Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Ljósmynd/Getty Images Samspil þarma og heila Örverurnar í þörmunum geta haft beint samband við heilann um skreyjutaugina. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Þarmarnir eru stórkostlegtlíffæri,“ segir breski lækn-irinn Michael Mosley í inn-gangsorðum nýjustu bók- ar sinnar Bætt melting – betra líf, sem nýverið kom út í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Síðan heldur Mosley áfram á persónu- legum nótum eins og honum er lag- ið, segir frá sjálf- um sér og beinir orðum sínum til „okkar“ eins og hann gerir reynd- ar bókina á enda: „Þegar ég var í læknanámi vildu margir félagar mínir læra um heilann og verða svo heilaskurð- læknar eða þá hjartalæknar. Ég heyrði aldrei nokkurn mann segja að hann ætlaði að helga líf sitt melt- ingarveginum. Og samt er hann al- veg einstakur – líkamshluti sem er tiltölulega lítt kannaður og ég hef nýlega orðið alveg hugfanginn af. Undanfarin ár hafa feiknamiklar rannsóknir farið fram á lífinu í meltingarvegi okkar og breytt skiln- ingi okkar á því hvernig líkami okk- ar vinnur.“ „Myrkur og saggafullur heimur“ Mosley býður lesendum með sér í ferðalag um þennan lítt kann- aða líkamshluta sem meltingarveg- urinn er og ekki síst þarmana, þar sem milljarður örvera vinnur verk sín. Lýsing hans á heimi þarmaflór- unnar er myndræn, nánast eins og í hryllingssögu: „Þar til nýlega var heimur þarmaflórunnar myrkur, saggafullur og heimullegur. Þarna niðri lifa verur sem hafa aldrei séð dagsbirtu, meira en 50 billjónir tals- ins, að minnsta kosti þúsund mis- munandi tegundir, meiri líffjöl- breytni en við finnum í regn- skógunum.“ Að sögn Mosleys hafa þarm- arnir gríðarlega merkilegu hlutverki að gegna því þeir vinna orku úr fæð- unni, bera ábyrgð á ónæmiskerfinu og framleiða á þriðja tug hormóna sem hafa áhrif á allt frá matarlyst yfir í skapsveiflur. Ferðalagið um Ferðalag um meltingarveginn Bætt ónæmiskerfi, minni sykurlöngun, færri auka- kíló er undirtitill bók- arinnar Bætt melting – betra líf eftir lækninn Michael Mosley, sem sumir telja helsta heilsu- gúrú heims. Bókartitill- inn er óneitanlega býsna geðþekkur. Höfundurinn Michael Mosley. meltingarveginn og þarmana er ómaksins vert, enda engin lognmolla kringum fararstjórann Michael Mosley. Hann er íslenskum sjón- varpsáhorfendum að góðu kunnur fyrir fjölda þátta um heilsu og holl- ustu sem hann hefur gert fyrir BBC og sýndir hafa verið á RÚV í áranna rás. Einnig hafa margir efalítið lesið hans fyrri bækur, 5:2 mataræðið og 8 vikna blóðsykurkúrinn. Þarmatilfinningar og -hugboð Ein ástæða þess að Mosley skrifaði Bætt melting – betra líf er sú að hann er sannfærður um að marga meltingarkvilla sé betra að lækna með breytingum á mataræði en sýkla- og geðlyfjum. Hann segir ofnotkun sýklalyfja, ruslfæði og kyrrsetu nánast hafa eytt ýmsum góðum bakteríum úr þörmunum en slíkt geti meðal annars valdið fæðu- óþoli og offitu. Í bókinni fjallar hann mikið um samspil þarma og heila og þau nýju vísindi sem tengjast því. Þess má til gamans geta að á frummálinu heitir bókin The Clever Guts Diet, sem á íslensku er orðrétt Snjalla matar- æðið fyrir þarmana. Lætur ekki beinlínis vel í eyrum. Á ensku er tal- að um „gut feelings“ og „guts in- stincts“ sem merkir þarmatilfinn- ingar og þarmahugboð og speglar að mati Mosleys hversu samtvinnaðir þarmar og heili eru. Hann tekur fram að bókin fjalli ekki um hvernig eigi að grennast, hins vegar gæti það gerst ef þú borðar matinn sem hann mælir með og gerir það sem hann leggur til. Í lokakaflanum eru uppskriftir frá næringarfræðingi og heimilisfræðingi að réttum sem bæta meltinguna. Áhrifamiklir ættbálkar Fyrstu kaflana um meltingar- veginn skrifar Mosley sem ferða- sögu um sín eigin innyfli. Hann greinir frá hvað meltingarvegurinn gerir og hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis. Því næst kynnir hann fyrir lesendum töfraheim þarmaflór- unnar og suma áhrifamestu ætt- bálka sem þar eiga heima. Þá fer hann nokkrum orðum um leiðir sem þarmaflóran notar til að hafa áhrif á okkur og vísindalega prófaðar að- ferðir til að halda henni í góðu lagi. Í lok ferðar hafa lesendur efa- lítið sannfærst um að meltingin er grunnur allrar starfsemi líkamans og hefur áhrif á andlega jafnt sem líkamlega líðan. Og