Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Guðrún Soffía Guðbjörnsdóttir á 75 ára afmæli í dag. Hún býr áSkagaströnd og starfaði lengst við apótekið þar í bæ, eða ímeira en 30 ár. „Eftir að ég hætti að vinna hef ég verið að setja niður kartöflur og rækta garðinn minn, blóm og annað. Svo hef ég gaman af því að fara í gönguferðir og útivist alls konar.“ Guðrún var gjaldkeri Verkalýðsfélags Skagastrandar í nokkur ár og er í kór Hólaneskirkju. „Það er alltaf gaman að vera í kórnum og verður meira gaman eftir því sem maður eldist. Það er til dæmis alltaf mikil dagskrá á jólunum, við fórum á dvalarheimilið og sungum þar fyrir jólin og í Hólaneskirkju á aðfangadag. Þá sungum við í Hofs- kirkju á jóladag,“ en Hofskirkja er fyrir norðan kaupstaðinn á Skaga- strönd. Eiginmaður Guðrúnar er Gylfi Sigurðsson, sjómaður og fyrrver- andi stjórnarmaður hjá félaginu Skagstrendingi. Börn þeirra eru Hafþór Smári stýrimaður, búsettur á Skagaströnd, og Guðbjörg Hanna og Jóney Hrönn, sem báðar eru viðskiptafræðingar og búa á höfuðborgarsvæðinu. Barnabörnin eru sjö og barnabarnabörnin fjög- ur. Guðrún er stödd í Reykjavík en heldur lítið upp á það þar sem hún byrjar í geislameðferð í dag. Guðrún er ekki frá Skagaströnd heldur fæddist hún í Reykjavík. „Ég ólst upp á Bergþórugötunni við hliðina á Sundhöllinni, ég ætti að koma við þar og skoða nýju laugina.“ Stórfjölskyldan Guðrún og Gylfi ásamt börnum, tengdabörnum og barna- börnum á 50 ára brúðkaupsafmæli sínu á Borg í Grímsnesi árið 2012. Alltaf gaman að vera í kirkjukór Guðrún Guðbjörnsdóttir er 75 ára í dag G uðný Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 11.1. 1948 en ólst upp í Kópavogi. Hún var í barnaskóla og gagn- fræðaskóla í Kópavogi, lauk lands- prófi, stundaði nám við MR 1965-67, stundaði nám í fiðluleik við Tónlist- arskólann í Hafnarfirði 1954-56, við Tónlistarskólann í Reykjavík 1956- 67 undir handleiðslu Björns Ólafs- sonar og lauk þaðan einleikaraprófi, nám við Eastman School of Music 1967-71 og lauk þaðan BM-prófi ( Bachelor of Music with Distinction og „Performers Certificate“, lauk Diplomaprófi frá Royal College of Music í London 1972, stundaði nám við The Juilliard School of the Per- forming Arts 1972-74 og lauk þaðan MM-prófi ( Master of Music) 1974. Aðalkennarar hennar erlendis voru Carroll Glenn og Dorothy DeLay. Auk þess sótti hún fjölda námskeiða í einleik, kammertónlist og hljóm- sveitarleik í Evrópu og Bandaríkj- unum á árunum 1964-74. Guðný hefur staðið á tónleikapalli frá sjö ára aldri, var lausráðin fiðlu- leikari við Sinfóníuhljómsveit Ís- lands 1964-74 og fyrsti konsert- meistari hljómsveitarinnar 1974 -2010 og því meðal fyrstu kvenna í heimi til að gegna stöðu fyrsta konsertmeistara. Hún leiddi hljóm- sveitina undir stjórn margra heims- þekktra hljómsveitarstjóra og lék með mörgum frægustu einleikurum og einsöngvurum heims. Guðný hefur haldið fjölda ein- leikstónleika, kammertónleika og komið fram sem einleikari með hljómsveitum bæði heima og er- lendis. Hún hefur farið í tónleika- ferðir til Ísraels, Japans, Kína, Hong Kong, Mexíkó, Púertó Ríkó, auk Norðurlanda, Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Á kennsluferðum sínum leitast hún við að kynna íslenska tónlist. Hún hefur verið tíður gestur á sum- artónlistarhátíðum víða um Banda- ríkin. Guðný stofnaði Tríó Reykjavíkur, ásamt Halldóri Haraldssyni píanó- leikara og Gunnari Kvaran selló- leikara, árið 1988. Árið 1995 tók Peter Máté píanóleikari við af Hall- dóri en Tríó Reykjavíkur skipulagði tónleikaröð í 22 ár í Hafnarborg, Menningar- og Listastofnun Hafn- arfjarðar. Hún hefur auk þess ver- ið, ásamt Gunnari Kvaran, skipu- leggjandi tónlistarhátíðarinnar Bjartar sumarnætur í Hveragerði sem haldin var reglulega á tíunda áratugnum og fyrsta áratug þess- arar aldar. Richard Simm er nú pí- anóleikari Tríós Reykjavíkur, en Guðný skipuleggur hádegistón- leikaröð með tríóinu á Kjarvals- stöðum. Guðný hefur kennt við Tónlistar- skólann í Reykjavík frá 1974 og út- skrifað marga tugi fiðluleikara á þessu tímabili með einleikara-, burt- farar- eða kennarapróf. Nær allir Guðný Guðmundsdóttir, fyrrv. konsertmeistari – 70 ára Morgunblaðið/Hari Heima í stofu Karól, Guðný og Gunnar. Myndir eftir Baltasar í bakgrunni. Meðal fyrstu kven- konsertmeistara í heimi Ljósmynd/Brian FitzGibbon Meistarinn og nemandinn Guðný leiðbeinir Júníu Lín Jónsdóttur. Grindavík Natalía María fæddist 19. janúar 2017 kl. 11.29 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún vó 4.260 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Ben- óný Þórhallsson og Perla Sólveig Reynisdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.