjölmiðlum.
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnarsáttmáli kynntur