Morgunblaðið - 29.12.2017, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 63
Stjórnarskrárdómstóll Taívans
hefur úrskurðað að lög sem
banna hjónabönd samkyn-
hneigðra brjóti gegn stjórnarskrá
og veitt þingi landsins tveggja
ára frest til að lagfæra núgildandi
lög eða setja ný sem leyfa hjóna-
bönd samkynhneigðra – en ey-
ríkið litla yrði þá fyrst Asíulanda
til að gera það.Sam Yeh/Agence France-Presse — Getty Images
Dómstóll á
Taívan
samþykkir
hjónaband
samkyn-
hneigðra
Til ofbeldis kom í Brasilíu í
apríl þegar lögreglu og
mótmælendum laust sam-
an í fyrsta allsherjarverkfalli
í landinu í tvo áratugi. Laun-
þegar voru ósáttir við
stefnu Michel Temers for-
seta sem vill breyta lögum
um réttindi verkafólks og
rausnarlegum lögum um
eftirlaun. Yasuyoshi Chiba/Agence France-Presse — Getty Images
Fyrsta alls-
herjarverk-
fall í Bras-
ilíu í 20 ár
Kanadíska myntsláttan
gefur út sjálflýsandi mynt
Kanada hefur í tilefni 150 ára afmælis ríkisins gefið út
sína fyrstu mynt sem er sjálflýsandi, glóir í myrkri.
Myntin er tveir Kanadadollarar, nefnist því „toonie“
samkvæmt hefðum þarlendra. Á henni er mynd af
stöðuvatni og himinninn er blágrænn til heiðurs
norðurljósunum.
Vænlegt krabbameinslyf
samþykkt
Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin hefur í fyrsta
sinn samþykkt sölu á lyfi sem getur stöðvað öll
krabbamein með ákveðnum genaeinkennum – án til-
lits til þess um hvaða krabbamein er að ræða. Læknar
hafa árum saman einbeitt sér að því að meðhöndla
krabbameinsfrumur með hliðsjón af því hvar þær eru í
líkamanum. Lyfið Pembrolizumab (sem þekkt er undir
heitinu Keytruda) er ónæmislyf sem sem hindrar
krabbameinsfrumuna í að verja sig fyrir ónæmiskerfi
líkamans.
Að ákvarða foreldri
risaeðluafkvæmis
Steingervingafræðingar hafa í fyrsta sinn ákvarðað
tegund ungans í einu stærsta eggi risaeðlu sem vitað
er um en það fannst í Mið-Kína fyrir nær 25 árum. Vís-
indamennirnir segja að fósturvísirinn steingerði í egg-
inu sé af gerð hins risastóra oviraptorosaurs, fjað-
urskreyttrar eðlu sem var hátt í tonn að þyngd, með
skarpar klær og tannlausan gogg.
Þarf að vara sig á þeim?
Fyrirtæki eru nú í fyrsta sinn í sögunni farin að bjóða
starfsmönnum sínum að komið sé fyrir tæknibúnaði til
auðkennis inni í líkama þeirra. Sænska fyrirtækið Epi-
center gefur starfsmönnum sínum þann kost að þeir
fái sína eigin senditíðni eða RFID með flögu sem
grædd er í hendur þeirra. Bandaríska fyrirtækið Three
Square Market hefur nú fetað í fótspor Epicenter og
gefur sínu fólki þann valkost að fá í sig flögu sem gerir
því m.a. kleift að opna dyr og logga sig inn á tölvuna.
Gagnrýnendur óttast á hinn bóginn að búnaðurinn geti
ógnað persónuvernd.
Líffærafræðin
endurskoðuð
Vísindamenn hafa uppgötvað nýtt líffæri í mannslíkam-
anum. Það er á ensku kallað mesentery, garnahengja
á íslensku og var í fyrstu talið vera hluti af meltingar-
færunum. Rannsakendur á Írlandi hafa hins vegar sýnt
fram á að um sé að ræða sérstakt líffæri – safn vefja
sem liggja að kviðarholinu.
Reem Baeshen/Agence France-Presse — Getty Images
Konur taka við stýrinu í Sádi-Arabíu
Konungur Sádi-Arabíu hefur sent frá sér tilskipun um að aflétt verði banni við að konur
aki bíl í landinu. Tilskipunin, sem mun gera fleiri konum auðveldara að vinna og létta af
þeim þeirri byrði að þurfa alltaf að leigja sér bílstjóra, er í anda þeirrar stefnu krónprins
landsins að efla staðnað efnahagslíf ríkisins. Byrjað verður að gefa út ökuskírteini fyrir
konur í júní 2018.
Fyrsta flugmóðurskipi sem Kínverjar hafa sjálfir smíðað var hleypt af stokkunum í apríl. Skip-
ið, sem ekki hefur enn hlotið nafn, var smíðað á innan við fjórum árum og verður tilbúið í orr-
ustu árið 2020. Og innan við mánuði síðar hóf fyrsta farþegaþotan sem smíðuð er í landinu
sig á loft frá Pudong-alþjóðavellinum í Shanghai. Kínverjar vonast til að geta selt C919-
þotuna á alþjóðamörkuðum.
Li Gang/Xinhua, gegnum Associated Press
Framfarir í kínverskum iðnaði
Maria de Jesus Patricio Martinez,
kona af ættum innfæddra indjána í
Mexíkó, ætlar að bjóða sig fram til
forseta á næsta ári, fyrst kvenna
þar í landi. Martinez, sem oft er
kölluð Marichuy, er heilari frá sam-
bandsríkinu Jalisco og hefur
stuðning Zapatista, vinstrisinnaðs
hóps sem stýrði 12 daga uppreisn
í suðurhluta Mexíkó árið 1994.
Mauricio Lima fyrir The New York Times
Kona hyggst
bjóða sig fram
til forseta í
Mexíkó