Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 46

Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017 Sprunga í fljótandi ísbreiðu við Suðurskauts- landið stækkaði enn og olli því að risastór ís- jaki varð til, hann fór á rek á sjónum. Þetta er góð myndlíking fyrir heim sem finnst hann vera undir þrýstingi og er að búa sig undir, ja hvað sem er – heim sem er reiðubúinn að losna úr hlekkjum og verða frjáls. Hitastig í heim- inum er að hækka, framtíð sannleikans er til umræðu og hættan á kjarnorkuvopnastríði vofir yfir. Við spurðum Hans heilagleika Dalai Lama um það hvernig honum fyndist að við ættum að takast á við þessa stöðu. Við stöndum andspænis tímum mikillar óvissu og uppnáms víða á jörðinni. Þegar rætt er um það hvernig bæta megi heiminn er um- hyggja fyrir öðrum mjög brýn. Framtíð okkar er að miklu leyti í okkar eigin höndum. Við höfum öll getu til að láta gott af okkur leiða fyrir samfélagið. Þótt einstakling- urinn í svo fjölmennum hópi á plánetunni geti virst megna svo lítið til að hafa áhrif á sögu mannkynsins er það persónulegt framlag hvers og eins sem ákvarðar hvert samfélag okkar mun stefna. Hvar sem ég fer lít ég á sjálfan mig sem að- eins einn af sjö milljörðum manna sem nú lifa. Við deilum sameiginlegri grundvallarósk: Við viljum öll eiga hamingjuríkt líf og það er réttur okkar frá fæðingu. Engra formsatriða er gætt þegar við fæðumst og ekki heldur þegar við deyjum. Þess á milli ættum við að meðhöndla hvert annað eins og bræður og systur vegna þess að við eigum þetta sameiginlegt – þrá eftir friði og sátt. Því miður stöndum við frammi fyrir marg- víslegum vandamálum og eigum sjálf sök á mörgum þeirra. Hvers vegna? Vegna þess að við látum kenndir eins og eigingirni, reiði og ótta stýra okkur af leið. Ein áhrifamesta aðferðin til að takast á við svo neikvæð hugsanaferli er að rækta með sér „ást og manngæsku“ með því að hugsa um það sem sameinar alla sjö milljarða manna í heim- inum. Ef við veltum fyrir okkur því sem gerir okkur eins munu múrarnir á milli okkar lækka. Samúð styrkir rósemd okkar og sjálfstraust, gerir stórkostlegri mannlegri greind okkar kleift að virka óhindrað. Samúð með öðrum er okkur meðfædd, hún er í genunum – rann- sóknir hafa sýnt að jafnvel fjögurra mánaða barn finnur til hennar. Rannsóknir hafa marg- sinnis sýnt að samúð með öðrum leiðir okkur til góðs árangurs og lífsfyllingar. En hvers vegna gerum við ekki meira af því að rækta hana á fullorðinsárunum? Þegar við erum reið er dómgreind okkar einhliða vegna þess að við erum ófær um að taka tillit til allra atriða máls- ins. Þegar við erum róleg getum við betur en ella öðlast fulla yfirsýn og íhugað allar að- stæður, hverjar sem þær eru hverju sinni. Mannkynið er auðugt að þeirri fjölbreytni sem eðlilega varð til vegna þess hve heimur mannsins er stór, allt frá margbreytni tungu- málanna og til þess hvernig við fjöllum á ólíkan hátt um félagsleg viðmið okkar og siði. En þeg- ar við leggjum of þunga áherslu á kynþátt, þjóðerni, trúarbrögð, tekjur eða menntunar- stig gleymum við öllu því sem er sameiginlegt okkur. Við viljum þak yfir höfuðið og mat í magann, viljum finna til öryggis og viljum að börnin okkar geti vaxið og orðið sterk. Um leið og við reynum að varðveita eigin menningu og sjálfsvitund verðum við líka að muna að öll eig- um við sameiginlegt að vera mannleg, muna að vinna að því að halda fast við mannkærleika okkar í garð allra. Á síðustu öld leiddi hneigðin til að leysa vandamál með valdi ávallt til eyðileggingar og stöðugra átaka. Ef við viljum að þessi öld verði tími friðar verðum við að leysa vandamál með viðræðum og diplómatískum aðferðum. Þar sem líf okkar er svo samtvinnað eru hagsmunir annarra einnig okkar. Ég álít að þegar menn tileinka sér skoðanir sem valda sundrungu gangi þeir gegn þessum hagsmunum. Gagnkvæmir hagsmunir okkar fela í sér bæði kosti og hættur. Þótt við högnumst á hnattrænum efnahag og getunni til að hafa samskipti og geta vitað samstundis hvað sé að gerast um allan heim fylgja því líka vandamál sem ógna okkur öllum. Loftslagsbreytingar eru líka og ekki síst áskorun sem hvetur okkur til að taka sameiginlega á því að verja al- mannahagsmuni. Við þá sem finnst að þeir séu hjálparvana andspænis hræðilegri þjáningu segi ég að við lifum enn á upphafsárum 21. aldar. Við höfum tíma til að skapa betri og hamingjusamari heim en við getum ekki hallað okkur aftur á bak og vænst kraftaverka. Við verðum öll að gera okkar, fylla líf okkar merkingu og þjóna öðrum – hjálpa öðrum alltaf þegar við getum og leggja okkur fram við að gera þeim ekkert mein. Að takast á við neikvæðar kenndir og sýna öðrum ást og manngæsku er ekki eitthvað sem við ættum að gera í næsta lífi, með himnaríki eða nirvana í huga, heldur ættum við að lifa þannig lífi hér og nú. Ég er sannfærður um að við getum orðið hamingjusamari einstaklingar, hamingjusamari samfélög og hamingjusamara mannkyn með því að rækta mannkærleikann í okkur, með því að leyfa okkar betri manni að sigra. © Dalai Lama. Á vegum The New York Times Syndicate. Loftmynd af Larsen- íshellunni á Suðurskauts- landinu þar sem gríðarlegur ísjaki brotnaði frá henni í júlí. Agence France-Presse — Getty Images Hvernig bægja á örvæntingu frá Hvernig tökumst við á við heim sem er genginn af göflunum? Með því að muna að öll erum við mannleg. 14. DALAI LAMA, TENZIN GYATSO, er andlegur leiðtogi Tíbeta og handhafi friðar- verðlauna Nóbels. Frá 1959 hefur hann verið í út- legð í Dharamsala á norðanverðu Indlandi. Samúð með öðrum er okkur meðfædd, hún er í genunum – rannsóknir hafa sýnt að jafn- vel fjögurra mánaða barn finnur til hennar. Rannsóknir hafa margsinnis sýnt að samúð með öðr- um leiðir okkur til góðs árangurs og lífsfyllingar. VIÐ LÁTUM KENNDIR EINS OG EIGINGIRNI, REIÐI OG ÓTTA STÝRA OKKUR AF LEIÐ ’’ TU RN ING POINTS | TÍM A M Ó T | 2018 |TURNINGPOIN TS |T ÍM A M Ó T | 20 18 |

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.