Morgunblaðið - 11.01.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s:781-5100
Opnunartími:
ÚTSALA! 30-40% AFSLÁTTUR!
Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Sundbolir
Stórútsalan hafin
Vetraryfirhafnir
GERRY WEBER - BETTY BARCLAY
Gæðafatnaður
30-50% afsláttur
Skipholti 29b • S. 551 4422
www.laxdal.is
BioCraft myndi hljótast af veruleg
sjón- og hljóðmengun, íbúum til ama.
Þá kemur fram ábending í umsögn
Heilbrigðiseftirlitsins um að gera
þurfi grein fyrir áhrifum rekstrar á
hljóðvist í nágrenni við vindmyllurn-
ar og jafnframt að framkvæmdin
geti haft áhrif á landnotkun nær-
liggjandi jarða, að teknu tilliti til tak-
markana vegna hávaðamarka.
Ekki náðist í Steingrím Erlings-
son í gær en að sögn Þorgils Torfa
vildi BioCraft setja upp stærri vind-
myllur m.a. í ljósi þess að sama stærð
sé ekki fáanleg. Þorgils Torfi bendir
á að fyrirtækið hafi fulla heimild til
að endurnýja vindmyllurnar í núver-
andi stærð.
BioCraft hefur áður kynnt hug-
myndir um að reisa vindorkugarð í
Þykkvabæ með allt að 13 vindmyll-
um. Að sögn Þorgils vinnur sveitar-
félagið að gerð aðalskipulags og
stefnumótunar um byggingu vind-
mylla í sveitarfélaginu.
Búrfellslundur í endurskoðun
„Efasemdir hafa verið uppi um að
það henti að vera með vindmyllu-
garða í miðri byggð og verið talið
eðlilegra að vindmyllur rísi í jaðri
sveitarfélagsins, á hálendinu eða
jafnvel við ströndina,“ segir Þorgils
Torfi og vísar þar m.a. til áforma
Landsvirkjunar um Búrfellslund.
Þar hefur fyrirtækið verið með tvær
vindmyllur í gangi á Hafinu við Búr-
fellsvirkjun. Þær hafa gefist vel og
hefur Landsvirkjun haft uppi áform
um vindorkuver á sömu slóðum, í
Búrfellslundi. Unnið var mat á um-
hverfisáhrifum fyrir allt að 200 MW
vindorkuver. Lagði Landsvirkjun
fram þrjár tillögur og afmarkast
þær bæði innan Rangárþings ytra
og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Skipulagsstofnun gerði í áliti sínu at-
hugasemdir við áformin og taldi þau
m.a. of umfangsmikil. Hefur Lands-
virkjun haft þessar athugasemdir
stofnunarinnar til athugunar.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
hefur einnig gert athugasemdir við
Búrfellslund, einkum vegna álagn-
ingar fasteignagjalda, sem hreppur-
inn telur að ættu að vera mun hærri.
Stefna liggur ekki fyrir
Fyrir tveimur árum sóttu eigend-
ur jarðanna Guðnastaða og Butru í
Austur-Landeyjum, í samvinnu fyrir
félagið Arctic Hydro, um leyfi til
Rangárþings eystra til að reisa vind-
orkuver. Ísólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri Rangárþings eystra,
segir málið hafa verið til umfjöllunar
án þess að endanleg afstaða liggi
fyrir. Áhuginn sé enn til staðar hjá
umsækjendum.
„Við höfum verið að bíða eftir af-
stöðu stjórnvalda til málsins og leit-
uðum til Skipulagsstofnunar,“ segir
Ísólfur en svar barst frá stofnuninni
núna um áramótin.
Þar kemur sem fyrr segir fram að
ekki sé búið að móta sérstaka stefnu
um vindmyllur en frekari leiðbein-
ingar séu væntanlegar á þessu ári
um hvernig beri að haga sér við leyf-
isveitingar og skipulagsmál.
Rangárþing eystra spurði einnig
um kostnaðarþátttöku við gerð aðal-
skipulags vegna vindorkuvera.
Skipulagsstofnun segir að til þessa
hafi aðeins verið komið að kostnaði
við heildarendurskoðun aðalskipu-
lags, ekki við breytingar á því. Stofn-
unin telur þó koma til álita að breyta
þessu og hyggst kynna tillögur þess
efnis á þessu ári.
