Morgunblaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 45
Eitt af síðustu verkum Óttars Proppé á stóli heilbrigðisráðherra var að skipa starfshóp
til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukk-
una hér á landi til samræmis við gang sólar. Flokkur hans, Björt framtíð, þurrkaðist út
af þingi í kosningunum.
Nóvember
Tekist á við tímann
Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafði mikinn meðbyr í skoðanakönnunum og var
fylgið um tíma kringum 30%. Flokkurinn fékk 17% fylgi í kosningunum í október, einu
prósentustigi meira en í kosningunum 2016.
September
Vinstri græn flugu hátt
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 45
Bæjarins beztu eru einn þekktasti og elsti veitingastaður landsins og skylduviðkomu-
staður fyrir ferðamenn. Í júlí var pylsuvagninn fluttur yfir Pósthússtrætið vegna fram-
kvæmda. Milli Tryggvagötu og Hafnarstrætis rís nú hótel. Þegar framkvæmdum lýkur
verður pylsuvagninn fluttur aftur yfir götuna.
Júlí
Framkvæmdir í Reykjavík
Hús Orkuveitunnar er svo illa farið að það myndi kosta 1,7 til 2,9 milljarða króna að
gera við það. Orkuveitan kynnti í ágúst tillögur um hvað ætti að gera við húsið. Ein
þeirra var að rífa það einfaldlega. Hálfan milljarð kostaði að kanna ástandið. Húsið
var reist fyrir rúmum áratug og fór kostnaður fjóra milljarða fram úr áætlun.
Hús Orkuveitunnar illa farið
Ágúst
Október
Kosið enn á ný
Kosið var í október eftir að stjórnin, sem mynduð var eftir kosningarnar haustið 2016,
sprakk. Á einum áratug hefur verið kosið fimm sinnum til Alþingis á Íslandi. Í Réttar-
ríkinu er hætt við að einhverjir verði kindarlegir endurtaki sagan sig á næsta ári.
Morgunblaðið/Þóroddur Bjarnason
Flugvirkjar hjá Flugleiðum fóru í verkfall 17. desember. Mikil röskun varð þegar á
flugi hjá flugfélaginu og mynduðust miklar raðir í Leifsstöð. Deilan var harðvítug og
gengu ásakanir á báða bóga. 19. desember tókust samningar og brátt tókst að
koma áætlunarflugi í réttar skorður.
Desember
Verkfall flugvirkja