Morgunblaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 53
tekur breytingum, en hann fer ekki í beinni
línu heldur krókaleiðir. Vígstöðvarnar í kyn-
þáttamálum eru ekki lengur í bresku Indíum.
Þær eru neðar í götunni, hinum megin við
brautarteinana, inni í vestrænum samfélögum.
Evrópuhyggja er liðin tíð. Kyn og kynhneigð
eru vettvangur baráttunnar fyrir því að rífa
niður gamla hugsunarhætti. En það gamla,
sérstaklega þegar það tekur á sig mynd karl-
rembu, fer aldrei burt átakalaust. Það eflir
varnirnar og berst.
Auðvitað mun afturhaldspólitík Trumps
gera lítið eða ekkert fyrir hvíta kjósendur hans
úr stétt verkamanna. Hann býður hins vegar
upp á sjónarspil. Það er hin öfluga lífæð hreyf-
ingar hans að eitthvað virðist vera að gerast.
Stjórnviska er nú svo gamaldags orð vegna
þess að sjónarspilið hefur leyst hana af hólmi.
Skattalækkunartillögur Trumps eru fyrir
hina ríku. Hverja aðra? Á meðan lifa innflytj-
endur í New York og um allt land hræðilega,
myrka tíma. Útlendir verkamenn á bóndabæj-
um eru oft of hræddir til að fara af landareign-
inni. Handtökum innflytjenda án heimilda af
hálfu Innflytjenda- og tollyfirvalda hefur fjölg-
að um 43% miðað við árið á undan frá
embættistökunni fram í byrjun september.
Um öll Bandaríkin er verið að hrifsa foreldra
frá börnum sínum. Ungum innflytjendum, sem
héldu að þeir gætu látið sig dreyma um banda-
ríska framtíð, er neitað um þá framtíð.
Stjórn Trumps hefur blásið til allsherjar-
árásar á hina fátæku, hvort sem þeir þiggja
matarmiða, heilbrigðisaðstoð eða annað frá al-
ríkinu til að milda tilveru sína við lágar tekjur
og eymd. Vanhæfi hefur verið sett á stall í
Washington. Ekki er nóg með að utanríkis-
ráðuneytið hafi verið holað að innan. Land-
búnaðarráðuneytið og Umhverfisverndar-
stofnunin eru ekki langt undan. „Loftslags-
breytingar“ má nú ekki nefna á nafn í opin-
berum kreðsum. Bakvið allan hávaðann í
Trump er að finna ljótleika og grimmd sem
breiðst hefur út um klofin Bandaríki undir
stjórn manns, sem þrífst á óeiningu.
Óveður er í aðsigi. Veðrið sjálft er undarlegt
og ofsafengið. Ótti breiðist út. Friður virðist
brothættari. Tæknin er mikið afl tengingar, en
hún einangrar líka. Einstaklingshyggja smýg-
ur yfir í sjálfsdýrkun. Mörk sannleika og lygi
verða óljós. Heimska og grófleiki ryðja sér til
rúms.
Bandaríkjaforseti tístir um að taka útsend-
ingarleyfið af NBC vegna þess að fréttastofan
sé ekki nógu þjóðrækin. Hér erum við komin á
slóðir Pútíns, Erdogans og Dutertes.
Fólk fer að yppta öxlum. Sumir fagna. Þetta
er hinn nýi raunveruleiki. Trump tístir í al-
vöru: „Hvers vegna ætti Kim Jong-un að
móðga mig með því að kalla mig „gamlan“ þeg-
ar ég myndi ALDREI kalla hann „lítinn og
feitan“? Ó jæja, ég legg svo hart að mér að
vera vinur hans – og kannski mun það gerast
einn daginn!“ Heimurinn verður að komast af
án Bandaríkjanna, sem eru komin í leyfi frá
grunnskóla, og jafnvel án hugmyndarinnar um
Bandaríkin.
Gangi honum vel. Það var tími til kominn,
Pax Americana var tuttugustu aldar fyrirbæri.
Glundroði er örvandi, veitir jafnvel nýtt líf.
Hann refsar fyrir hugsanaleti. Hann brestur á
þegar eitthvað tekur enda. Það hlýtur óhjá-
kvæmilega að vera upphaf einhvers annars.
Auðvitað getur glundroði líka endað með
ósköpum – áður en hann gefur af sér ávexti
sem við getum ekki vitað hverjir verða.
© 2017 Roger Cohen. Á vegum
The New York Times Syndicate.
Doug Mills/The New York Times
Melissa Lyttle fyrir The New York Times
Donald Trump forseti hefur sett aðgerðir
gegn ólöglegum innflytjendum í forgang.
Starfsmaður innflytjendayfirvalda fer hér
yfir upplýsingar um einstaklinga án dvalar-
leyfis áður en sveit hans ræðst til atlögu.