Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Fimm konur og níu karlar gefa kost á sér til röðunar við val á sex efstu sætum á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri við sveitar- stjórnarkosningarnar sem fram munu fara 26. maí næstkomandi. Meðal þeirra sem gefa kost á sér eru þeir þrír bæjarfulltrúar sem nú sitja fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akureyrar. Framboðsfrestur rann út í gær, kosning fer fram á fundi aðal- og varamanna í fulltrúaráði laugardag- inn 3. febrúar og að því loknu mun kjörnefnd gera tillögu um skipan listans. Eftirtalin gefa kost á sér, listinn er í stafrófsröð og innan sviga er það sæti sem viðkomandi gefur kost á sér í: Axel Darri Þórhallsson viðskiptafræðinemi (1.-6.), Baldvin Valdemarsson bæjarfulltrúi (3.), Berglind Ósk Guðmundsdóttir laga- nemi (1.-6.), Elías Gunnar Þor- björnsson skólastjóri (4.-6.), Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi (2.), Gunnar Gíslason bæjarfulltrúi (1.), Ingibjörg Jóhannsdóttir sál- fræðinemi (5.-6.), Kristján Blær Sig- urðsson framhaldsskólanemi (3.-6.), Lára Halldóra Eiríksdóttir, grunn- skólakennari (4.-6.), Sigurjón Jó- hannesson sviðsstjóri (3.), Valdimar O. Hermannsson verkefnastjóri (3.-6.), Þórhallur Harðarson mann- auðsstjóri (4.-6.), Þórhallur Jónsson kaupmaður (1.-6.) og Þórunn Sif Harðardóttir starfsmannastjóri (3.-4.) 14 vilja á lista X-D á Akureyri  Allir bæjarfulltrúar flokksins bjóða fram Hildur Sverris- dóttir hefur verið ráðin aðstoðar- maður Þórdísar Kolbrúnar Reyk- fjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðn- aðar- og nýsköp- unarráðherra og mun hefja störf síðar í þessum mánuði. Hildur er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi suður, hún var þingmaður flokksins á síðasta kjörtímabili og þar áður var hún borgarfulltrúi. Hildur er fædd 1978, hún er með meistarapróf í lögfræði frá Háskól- anum í Reykjavík og lögmannsrétt- indi. Hún hefur m.a. starfað sem lögfræðingur hjá 365 og sem fram- kvæmdastjóri V-dags gegn kynferðisbrotum. Með ráðningu Hildar hefur Þórdís Kolbrún tvo aðstoðarmenn, en fyrir er Ólafur Teitur Guðnason. Hildur ráðin aðstoðarmað- ur Þórdísar Hildur Sverrisdóttir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hinn gamli hafnsögubátur Reykja- víkurhafnar, Haki, er nú kominn í öruggt skjól því Borgarsögusafn Reykjavíkur hefur eignast bátinn. Haki, sem er trébátur, hefur um margra ára skeið staðið á Vestur- bugt við Gömlu höfnina, rétt hjá Slippnum, þar sem hann hefur stað- ið óvarinn fyrir veðri og vindum. Margir hafa átt þarna leið um og ef- laust velt því fyrir sér hver yrðu ör- lög bátsins, enda hefur hann látið mjög á sjá. Börn og unglingar hafa gert sér að leik að klifra upp í bát- inn. Í vikunni var báturinn fluttur á svæði við Eyjaslóð í Örfirisey. Síðan stendur til að koma honum í geymslu í Korngörðum í Sunda- höfn. Báturinn þurfti að víkja úr Vesturbugt því þar stendur til að reisa nokkur íbúðarhús. Eftir að hlutverki Haka lauk hjá höfninni eignaðist Gunnar Richter bátinn. Gunnar hefur nú afsalað sér bátnum til Borgarsögusafnsins. Guðbrandur Benediktsson, for- stöðumaður Borgarsögusafnsins, segir að um sé að ræða bát sem tal- inn er hafa verðveislugildi. Næstu skref séu að fá sérfróða menn til að skoða bátinn og meta ástand hans. Síðan standi til að gera hann upp en óljóst sé hvenær af því geti orð- ið. Það sé ekki á döfinni alveg á næstunni. Guðbrandur segir að skrokkur Haka virðist vera í nokk- uð góðu lagi en ástand á stýrishúsi og dekki sé lakara. Haki er loks kominn í skjól Morgunblaðið/RAX Vesturbugt Haki hefur um margra ára skeið staðið óvarinn á svæðinu.  Borgarsögusafnið eignast bátinn  Verður gerður upp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.