Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 11.01.2018, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Í heimildarmyndinni La Chana er fjallað um eina stærstu stjörnu flamenkó-dansins á seinni hluta 20 aldar, samnefnda listakonu sem var neydd til þess af ofbeldisfullum eig- inmanni sínum að leggja dansskóna á hilluna þegar hún var á hátindi ferils síns og frægðar. Leikstjóri myndarinnar, hin króatíska Lucija Stojevic, dregur upp heillandi mynd af þessari merkilegu og ástríðufullu konu sem segir áhorfendum frá lífs- hlaupi sínu og list í aðdraganda end- urkomu hennar á svið, 30 árum eftir að hún hætti að dansa. Þótt fæturnir séu orðnir lúnir og gamlir er ástríðan og ólgan enn til staðar og brýst út með eftirminnilegum hætti í lok myndar. La Chana hefur verið sýnd á mörgum hátíðum og unnið til al- þjóðlegra verðlauna, m.a. IDFA VPRO-áhorfendaverðlaunanna, Chopin’s Nose-verðlaunanna fyrir bestu heimildamyndina sem fjallar um listir og tónlist á DOCSAC-hátíðinni og Le Voci dell’Inchiestra- áhorf- endaverðlaunanna. Sú fyrsta í fullri lengd Stojevic býr í Barcelona á Spáni. líkt og La Chana en blaðamaður hitti hana ekki þar heldur í Berlín, 8. desember í fyrra, degi fyrir afhend- ingu Evrópsku kvikmyndaverð- launanna þar í borg. La Chana var þar í flokki tilnefndra heimild- armynda og er fyrsta heimild- armynd Stojevic í fullri lengd. Áður hafði hún gert fjölda stuttra heim- ildarmynda fyrir vefi fjölmiðlanna The Guardian, New York Times og Global Post. Stojevic fæddist í Króatíu en flutti til Austurríkis með fjölskyldu sinni þegar hún var sjö ára. „Við flutt- umst oft búferlum,“ segir hún um uppvaxtarárin en hún nam síðar arkitektúr í Edinborg og hélt svo í kvikmyndagerðarnám í Prag. Þaðan hélt hún til Barcelona á Spáni og stofnaði árið 2014 kvikmynda- framleiðslufyrirtækið Noon Flms. Tveimur árum síðar var La Chana frumsýnd. Súrrealískt augnablik Stojevic segist varla hafa trúað því þegar henni var tilkynnt að La Chana væri tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem besta heimildarmyndin. „Fyrsta súrrea- líska augnablikið var hins vegar þegar við hlutum IDFA-áhorf- endaverðlaunin árið 2016,“ segir hún. Hún hafi alls ekki átt von á þeim frekar en öðrum verðlaunum og tilnefningum. Ástæðuna segir hún smæð myndarinnar, þ.e. að hún hafi verið ódýr í framleiðslu á kvik- myndamælikvarða og ekki notið stuðnings eða kynningar þekktra og öflugra stofnana eða sjónvarps- stöðva. „Það var gríðarlega erfitt að fá fjármagn í framleiðsluna því þetta er afskaplega spænsk mynd,“ út- skýrir Stojevic. La Chana er að hluta íslensk því fyrirtækið Bless Bless Productions, sem Gréta Ólafsdóttir og Susan Muska reka, kom að framleiðslunni og fór eftirvinnsla myndarinnar einnig fram hér á landi. Stojevic segir að þær Gréta og Muska hafi reynst henni afar vel, stappað í hana stálinu þegar öll sund virtust lokuð. Einstakt listform „Ég ann þessu listformi, það er svo ólíkt öllum öðrum og ég hef lagt stund á margs konar dans. Það er svo margslungið, líkt og maður sé að leika á hljóðfæri um leið og maður dansar,“ segir Stojevic um fla- menkó-dansinn. Danskennari henn- ar hafi oft minnst á La Chana í tím- um og þannig hafi áhugi hennar á þessari merkilegu konu kviknað og hún ákveðið að gera um hana heim- ildarmynd. „En þegar ég fór að leita upplýs- inga um hana fann ég ekkert nema The Bobo [kvikmynd með Peter Sellers frá árinu 1967 þar sem La Chana stígur magnaðan dans] og nánast allar hreyfimyndir sem tekn- ar voru af henni á sviði voru í safni spænska ríkissjónvarpsins,“ segir Stojevic. Saga La Chana hafi verið gleymd og grafin þegar hún hóf að vinna að myndinni. Óskaplega dýr bútur Í La Chana notast Stojevic við mikið magn úrklippa úr dagblöðum og upptökur frá sjöunda og áttunda áratugnum. Hún segir það hafa komið sér einkar vel að La Chana hafi átt í fórum sínum mikið úr- klippusafn með greinum