að rangt mat- aræði og óhollir lifnaðarhættir rugla þarmana í ríminu. Í kaflanum Matur fyrir klára þarma fjallar Mosley um edik úr eplasafa: „Þú hefur kannski ekki bragðað kimchi eða kefír en sennilega hefurðu prófað eplaedik. Það er gerjuð fæðutegund sem er mjög vinsæl nú um stundir […] Leikkonan Scarlett Johansson þvær sér víst í framan með þynntu eplaediki og heimskautafarinn sir Ranulph Fienn- es hrósar því mikið og segist halda gigtinni í skefj- um með því að drekka ediksblöndu (fjórir hlutar eplaedik og einn hluti hráhunang): Enn magnaðri meðmæli koma frá Hippókrates frá Kos sem oft er kallaður „faðir nútímalæknisfræði“. Hann trúði mjög á hæfni líkamans til að lækna sjálfan sig. Til að hjálpa líkamanum í gang lagði hann oft til að fólk notaði eplaedik og föstur. Hann lýsti föstum sem „lækninum inni fyrir“ og staðhæfði að neysla matar þegar fólk er sjúkt nærði bara sjúkleikann. Hvað edik varðar mælti hann með því til marg- víslegra nota, allt frá því að hreinsa sár yfir í að losna við langvarandi hósta. En hefur edik í rauninni nokkurn lækningamátt?“ spyr Mosley, sem ásamt dr. James Brown við Aston-háskólann reyndi að komast að því: „Það fyrsta sem við ákváðum að prófa var hvort nokkrar teskeiðar af ediki fyrir mat hjálpuðu til við að halda blóðsykrinum í skefjum og koma í veg fyrir snögga hækkun hans. Við byrjuðum á því að fá nokkra heilbrigða sjálfboðaliða og báðum þá að borða eina beyglu. James mældi blóðsyk- urinn á undan og eftir. Eins og við bjuggumst við hækkaði blóðsykurinn mikið og hratt við beygluátið. Daginn eftir báðum við sjálfboðaliðana að borða eina beyglu en nú þurftu þeir að drekka lítið staup af þynntu epla- ediki á undan. Það dró úr sykurmagninu sem fór út í blóðið um næstum 50 prósent. James varð himinlifandi yfir þessari niðurstöðu.“ BROT ÚR BÓKARKAFLA Scarlett Johansson Matur fyrir klára þarma Þeir sem þykir kominn tími til að upplifa undur Færeyja, fræðast um sögu þjóðarinnar og njóta Ólafsvöku með heimamönnum ættu að bregða sér á kynningarfund á ferð til Fær- eyja á vegum Ferðaskrifstofunnar Mundo. Fundurinn er haldinn kl. 18-19 í kvöld, fimmtudaginn 11. janúar, á 3. hæð í frumkvöðlahúsinu við Eiðis- torg. Í ferðinni sem fyrirhuguð er 27. júlí til 1. ágúst næstkomandi verða helstu sögustaðir heimsóttir, gengið í fót- spor þekktra Færeyinga, s.s. Þrándar í Götu, Sigmundar Brestissonar og Williams Heinesens. Fararstjóri er Torfi H. Tulinius. Á slóðum Færeyinga sögu Færeyinga saga er merkileg forn- saga sem segir frá átökum litríkra höfðingja í Færeyjum í aðdraganda kristnitökunnar. Þar takast á kappinn Sigmundur Brestisson, fulltrúi kristni og konungsvalds, og hinn læ- vísi heiðingi Þrándur í Götu sem svífst einskis í viðureign sinni við andstæðinga sína. Þótt Færeyinga saga sé skrifuð af Íslendingi byggist hún vafalítið á munnmælum úr eyj- unum og teygja söguslóðir hennar sig víða um þær, frá Austurey til Suð- ureyjar. Í ferðinni verður farið á staði sem tengjast eftirminnilegum at- burðum í sögunni, m.a. í Götu og Skúfey, aðsetur þeirra Sigmundar og Þrándar. Gestafyrirlesari í ferðinnier Dr. Jó- annes Dalsgaard. Ferðalangar taka einnig þátt í há- tíðarhöldum Ólafsvöku. Í Þórshöfn verður boðið upp á gönguleiðsögn um helstu sögustaði, m.a. Þinganes, Lútersku kirkjuna, litríku gömlu vöru- húsin og torfbæina. Ólafsvaka og Færeyinga saga – kynningarfundur Í fótspor Þrándar í götu og fleiri Færeyinga Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikil saga Talið er að færeyska þingið hafi verið haldið í rúmlega eitt þúsund ár á nesinu Þinganesi, sem gengur út í víkina sem Þórshöfn stendur við. Fátt er notalegra rétt áður en svifið er inn í draumaheiminn en að hlusta á skemmtilega sögu. Kl. 19 í kvöld, fimmtudaginn 11. janúar, verður Sögustund á náttfötunum í Borgarbókasafninu Sólheimum. Þar geta krakkar mætt með uppáhaldsbangsann sinn og hlustað á sögur í náttfötunum í notalegu um- hverfi safnsins. Boðið verður upp á barnvænar veitingar. Mikilvægt er að skrá sig í síma 411-6160 eða með því að senda tölvupóst á sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is Borgarbókasafnið – Menningarhús Sólheimum Börn og bækur Börnin mega gjarnan koma með bangsana sína í sögustund. Sögustund á náttfötunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.