Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 32
Edu Bayer/The New York Times
Þátttakandi í göngu hvítra þjóðernissinna í
Charlottesville í Virginíu 11. ágúst lyftir hendi
að hætti þýskra nasista. Mótmælagangan
var haldin undir formerki „Sameinum hægri-
öflin“. Mörg hundruð manns tóku þátt og
gengu þátttakendur með logandi kyndla og
hrópuðu rasísk slagorð til að mótmæla fyrir-
ætlunum borgaryfirvalda um að fjarlægja
styttu af Robert E. Lee, sem var hershöfðingi
í liði Suðurríkjanna í þrælastríðinu. Daginn
eftir héldu mótmælin áfram og laust göngu
„með hvítum“ saman við göngu andstæð-
inga þeirra. Eftir á var bifreið ekið inn í hóp
andstæðinganna. 32 ára gömul kona lét lífið
og minnst 19 aðrir hlutu sár. Donald Trump
Bandaríkjaforseti var gagnrýndur víða fyrir
að kenna „ýmsum hliðum“ um ofbeldið.
Öfgaganga leys-
ist upp í ofbeldi
32 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017
Skömmu eftir að Robert Mugabe, sem hafði stjórnað Simbabve frá því að landið fékk sjálf-
stæði 1980, var neyddur til að fara frá í nóvember var Emmerson Mnangagwa, flokksbróðir
hans, settur í embætti. Stjórnmálaskýrendur óttast að Mnangagwa, sem átti þátt í að koma
Mugabe frá, ætli sér að stjórna í anda forvera síns og vera einráður í landinu. Mugabe, sem
er 93 ára gamall, var talinn hafa verið með mikilvægt andóf gegn Vesturveldunum og þrátt
fyrir að hafa verið gagnrýndur fyrir stjórnarhætti sína um langt skeið veitti yfirstjórn hersins
honum og konu hans friðhelgi fyrir málsóknum.
Jekesai Njikizana /Agence France-Presse Getty Images
Robert Mugabe hrökklast frá völdum
Kona situr ásamt barni sínu á svölum Ma’ale Adumim, í ísraelskri landtökubyggð á Vesturbakk-
anum, 29. janúar 2017. Nokkrum dögum eftir að Donald Trump var svarinn í embætti Banda-
ríkjaforseta lýstu ísraelskir embættismenn því yfir að hafist hefði verið handa við að reisa þús-
undir íbúða á svæðinu. Með vind í seglum frá stjórn Trumps, sem er hliðhollari Ísrael en stjórn
Baracks Obama, forvera hans, vonuðust margir ísraelskir harðlínumenn til þess að unnt yrði að
innlima Ma’ale Adumim, sem er eins konar útborg Jerúsalem með 41 þúsund íbúa. Í byggðinni
er einnig nokkurra ferkílómetra svæði, nefnt El zone, þar sem búa um 8.000 bedúínar.
Dan Balilty/The New York Times
Nýjar byggðir á Vesturbakkanum
FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI