Morgunblaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins þeim
sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur öryggi.
Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
Lyklaskápur sem
alltaf veit betur
Verð: 179.000 kr.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að ganga úr skugga um að
ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Dæmdu
ekkert að vanhugsuðu máli.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ferð ekki troðnar slóðir og oft
misskilur fólk hversu snöggur upp á lagið
þú ert. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er óhætt að segja að þú sért
í þínu besta formi og svo sannarlega ekki
við þig að sakast ef aðdáendurnir hópast
ekki að þér í hrönnum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú sjálfur sért skýjum ofar yfir
afrekum þínum er ekki eins víst að fjöl-
skyldan sé á sömu skoðun. Skoðanir þessa
einstaklings munu koma þér mjög á óvart.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu þér ekki mislíka þótt einhverjir
hörfi undan þegar þú sækir fast að þeim.
En freistaðu ekki gæfunnar um of. Stattu af
þér storminn og þá muntu sigra í lokin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einræðisherrar endast yfirleitt stutt.
Stundum er betra en ekki að fara sér hæg-
ar og hafa góða yfirsýn. Hversdagslegir
hlutir geta þróast í óvenjulegar áttir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum liggja réttu svörin í augum
uppi, en stundum þarf að leita vandlega til
þess að finna réttu rökin til áframhalds.
Losaðu þig við verkefni sem ögra þér ekki
og kveikja ekki á þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt gott með að greina
kjarnann frá hisminu og með góðra manna
hjálp tekst þér að leysa mál sem hefur hvílt
á þér. Beina leiðin er heiðarleg en ekki
nógu áhrifarík.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að standast freist-
inguna að predika yfir öðrum. Reyndu að
hemja hvatvísina í dag og bíddu þar til á
morgun eða hinn því kannski skiptir þú um
skoðun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gætið þess að lenda ekki á milli
þegar vinir ykkar eiga í deilum. Ekki nota
klisjuna: „Við þurfum að tala saman“, not-
aðu frekar innsæið og sjarmann.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Erfiðir einstaklingar hafa sínar
sterku hliðar, annars væru þeir ekki hluti af
þínu lífi. Ræktið vináttuna í stað þess að
reyna hana.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þig langi til að hella þér út í
samkvæmislífið skaltu ganga hægt um
gleðinnar dyr. Stundum er betra en ekki að
fara sér hægar og hafa góða yfirsýn.
Eftir helgi urðu skemmtilegvísnaskipti (sbr. orðaskipti) á
Boðnarmiði sem byrjuðu með þess-
ari stöku Sigrúnar Haraldsdóttur:
Skattmann tekur frá mér flest,
flysjar rýran auðinn,
síðan annar sækir rest,
sá er nefndur dauðinn.
Sigurlín Hermannsdóttir skaut
inn þýðingu sinni á smáljóði Piets
Heins:
Náttúran er
faðir minn og móðir
sem góðar gjafir
gaf mér.
Og ríkið er
minn stóri sterki bróðir
sem stelur öllu
af mér.
Gunnar Magnús Sandholt kvað
þetta snilldarþýðingu. – „Vegna
stuðlanna og kliðmýktarinnar er
hún jafnvel betri en frumljóðið og er
þá langt til jafnað:
Naturen er
vår far og mor
som gode gaver
ga’ os.
Og staten er
vor store bror
som ta’r det hele
fra os.“
Hallmundur Kristinsson bætti við:
Vesældin fylgdarmær verður nú því
varla er um annað að ræða
en gefa dauðann og djöfulinn í
dásemdir lífsins gæða.
Og Ingólfur Ómar Ármannsson:
Skattabyrðin sýnir sig
síst mun henni létta.
Dauðinn seinna sækir þig
svona gengur þetta.
Ekki er útlitið bjart! Gunnar J.
Straumland yrkir:
Váleg mín er veðrasýn,
vel ég rýni alltumkring.
