Morgunblaðið - 29.12.2017, Síða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29.12. 2017
Á myndinni hér fyrir ofan er tíst frá Margreti
Vaff sem ég rakst á á dögunum og vísar í nokk-
uð sem margar konur þekkja, þ.e. að það getur
verið snúið að koma karlmanni í skilning um að
konan sem þeir leita á hefur engan áhuga á
þeim – nema grípa til örþrifaráða.
Tístið hefur líklega verið skrifað í hálfkær-
ingi, en í því er sannleikskorn, því árið sem nú
rennur sitt skeið hefur sýnt og sannað að kon-
ur þurfa að búa við stöðuga áreitni, margar frá
barnsaldri, flestar frá kynsþroskaaldri og
eiginlega allar þegar allt er talið. Karlar hafa
svarað því til að það áreiti ekki allir karlar, en
það verða eiginlega allar konur fyrir áreitni.
Nafnlausar sögur
Vestan hafs hrapaði hver stjarnan af annarri á
árinu, fyrst Bill O’Reilly, þáttarstjórnandi hjá
Fox-sjónvarpsstöðinni, sem varð að víkja
vegna hegðunar sinnar í apríl, og eftir það
hver af öðrum, sjálfsagt frægastur (alræmd-
astur) óbermið Harvey Weinstein, en eftir að
flett var ofan af honum tóku konur að tísta um
reynslu sína við myllumerkið #MeToo, fyrst
leikkonan Alyssa Milano sem nýtti þar baráttu
Tarana Burke fyrir því að fletta ofan af kyn-
ferðislegu ofbeldi, en myllumerki er notað til
að tengja saman færslur, eða tíst, á Twitter.
Sögurnar sem birst hafa um allan heim
undir #metoo-myllumerkinu eru langflestar
nafnlausar, enda ætlaðar til að opna augu
fólks, sýna hve vandamálið er almennt frekar
en að klekkja á einstaklingum, þó að vissulega
hafi nöfn mestu lúðanna spurst út eins og
dæmin sanna.
103 karlar, 2 konur
Á lista sem Vox-vefritið heldur úti má lesa 103
nöfn karla og 2 nöfn kvenna úr menningarlíf-
inu, viðskiptum, fjölmiðlun, stjórnmálum og
veitingahúsarekstri sem sökuð hafa verið um
misalvarlega kynferðislega áreitni, allt frá
klúru orðfæri til nauðgunar. Í upptalningu Vox
er tíundað hver afdrif viðkomandi hafa orðið,
allmargir hafa verið reknir, þurft að draga sig í
hlé eða sæta jafnvel lögreglurannsókn vegna
alvarlegustu brotanna.
Karlarnir og konurnar tvær sem nefnd eru á
viðkomandi lista eiga það sameiginlegt að eiga
mikið undir sér, að vera í valdastöðum, hafa
mannaforráð eða vald til að hlutast til um
ráðningar eða frama annarra. Við tölum um
kynferðislega áreitni, en sú áreitni hefur oft á
sér blæ valdníðslu, frekar en eðlunarfýsnar.
Frásagnir íslenskra kvenna
Hér á Íslandi hafa menn líka þurft að taka
pokann sinn, verið reknir eða sagt sig frá verk-
efnum og eflaust eiga fleiri eftir að gjalda fyrir
gjörðir sínar. Íslenskar konur hafa skýrt frá
sinni upplifun, nauðgunum, káfi, klámi og kyn-
ferðislegum ruddaskap; konur í sviðslistum og
kvikmyndagerð, heilbrigðiskerfinu, stjórn-
málastarfi, tækni- og hugbúnaðariðnaði, vís-
indum og akademísku starfi, innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, í fjölmiðlun, tónlist, réttar-
gæslu, íþróttum og úr menntageiranum svo
nokkuð sé nefnt.
Sögurnar eru áþekkar þeim sem heyrst hafa
vestan hafs og umræðan í kjölfarið á þessum
sögum hefur einnig verið áþekk, til að mynda
heyrist oft það viðkvæði að ekkert megi menn
gera lengur, að mannkyn muni deyja út ef
körlum verði bannað að áreita konur, káfa á
þeim og klæmast við þær, sem bendir náttúr-
lega til þess að margir karlar eigi erfitt með að
greina á milli ofbeldis og kynlífs.
