Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Árekstrahrina í ísingunni  „Slæmt þegar götur eru hvorki salt- né sandbornar,“ segir fulltrúi Árekstur.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fljúgandi hálka var á íbúðagötum á höfuðborgarsvæðinu í gær og mikið um umferðaróhöpp af þeim sökum. Starfsmenn frá Árekstur.is sinntu alls 50 útköllum í gær, litlum sem stórum. Í götu í austurbæ Kópavogs urðu óhöppin alls þrjú. „Þegar göt- urnar eru hvorki salt- né sandbornar gefur hálkan ekkert eftir. Engu breytir á hvernig dekkjum bílarnir eru eða þótt hægt sé farið. Ökumenn einfaldlega missa stjórn á bílunum og ráða ekki við aðstæður. Í gær gerðist það til dæmis að bíll á ferð lenti á öðrum og saman runnu þeir tveir á kyrrstæðan bíl,“ segir Krist- ján Kristjánsson, rekstrarstjóri hjá Árekstur.is. Bregðast við athugasemdum Vegna ástandsins segir Kristján að starfsmenn Áreksturs hafi þrá- sinnis sett sig í samband við þjón- ustuver sveitarfélaganna og óskað eftir því að íbúðagötur þar sem er hálka og hætta á umferðaróhöppum og jafnvel slysum verði saltbornar. Þeim ábendingum hafi ekki verið sinnt. „Þetta er slæmt þegar sparn- aður kemur fram svona. Þó eru stofnbrautir og aðalgötur saltbornar og þar urðu ekki neinir árekstrar sem til okkar kasta komu,“ segir Kristján. „Við erum með fullt afl úti og fjöldi saltbíla er á ferðinni. Við gefum ekk- ert eftir í vetrarþjónustu á götum bæjarins og ekkert er til sparað,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri í Kópavogi. Hann segir að eðli- lega sé mest áhersla lögð á þjónustu á fjölförnum götum og húsagötum í brekkum. Það sé eðlileg forgangs- röðun. Reynt sé að bregðast við öll- um athugasemdum fljótt og vel en stundum geti aðstæður til dæmis verið fljótar að breytast og ísing myndast á svipstundu um allan bæ. Mynd/Árekstur.is Óhapp Þrír í einni kös í gær. Sigtryggur Sigtryggsson Höskuldur Daði Magnússon Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- SYN, verður ekki leigð í verkefni er- lendis á næstunni eins og stefnt var að. Þetta varð ljóst eftir fund stjórn- enda Landhelgisgæslunnar með embættismönnum í dómsmálaráðu- neytinu í vikunni. Morgunblaðið greindi frá því á laugardag að TF-SYN yrði leigð út í að minnsta kosti tvo mánuði til að loka gati sem myndaðist við lækkun fjárheimilda til Landhelgisgæslunn- ar í fyrra. Í gær sagði blaðið svo frá því að tvær björgunarþyrlur, TF- LIF og TF-GNA, færu í stóra skoð- un á árinu og yrðu ekki í notkun í 6-8 vikur hvor. Í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins upplýsti Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, um áður- nefndan fund. „Niðurstaða þess fundar var að TF-SYN yrði ekki framleigð að svo stöddu. Í staðinn ætti Landhelgis- gæslan að leita leiða til að hækka sértekjur með öðrum hætti eða grípa til annarra aðgerða til að bregðast við fyrrnefndri lækkun á fjárveiting- um. Skoðun á öðrum möguleikum til tekjuöflunar stendur nú yfir en niðurstaðan liggur ekki fyrir,“ segir Sveinn. „Vélarbilun í TF-GNA, sem nú er verið að lagfæra, sýnir í þessu sam- hengi hve lítið má út af bera svo Landhelgisgæslan hafi aðeins eina þyrlu til umráða. Sú staða myndi þýða að ekki væri hægt að ráðast í leit og björgun lengra en tuttugu sjó- mílur frá landi.“ Ekki náðist í Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra vegna málsins í gær. Hætt við að leigja þyrluna  Landhelgisgæslan leiti leiða til að hækka sértekjur með öðrum hætti  Lítið má út af bera í þyrluflota Gæslunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Björgun Þyrlur Landhelgisgæsl- unnar, TF-SYN og TF-LIF. Karlmaður á þrí- tugsaldri var í gær fundinn sek- ur um manndráp af gáleysi vegna banaslyss sem varð við Jökuls- árlón í ágúst 2015. Refsing hans er tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi auk þess sem hann er sviptur öku- réttindum í hálft ár. Maðurinn var skipstjóri á hjólabát sem var bakkað yfir kanadíska konu við Jökulsárlón. Konan, Shelagh D. Donovan, féll við og lenti undir hægra afturhjóli ökutækisins með þeim afleiðingum að hún hlaut fjöl- áverka og lést nær samstundis. Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa kom fram að mað- urinn hafði ekki réttindi til að stýra bátnum. Þar segir að bakkmyndavél hafi verið biluð í bátnum. Þá hafi hvorki skipstjórinn né annar starfs- maður gengið úr skugga um að hættulaust væri að aka aftur á bak. Sekur um manndráp af gáleysi Hjólabátur Konan lést árið 2015.  Kanadabúi lést Guðni Th. Jó- hannesson, for- seti Íslands, flyt- ur í hádeginu í dag erindið „Skjöl skapa þjóð. Lands- bókasafnið og mótun minninga í aldir tvær“ í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu. Um er að ræða fyrsta erindið af ell- efu í fyrirlestraröð í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafnsins á þessu ári. Í útdrætti erindisins segir m.a.: „Engin er þjóðin án sögu. Engin er sagan án heimilda. Þær eru festar í minni fólks, skráðar á skinn eða blað. Í þessu erindi verður fjallað um Íslendinga, hvernig þeir sköp- uðu sér sögu og urðu þjóð meðal þjóða, og hvernig því verki vindur fram í straumum alþjóðavæðingar og erlendra áhrifa nú á dögum.“ Flytur er- indi um sögu og skjöl Guðni Th. Jóhannesson Nú þegar kominn er 11. dagur janúarmánaðar er daginn farið að lengja talsvert svo góður munur er frá því sem var um vetrarsólstöður. Það sam- spil myrkurs og ljóss er alltaf spennandi, sérstaklega í eftirmiðdaginn þeg- ar birtu bregður og litir sólarlagsins fylla himininn allan. Slíkt fer ekki fram hjá vökulum augum ferðamanna sem þá bregða myndavélum sínum og símum á loft og fanga fegurð stundarinnar. Nú sem endranær er mikill fjöldi ferðamanna á landinu. Í miðbæ Reykjavíkur sést fólk alls staðar að úr veröldinni sem finnst það vera ævintýri að spóka sig um í þessari nyrstu höfuðborg í heimi, þar sem í dag og næstu daga má búast við ausandi rign- ingu eins og víða annars staðar á landinu. Ferðamenn horfa á roðann í Reykjavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.