Myllur mæta mótvindi
Andstaða íbúa við endurnýjun BioCraft á vindmyllum í Þykkvabæ Sveitar-
stjórn frestaði afgreiðslu Rangárþing eystra kallar eftir stefnu stjórnvalda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vindmyllur Fyrirtækið BioCraft reisti tvær vindmyllur í Þykkvabæ en önnur þeirra eyðilagðist í eldi síðastliðið
sumar. Í kjölfarið fór BioCraft í það að endurnýja mannvirkin og sótti um leyfi fyrir stærri vindmyllur.
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Mikil andstaða hefur verið meðal
íbúa í Þykkvabæ við þessi áform og
við vildum taka tillit til þess,“ segir
Þorgils Torfi Jónsson, formaður
skipulags- og umferðarnefndar
Rangárþings ytra, en nefndin hafn-
aði nýverið beiðni BioCraft um að
setja upp stærri vindmyllur í
Þykkvabæ en eru þar fyrir. Sveitar-
stjórn staðfesti ekki ákvörðun nefnd-
arinnar á fundi sínum í gær, heldur
frestaði afgreiðslu málsins að beiðni
BioCraft.
Áform um vindorkugarða hafa
verið víðar uppi um landið, án þess
að hafa gengið í gegn. Rangárþing
eystra hefur verið með til umfjöllun-
ar beiðni um vindmyllur í Austur-
Landeyjum. Hefur sveitarfélagið
kallað eftir svörum frá stjórnvöldum
um stefnu tengda vindorkumálum og
skipulagsmálum.
Í nýlegu svari Skipulagsstofnunar
til Rangárþings eystra segir m.a. að
ekki hafi verið mótuð sérstök stefna
um vindmyllur en stofnunin hyggst
uppfæra leiðbeiningar um skipulags-
mál vindorkunýtingar. Verða þessi
mál rædd á stjórnarfundi Sambands
íslenskra sveitarfélaga á morgun.
Undirskriftir í Þykkvabæ
Steingrímur Erlingsson hjá Bio-
Craft lagði sl. haust fram tillögu að
deiliskipulagi fyrir endurnýjun á
vindmyllum sínum í Þykkvabæ.
Breytingin fól í sér hærra mastur og
lengri spaða en eru á núverandi vind-
myllum, en önnur þeirra brann sl.
sumar.
Meðal annars eru athugasemdir
gerðar við nálægð við mörk jarðar-
innar Smáratúns. Nálægðin leiði af
sér skerðingu á framtíðaráformum
landeiganda á uppbyggingu jarðar-
innar.
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra
barst einnig undirskriftalisti frá 61
íbúa þar sem gerðar eru athuga-
semdir við að með samþykkt tillögu
Meðal þeirra aðila sem hafa sýnt áhuga á að reisa vindmyllur hér á landi
á undanförnum árum er þýska fyrirtækið EAB New Energy. Var undirrituð
viljayfirlýsing þar að lútandi með Norðurþingi, Grindavíkurbæ, Rang-
árþingi ytra og Fallorku í Eyjafirði. Ekkert af þessum verkefnum hefur
komist af stað.
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, segir hugmyndum um
vindorkuver í Eyjafirði ekki hafa verið ýtt út af borðinu. Önnur verkefni
hafi verið ofar á forgangslistanum, eins og ný vatnsaflsvirkjun.
Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, segir engin sam-
skipti hafa verið við þýska orkufyrirtækið um nokkurt skeið. „Sveitarfé-
lagið hefur heldur ekki ýtt á eftir því að þráðurinn verði tekinn upp aft-
ur,“ segir Kristján Þór.
Áhugi á að reisa vindmyllur
ÞÝSKT FYRIRTÆKI UNDIRRITAÐI VILJAYFIRLÝSINGU
Íslendingar nota meira af sumum
tegundum ávanabindandi lyfja en
flestar aðrar þjóðir. Þá fengu tæp
19,4% íbúa á Íslandi ávísaða ópíóíða
á seinasta ári, en einungis um 7,8%
íbúa í Danmörku, 7,7% íbúa í Sví-
þjóð og 10,7% íbúa í Noregi. Þetta
kemur fram í frétt á vef Embættis
landlæknis í gær.
Þar segir að almennt séu íslensk-
ir læknar á varðbergi gagnvart
misnotkun og flestir ávísi ávana-
bindandi lyfjum í litlum mæli.
Vandinn sé því aðeins bundinn við
tiltölulega fámennan hóp lækna.
Orsakir mikillar notkunar eru tald-
ar tengjast fólksfjölgun og hækk-
andi meðalaldri sem kalli á meiri
notkun lyfja.
Meiri notkun ávana-
bindandi lyfja