Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 35
Björgunarmenn hreinsa rústir byggingar sem hrundi í jarðskjálftanum 19. september. Þetta
var annar skjálftinn sem reið yfir landið á tveimur vikum. Að minnsta kosti 369 manns létu
lífið þegar byggingar hrundu víðs vegar um borgina, þar á meðal Enrique Rebsámen-skólinn
í suðurhluta hennar, þar sem 19 börn og sjö fullorðnir létu lífið þegar skjálftinn reið yfir. Þótt
Mexíkó sé með einhverjar ströngustu byggingarreglugerðir heims getur eftirfylgni með að
þeim sé fylgt verið slök og tilviljanakennd, að hluta vegna þess að eftirliti er útvistað til verk-
fræðinga í einkageiranum sem verktakar ráða.
Adriana Zehbrauskas/The New York Times
Jarðskjálfti skekur
undirstöður Mexíkó
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 35
Park Geun-hye, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, var flutt í varðhald eftir að hún var
handtekin 31. mars. Park var svipt embætti 10. mars og á yfir höfði sér réttarhöld.
Ákærurnar eru í 18 liðum og taka til spillingar, þar á meðal tilrauna til að ná í 5,5 millj-
arða króna í mútur frá fyrirtækjum, suður-kóreska stórfyrirtækinu Samsung meðal ann-
arra. Park varð fyrst kvenna forseti í Suður-Kóreu og er nú fyrsti leiðtogi landsins til að
verða dreginn fyrir dóm í 20 ár. Ef hún verður fundinn sek á hún yfir höfði sér allt að
lífstíðarfangelsi.
Chung Sung-Jun/Agence France-Presse Getty — Images
Forseti Suður-Kóreu
settur af og handtekinn
66% kjósenda í Frakklandi kusu miðjumanninn Emmanuel Macron forseta 7. maí og bundu þar
með enda á vonir Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, sem hafði notið góðs af vaxandi
andstöðu við innflytjendur. Kjör Macrons, sem er 39 ára gamall og yngsti forseti landsins síðan
Napóleon var við völd, var af mörgum talið til marks um að Frakkar hefðu hafnað þeim við-
horfum sem komu fram í ákvörðun Breta um að ganga úr Evrópusambandinu og forsetakjöri
Donalds Trumps í Bandaríkjunum. Um leið var litið á úrslitin sem höfnun á hinni pólitísku valda-
stétt í Frakklandi og þá sérstaklega Sósíalistaflokki François Hollande, fyrrverandi forseta.
Alain Jocard/Pool via The New York Times
Hin nýja ráðastétt í Frakklandi
Lögregla stendur vörð á meðan fólk bíður í röð eftir
að leggja blóm og orðsendingar við bráðabirgða-
minnisvarða nokkrum dögum eftir að 22 létu lífið og
tugir til viðbótar særðust í sjálfsmorðssprengingu í
tónleikahöll í Manchester þar sem söngvarinn Ar-
iana Grande kom fram. Hryðjuverkasamtökin Ríki
íslams lýstu yfir ábyrgð á árásinni, sem var gerð 22.
maí. Þótt lögregla teldi að tilræðismaðurinn, hinn 22
ára gamli Salman Abedi, íbúi í Manchester af líb-
ískum uppruna, hefði verið að mestu einn að verki
lýsti Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, því
yfir að hætta á hryðjuverkum væri með mesta móti.
Var það í fyrsta sinn í áratug sem Bretar lýstu yfir
hæsta viðbúnaðarstigi vegna slíkrar hættu.
Andrew Testa/The New York Times
Tónleikar í Man-
chester enda í sorg
Presidency Press Service via The New York Times