Einnig heyrist oft að með kröfunni um að
þeir sem áreita konur hverfi úr valdastólum og
stjórnunarstöðum sé verið að svipta sam-
félagið kröftum manna sem margir hverjir eru
hæfileikamiklir og hugmyndaríkir atorku-
menn. Á móti má nefna það að þessir menn, og
ekki bara þeir sem afhjúpaðir hafa verið, held-
ur einnig sá grúi sem enn er að störfum á öll-
um þeim sviðum samfélagsins sem nefnd hafa
verið, hafa komið í veg fyrir að hæfileikamiklar
og hugmyndaríkar atorkukonur fengju að
leggja samfélaginu lið.
Því hefur verið haldið fram að skýra megi þá
staðreynd að það séu ekki fleiri konur í emb-
ættum og valdastólum með því að þær hafi
minni áhuga á slíku starfi en karlarnir, að þær
forgangsraði öðruvísi í lífinu. #metoo-bylting
ársins 2017 hefur aftur á móti sýnt fram á það
að konur hafa ekki fengið framgang í sam-
félaginu eftir verðleikum sínum vegna þess að
þær hafa þurft að glíma við kvenfyrirlitningu
og kynferðislegan níðingshátt karla. Fyrir vik-
ið höfum við farið á mis við marga frábæra
arkitekta, snjalla vísindamenn, stjörnulög-
fræðinga, skapandi leikstjóra, stórbrotna
stjórnmálamenn og víðsýna ritstjóra – vegna
þess að þær voru konur.
Trúum konum
Árið 2014 varð til Facebook-hópurinn Beauty
Tips og fljótlega mjög fjölmennur. Árið 2015
tóku konur að segja frá reynslu sinni af al-
mennu ofbeldi og kynferðislegu ofbeldi inni í
hópnum til þess að mótmæla þöggun um kyn-
bundið ofbeldi og notuðu myllumerkin #þögg-
un og #konurtala. Sama ár varð til hreyfing
sem kallaðist #freethenipple og byggðist á því
að konur lýstu því yfir að þær réðu eigin
líkama. Nú þegar #metoo-byltingin stendur
sem hæst er eðlilegt að velta því fyrir sér hvað
muni breytast og hvort eitthvað muni
breytast.
Þessi bylting er kennd við myllumerki, og á
uppruna sinn á samfélagsmiðlum. Konur hafa
margar nýtt það málfrelsi og samtakamátt
sem samfélagsmiðlarnir gefa, fengið röddina. Í
bókinni Women and Power fjallar Mary
Beard, prófessor í klassískum fræðum við
Cambridge-háskóla, um það hvernig konum
hefur verið haldið utan við samfélagslega um-
ræðu með því, meðal annars, að gera beinlínis
lítið úr röddum þeirra og þá um leið að gera lít-
ið úr skoðunum þeirra. Það þekkja og flestar
ef ekki allar konur að á þær var ekki hlustað
þegar þær kvörtuðu yfir áreitni eða yfirgangi
karla, þeim væri nær að þegja og þola.
Helsti og besti afrakstur #metoo-bylting-
arinnar væri ef við hleypum röddum kvenna
inn í samfélagsumræðuna, hlustum á þær
raddir og trúum konunum. Hingað til höfum
við trúað körlunum og þess vegna erum við
þar í dag sem við viljum ekki vera.
Fimmtán konur lásu upp
#metoo-frásagnir
kvenna úr ýmsum áttum
í Borgarleikhúsinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd/Sigfríð Hallgrímsdóttir
Hlustum á konur
Á árinu 2017 gerðu konur víða um heim uppreisn undir myllumerkinu #metoo. Þær skýrðu frá viðvarandi áreitni
og yfirgangi karla og í ljós kom að þótt ekki áreiti allir karlar hafa allar konur orðið fyrir misalvarlegri áreitni.
ÁRNI
MATTHÍASSON
Árni Matthíasson hefur sinnt ýmsum störfum á
Morgunblaðinu frá 1982 og mbl.is frá 1997.
Við tölum um kynferðislega áreitni, en
sú áreitni hefur oft á sér blæ valdníðslu,
frekar en eðlunarfýsnar.
#METOO-BYLTINGIN
’’
TU
RN
ING POINTS | TÍM
A
M
Ó
T
|
2018
|TURNINGPOIN
TS
|T
ÍM
A
M
Ó
T
|
20
18
|
Ellefu konur lásu upp #metoo-frásagnir sínar í
Herðubreið, félagsheimili Seyðfirðinga.
Fjölbreyttur hópur kvenna
las #metoo-frásagnir í
Samkomuhúsinu á Akureyri.