um sig og þá m.a. umsagnir um sýningar. Stoj- evic segir að samt sem áður hafi kostað hana mikla vinnu að taka saman nauðsynlegt myndefni í heimildarmyndina og fá leyfi fyrir þvi að nota það. Hún segir bútinn úr The Bobo auk þess hafa kostað hana skildinginn. „Hann var óskaplega dýr,“ segir Stojevic og ranghvolfir augunum en bútinn þurfti hún að kaupa af stórfyrirtækinu Warner Bros. Stojevic bætir því við að spænska ríkissjónvarpið hafi líka reynst henni óþægur ljár í þúfu. Fíllinn í herberginu – Í myndinni kemur fram að fyrr- verandi eiginmaður La Chana beitti hana ofbeldi og kúgaði hana. Þú eyðir hins vegar ekki miklum tíma í þá frásögn, aðeins nokkrum mín- útum. Ákvaðstu þá nálgun í klippi- herberginu eða þegar þú varst að taka upp myndefnið? „Þetta var án efa einn erfiðasti hluti myndarinnar, hvernig ætti að eiga við þennan fíl í herberginu og af mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi þurfti La Chana að líða vel í sínu umhverfi og ég þurfti að ákveða hvort myndin snerist um ofbeldi eða ekki og ég ákvað snemma að hún ætti ekki að gera það. Það hefði ekki verið sanngjarnt gagnvart La Chana og ég vildi ekki draga upp mynd af henni sem fórnarlambi. Fyrir mér snerist myndin um innri styrk La Chana, hún upplifði harm- leik en hélt áfram að berjast fyrir listsköpun sinni og ástríðu.“ Þess má að lokum geta að La Chana verður sýnd í Bíó Paradís 12.-14. janúar. Ástríða ofar harmleik  Lucija Stojevic heillaðist af sögu flamenkódansarans La Chana og gerði um hana margverðlaunaða heimildarmynd AFP Á dreglinum Stojevic á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum í Berlín 9. des- ember síðastliðinn. La Chana var þar tilnefnd sem besta heimildarmyndin. La Chana Listakonan í heimildarmynd Stojevic. La Chana heitir réttu nafni Antonia Santiago Amador og fæddist í Barcelona árið 1946. Hún öðlaðist frægð fyrir einstaka danshæfileika sína á sjöunda og áttunda áratugnum en var þá neydd til að hætta að dansa af þáverandi eiginmanni sínum. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Síðustu sýningar leikársins! Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar. Medea (Nýja sviðið) Lau 13/1 kl. 20:00 Frum Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Sun 14/1 kl. 20:00 2. s Fim 18/1 kl. 20:00 5. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Þri 16/1 kl. 20:00 3. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Ástir, svik og hefndarþorsti. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 12/1 kl. 20:00 43. s Fim 18/1 kl. 20:00 45. s Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Lau 13/1 kl. 20:00 44. s Fös 19/1 kl. 20:00 46. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Draumur um eilífa ást Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Lau 27/1 kl. 13:00 7. s Sun 14/1 kl. 13:00 4. s Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s Búðu þig undir dularfullt ferðalag! Fjarskaland (Stóra sviðið) Lau 13/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Hafið (Stóra sviðið) Fim 11/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 18/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 11/1 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 22:30 Fös 12/1 kl. 20:00 Sun 21/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 12/1 kl. 22:30 Fim 25/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 22:30 Lau 13/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00 Lau 13/1 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00 Sun 14/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30 Fös 19/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 19/1 kl. 22:30 Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30 Lau 20/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Efi (Kassinn) Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 14/1 kl. 15:00 2.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.