Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 51

Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 51
Öld andlegra véla, árið 1999 um það sem væri eins og samantvinnuð fyrirheit og ógn, það er að segja gervigreind, nanó-tækni og líftækni. Ég ræði um þrjú skeið sem fólk fer í gegnum þegar það veltir alvarlega fyr- ir sér getu þessara nýju tæknifyrirbæra. Eitt skeiðið veitir okkur innblástur, við sjáum að með þessari tækni getur orðið mögulegt að sigrast á aldagömlum vanda- málum eins og fátækt, sjúkdómum og stuttu lífi. Síðan fara menn að óttast hugsanlegar hættur sem geta fylgt þessari tækni. Að lokum verður jafnvægið meira, menn sjá að hætturnar eru fyrir hendi en við höfum getu til að sigrast á þeim. Spurning úr sal: Um leið og þessir hlutar heimsins þróast hvernig getur tilfinn- ingagreind okkar þá einnig þróast? Ray Kurzweil: Við erum enn með gamla heilann okkar sem útvegar okkur grundvall- arhvatana. Nýbörkurinn, sem umlykur gamla heilann í okkur, er í reynd það sem stýrir okkur upp á við, lyftir okkur upp af flatneskjunni. Það getur verið að í mér séu eldfornar hvatir sem fá mig til að vilja gera árás og ráða yfir öðrum. Nýbörkurinn minn mun fá mig til að hefja mig yfir þær og fá mig til þess að skrifa þess í stað bók um framtíðina eða tala á ráðstefnu fram- kvæmdastjóra tískufyrirtækja. Engin önnur tegund gerir svona hluti. Í nýberkinum er stigveldi, hann er lagskiptur. Neðst er það sem gerir mér unnt að sjá að eitthvað sé bein lína, efst það sem fær mig til að sjá að eitthvað sé skemmtilegt eða háðslegt, eða að einhver sé falleg/fallegur. Við munum bæta fleiri lögum við stig- veldið þegar við getum raunverulega út- víkkað nýbörkinn með því að tengjast til- búnum nýberki í tölvuskýinu. Við verðum skemmtilegri; verðum færari um að tjá ást. Þessar tegundir kennda, þær sem við álít- um að séu fínlegustu og bestu gæði manna, eru efst í stigveldi nýbarkarins. Og við munum efla þær þegar við aukum getu heil- ans í okkur. Spurning úr sal: Hugmyndin um mun lengra líf er spennandi en hvernig munum við leysa vanda eins og nýtingu auðlinda og sjálfbærni þegar lifandi fólki fjölgar? Ray Kurzweil: Við ráðum yfir miklu meiri auðlindum en við þurfum. Framleiðsla á sól- arorku t.d. eykst nú með veldisvexti. Þegar svo verður komið að við fullnægjum allri orkuþörf okkar með sólarorku munum við nýta einn tíuþúsundasta af allri sólarorku. Sama er að segja um jarðvarma, sjávar- fallaorku, vindorku o.s.frv. Við höfum að- gang að mörg þúsund sinnum meiri orku en við þurfum. Landbúnaðarframleiðsla í há- hýsum mun útvega mat á mjög ódýran hátt handa öllum. Við munum á endanum geta notað þrívíddarprentara til að framleiða alla aðra áþreifanlega hluti sem við þurfum, beitt til þess háþróaðri gervigreindartækni eftir 2020 og fullnægt þannig öllum efnis- legum þörfum manna. Isaac Lawrence/AFP/Getty Images Mike Cohen fyrir The New York Times Og við verðum snjallari. Um 2045 munum við auka gáfur okkar og gera þær þúsund milljón sinnum meiri. ’’ MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 51

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.