Í vindi hrín, í Kára hvín
er hvæsinn brýnir landsynning.
Ingólfur Ómar Ármannsson er
ekki síður rímsnjall:
Lyndi brátt nú leikur grátt
lamast máttur slyngur.
Kári dátt í dyragátt
dæsir hátt og syngur.
Það er veðrahamur í Pétri
Stefánssyni:
Vetrarstormur hvellur, hvín,
hvergi er skjól að finna.
Austanrosinn hávært hrín,
hnignar óðum gleði mín
er úti geisar illskuveðrið stinna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísnaskipti, Piet Hein
og veðrið
„ÞAU VIRKA. EINN STARFSMAÐUR STAL
SVONA FYRIR NOKKRUM ÁRUM OG HEF-
UR VERIÐ Á STÖÐUGUM HLAUPUM SÍÐAN.“
„SKOLARÐU ALDREI SKYRTURNAR MÍNAR
ÞEGAR ÞÚ ÞVÆRÐ ÞÆR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hjarta sem er fast í
sandöldum tímans.
MEÐ ALDRI KEMUR
VISKA
DÆS ÉG MYNDI
FREKAR VILJA
NÝTT SJÓNVARP
ÞAÐ ER
MJÖG
VITURLEGT
ER HANN BLANDAÐUR?
JÁ!
HANN ER HÁLFUR VEIÐIHUNDUR OG
HÁLFUR BENDILL!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÚTSALA
Víkverji lenti í því að hann fékkbréf á dögunum frá bílaumboð-
inu sínu. Þar var honum tilkynnt að
vegna einhvers framleiðslugalla
hefði verið ákveðið að það þyrfti að
innkalla bifreið Víkverja og gera á
henni nauðsynlega viðgerð; að öðr-
um kosti væri hætta á að það kvikn-
aði hreinlega í henni.
x x x
Ekki leist Víkverja þá á blikuna, sérí lagi þar sem framleiðslugallinn
þýddi það að sætishitarinn í bílnum
var ónothæfur þar til búið væri að
laga þetta. Og ekki gengur það upp
um miðjan janúar þegar Víkverji
leitar sér að hverri þeirri hlýju sem
hann getur fundið, sérstaklega á
leiðinni í vinnuna.
x x x
Hann pantaði því tíma hjá umboð-inu og fór með bílinn í viðgerð-
ina. Í staðinn fékk Víkverji aðgang
að lánsbíl frá umboðinu. Var það þó
hálfgerður bjarnargreiði hjá þeim,
þar sem lánsbíllinn var það miklu
stærri, flottari og ekki síst nýrri en
bíll Víkverja, að ekki var laust við
það að kappann langaði hreinlega að
kaupa sér slíkt tryllitæki. Var þó
bara um að ræða einhvern tiltölulega
lítinn jeppling, sem raunar væri
dæmigert farartæki fyrir mann sem
er nærri miðaldra, kominn með íbúð,
barn og konu.
x x x
Hugsaðu þér bara allt plássið ískottinu!“ sagði Víkverji við
konu sína. Hún spurði þó eðlilega til
hvers Víkverji myndi vilja stærra
skott. „Nú, ef við skyldum fara út á
land?“ sagði Víkverji hikandi röddu.
Honum var þá þegar ljóst að þetta
væri hálfhallærisleg löngun hjá sér.
Víkverji hefur nefnilega ekkert með
risaskott að gera, og ekki finnst hon-
um gaman að fara út á land.
x x x
Engu að síður var gaman að fá aðupplifa það, þótt það væri bara
einu sinni, hvernig það er að keyra
glænýjan bíl, með lyktinni og öllu til-
heyrandi. Víkverji er því alvarlega að
spá í að neyta bara vatns og brauðs
næstu þrjú árin eða svo. Það ætti að
fara langleiðina. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þeg-
ar hann er mér til hægri handar hnýt
ég ekki
(Sálm: 16:8)