Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 11.01.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Pasco gólflampi Ring borðlampi Rock borðlampi Elegance borðlampi Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, tilkynnti í gær að hann væri reiðubú- inn til þess að funda með Kim Jong- un, leiðtoga Norður-Kóreu, hvenær sem væri, svo lengi sem aðstæður væru réttar. „Það má þó ekki bara vera fundur fundarins vegna. Ef það á að koma til leiðtogafundar verður að skapa réttar aðstæður og tryggja að á fundinum fáist ákveðin niður- staða,“ sagði Moon á fréttamanna- fundi. Moon sagði einnig að samkomu- lagið, sem gert var í fyrradag um þátttöku Norður-Kóreumanna á vetrarólympíuleikunum í Pyeong- chang væri gott upphafsskref. Það væri hins vegar nauðsynlegt að stíga næsta skref, sem væru viðræður um kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu. Talaði gegn hertum aðgerðum Moon hefur áður boðið Kim til fundar við sig að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, en hlotið dræmar undirtektir. Vildi hann þó ítreka í gær að Suður-Kóreumenn væru traustir bandamenn Banda- ríkjanna og að þjóðirnar tvær deildu áhyggjum af kjarnorkuvígbúnaði Norður-Kóreu. Tilgangur refsiað- gerðanna væri hins vegar sá að knýja stjórnvöld í Pyongyang til við- ræðna og sagði Moon því að hertar aðgerðir gætu tafið fyrir því mark- miði. Það kæmi þó ekki til greina að Suður-Kórea myndi létta einhliða á sínum eigin refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu að svo stöddu. Samskipti Moons og Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafa verið talin stirð upp á síðkastið en Trump reyndi um síðustu helgi að þakka sjálfum sér fyrir viðræðurnar á milli Norður- og Suður-Kóreu. „Án mín væru þeir ekki að tala um Ólympíu- leikana núna, þeir væru bara ekki að tala saman,“ sagði Trump. Moon virtist taka í sama streng í gær en hann þakkaði Trump sér- staklega fyrir framlag hans. „Ég tel að þáttur Trumps forseta til þess að gera viðræðurnar að veruleika hafi verið mjög mikill,“ sagði Moon og lýsti yfir þakklæti sínu. Fagna sáttaviljanum Bandaríkjastjórn hefur fyrir sitt leyti fagnað viðræðunum en fulltrúar hennar vöruðu engu að síður við því að þátttaka Norður-Kóreu á Ólymp- íuleikunum mætti ekki verða til þess að draga úr samstöðu alþjóðasam- félagsins gegn kjarnorkuvopna- stefnu landsins. Japanar sögðu sömuleiðis að þeir kynnu vel að meta þann aukna sátta- vilja sem Norður-Kóreumenn hefðu sýnt en að enn væri ekki ástæða til þess að létta af þeim þrýstingi sem alþjóðasamfélagið hefði beitt landið. Segist til í að ræða við Kim  Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, ítrekar boð sitt um leiðtogaviðræður Kóreuríkjanna  Ólympíusamkomulagið sagt ágætt upphafsskref að friði AFP Sjónvarpsávarp Suður-Kóreumenn fylgdust grannt með fréttamannafundi Moon Jae-in þar sem hann ræddi nýafstaðnar viðræður við Norður-Kóreu. Odvar Nordli, fyrrverandi forsætis- ráðherra Noregs, lést í fyrradag, níræður að aldri. Nordli var fædd- ur 3. nóvember 1927 í Stöng í Heiðmerkurfylki. Hann var kjörinn á norska stór- þingið fyrir Verkamanna- flokkinn árið 1961. Hann var ráðherra sveitar- stjórnarmála í ríkisstjórn Trygve Bratteli 1971-’72 og for- sætisráðherra 1976-1981. Ríkisstjórn Nordlis, einkum Knud Frydenlund utanríkis- ráðherra, hafði milligöngu um samningaviðræður Íslendinga og Breta um lausn þorskastríðsins sem lauk með samningum í Ósló sumarið 1976 og var Nordli lýst sem „yfirveguðum og rólegum stjórnmálamanni“ í umfjöllun Morgunblaðsins í ágúst árið 1976. „Með fráfalli Nordlis er einn af stóru leiðtogunum í verka- mannahreyfingunni horfinn á braut,“ skrifar Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, í minningarorðum um Nordli. Odvar Nordli er látinn Odvar Nordli Franskur hjólreiðagarpur tilkynnti í gær að hann væri hættur að sinna því tómstundagamni sínu, sem væri svo sem ekki í frásögur færandi, nema fyrir þá sök að hjólreiðamað- urinn er 106 ára gamall. Robert Marchand vakti talsverða athygli þegar hann hjólaði 26,9 kíló- metra á einum klukkutíma árið 2014. Var það skráð sem nýtt heimsmet fyrir fólk eldra en hundrað ára, en raunar þurfti að búa þann aldurs- flokk til sérstaklega fyrir Marchand. Þá hefur enginn annar á hans aldri spreytt sig við að slá metið svo vitað sé. Marchand er einnig heims- methafi í götuhjólreiðum fólks sem er eldra en 105 ára, en samkeppnin er að vísu engin. Nágranni Marchands tilkynnti ákvörðun hans og sagði að læknar Marchands hefðu ráðlagt honum að forðast áreynslu sem þessa í fram- tíðinni. Marchand hyggst þó hjóla áfram, en þá einungis sér til slök- unar og í rólegheitum. Þá mun Marchand einnig eiga æfingahjól heima hjá sér, sem hann notar til þess að halda sér í formi. Marchand hefur starfað við ýmis- legt um ævina, verið bæði slökkvi- liðsmaður og grænmetisbóndi, en hann fæddist hinn 26. nóvember 1911 í Amiens í norðurhluta Frakk- lands. Þá hefur hann stundað leik- fimi og hnefaleika. Marchand hefur sagt að hann þakki helst grænmetis- og ávaxtaáti fyrir hið góða heilsufar sitt, auk þess sem hann segist ekki drekka of mik- ið kaffi. Þá reykir hann alls ekki og neytir bara „mjög lítils af áfengi“. sgs@mbl.is 106 ára setur reiðhjóla- hjálminn á hilluna AFP Í helgan stein Afrek Marchands hafa vakið mikla athygli. Það sló í brýnu á milli mótmælenda og öryggis- sveita annan daginn í röð í helstu borgum Túnis. Mótmælin hófust í fyrradag vegna verðhækk- óeirðunum og hleypti það illu blóði í mótmæl- endur. Köstuðu þeir grjóti að lögreglumönnum, sem svöruðu fyrir sig með táragasi. ana, auk þess sem þorri mótmælenda virðist ósáttur við aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í fjár- málum ríkisins. Einn maður lést á þriðjudaginn í AFP Táragas og grjótkast í mótmælum í Túnis Verðhækkunum mótmælt tvo daga í röð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.