Morgunblaðið - 29.12.2017, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017
Í óstaðfestum minnisblöðum sem breskur njósnari á eftirlaunum setti saman
var því haldið fram að Kremlverjar byggju yfir viðkvæmum upplýsingum um
Donald Trump. Þetta ýtti undir áhyggjur af sambandi forsetans við rússnesk
stjórnvöld. Grunur vaknaði um að Rússar hefðu haft afskipti af bandarískum
stjórnmálum fyrir forsetakosningarnar þegar njósnastofnanir í Bandaríkjunum
bendluðu Kreml við innbrot í tölvukerfi landsnefndar Demókrataflokksins.
Dómsmálaráðuneytið og þingið hófu rannsóknir á þessum ásökunum. Í haust
voru lagðar fram kærur á hendur tveimur fyrrverandi ráðgjöfum Trumps og tveir
aðrir játuðu brot og gengu til samstarfs við rannsakendur.
Janúar
Rússatengsl setja Trump í vanda
GABLE/The Globe and Mail – Toronto í Kanada
Þing Evrópusambandsins lét tilhneiginguna til verndarhyggju, sem hefur farið
um Bandaríkin og Bretland, ekki á sig fá og samþykkti víðtækan viðskiptasátt-
mála milli Kanada og ESB í febrúar. Sáttmálanum, sem var staðfestur 15. febr-
úar, er ætlað að binda enda á 98% tolla og gjalda á útflutningsvörur. Sáttmálinn
tók gildi 21. september, en áhrifa hans mun ekki gæta að fullu fyrr en þjóðþing
allra aðildarríkja ESB hafa samþykkt hann.
Febrúar
Kanada og ESB staðfesta viðskiptasáttmála
PISMETROVIC/Kleine Zeitung – Graz í Austurríki
Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, sneri aftur heim til sín 24. mars
eftir sex ár í fangelsi. Mubarak, sem var við völd í næstum þrjá áratugi, fór af
Maadi-hersjúkrahúsinu í Kaíró eftir að æðsti áfrýjunardómstóll landsins sýkn-
aði hann af ábyrgð á dauða 239 manna fyrir hendi lögreglu í arabíska vorinu í
janúar 2011. Mubarak er 88 ára gamall og hefur verið borinn margvíslegum
sökum, þar á meðal fyrir spillingu og mannréttindabrot frá því að stjórn hans
féll 2011. Flest hafa málin gegn honum runnið út í sandinn, en ekki er þó útséð
um að hann haldi frelsinu. Daginn áður en hann var látinn laus tók dómstóll í
Kaíró spillingarmál á hendur honum upp að nýju.
Mars
Mubarak endurheimtir frelsi sitt
BLEIBEL/Daily Star – Beirút í Líbanon
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, fékk verulega aukin völd þegar kjós-
endur samþykktu 18 stjórnarskárbreytingar í þjóðaratkvæði 16. apríl. Í þeim var
staða forsætisráðherra felld niður og framkvæmdavaldið sett í hendur forset-
anum. Evrópuráðið og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu lýstu yfir áhyggj-
um vegna frétta um að kosningarnar hefðu ekki farið vel fram og fordæmdu
kúgunartilburði Erdogans í kosningabaráttunni. Stjórnarandstæðingar sögðust
ætla að kæra úrslitin – 51,3% samþykktu breytingarnar – fyrir mannréttinda-
dómstól Evrópu.
Apríl
Erdogan styrkir stöðu sína með sigri í þjóðaratkvæði
BLEIBEL/Daily Star – Beirút í Líbanon
Tölvuárás 12. maí á mörg hundruð þúsund fyrirtæki,
háskóla og stjórnarstofnanir víða um heim olli mikl-
um glundroða. Tölvuvírusinn WannaCry breiddist út
og dulkóðaði gögn á rúmlega 200 þúsund tölvu-
kerfum og krafðist lausnargjalds af notendum ef
þeir vildu endurheimta þau. Talið er að Rússland,
Úkraína, Indland og Taívan hafi orðið verst úti.
Leyniþjónustur í Bretlandi og Bandaríkjunum lýstu
yfir grunsemdum um að WannaCry gæti verið upp-
runninn í Norður-Kóreu.
Maí
HAJJAJ/Ad-Dustour – Amman í Jórdaníu
Tölvuglæpur veldur uppnámi um allan heim
ERLENDAR SKOPMYNDIR