Morgunblaðið - 11.01.2018, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018
Íslenska heimildarmyndin Garn/
Yarn hefur fengið afar góðar mót-
ökur á undanförnum misserum og
var sýnd á sama degi í tæplega
fjörutíu kvikmyndahúsum víðsvegar
um Bretland og í yfir fimmtíu kvik-
myndahúsum þar í heild, að því er
segir í tilkynningu. Myndin hefur
auk þess verið sýnd í yfir fimmtíu
kvikmyndahúsum víða um Norður-
Ameríku og verið sýnd allt frá
Grænlandi til Ástralíu í yfir 20 lönd-
um þar á milli, auk skemmti-
ferðaskipa og flugvéla, eins og fram
kemur í tilkynningu. Þar segir enn-
fremur að myndin hafi vakið mestan
áhuga í Japan, sýningar á henni hafi
hafist í Tókýó og muni verða í 21
kvikmyndahúsi í lok þessa mánaðar.
„Eftir að sýningar hófust í Japan
hafa verið skipulagðar ferðir til Ís-
lands frá Japan fyrir unnendur
hannyrða til að koma og skoða ís-
lenskt handverk og garn. Mun hóp-
urinn einnig fara á prjónanámskeið
á Íslandi,“ segir í tilkynningunni og
að verk Tinnu Þórudóttur Þorvald-
ar, sem er meðal þeirra listamanna
sem fjallað er um í myndinni, séu nú
til sýningar í einni stærstu garn-
verslun Japans. Eftir að sýningum
lýkur í kvikmyndahúsum verður
myndin sýndi í verslunum í Tókýó
sem selja garn og pantaðar hafa ver-
ið prufur af íslensku garni til Japans
með það í huga að hefja innflutning.
Garn/Yarn er aðgengileg í
streymisveitunni Netflix í þeim
löndum sem ekki hafa tryggt sér
sýningarrétt í sjónvarpi og mun
RÚV sýna myndina á þessu ári. Í
henni er fjallað um hvernig hið gam-
algróna prjón og hekl er orðið part-
ur af vinsælli bylgju í nútíma- og
götulist. Leikstjórar myndarinnar
eru Þórður Jónsson, Heather Mill-
ard og Una Lorenzen og var hún
frumsýnd í Bandaríkjunum, á kvik-
myndahátíðinni SXSW í Texas, við
góðar undirtektir og hlaut áhorf-
endaverðlaun á kvikmyndahátíðinni
Nordisk Panorama í Malmö í Sví-
þjóð. Í tilkynningunni segir að lok-
um að framleiðslufyrirtæki Garns,
Compass Films, muni fylgja eftir
vinsældum myndarinnar með sjón-
varpsþáttum um hannyrðir þar sem
Tinna Þórudóttir Þorvaldar verður
kynnir. Þáttaserían nefnist Bað-
stofan og hefst framleiðsla þáttanna
á vormánuðum 2018.
Garn vekur áhuga
Japana á Íslandi
Prjón Kynningarveggspjald fyrir
Garn með japönskum texta.
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína
sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi. Stórt og fagurt
tré sem stendur í garði for-
eldranna skyggir á garð ná-
grannanna, sem eru þreyttir
á að fá ekki sól á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 18.00
The Party
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 22.15
The Killing of a
Sacred Deer
Skurðlæknirinn Steven flæk-
ist inn í erfiðar aðstæður og
þarf að færa óhugsandi fórn.
Metacritic 73/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Eldfim ást 16
Kappaksturskona og glæpa-
maður verða ástfangin þrátt
fyrir ólíkan uppruna. Það
reynir á trygglyndi beggja
þegar glæpalífernið súrnar.
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 17.30, 20.00
Svanurinn 12
Svanurinn segir frá afvega-
leiddri níu ára stúlku sem er
send í sveit um sumar til að
vinna og þroskast, en bland-
ast í atburðarás sem hún
skilur varla sjálf.
IMDb 7,0/10
Smárabíó 20.10, 22.20
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 18.00
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Metacritic 88/100
IMDb 8,4/10
Háskólabíó 21.00
Father Figures 12
Metacritic 23/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.30
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.30
All the Money in the
World 16
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 19.50, 22.15,
22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Pitch Perfect 3 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,3/10
Laugarásbíó 17.30, 22.30
Smárabíó 17.50, 20.10,
22.30
Borgarbíó Akureyri 18.00,
22.20
Daddy’s Home 2 12
Metacritic 30/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
The Greatest
Showman 12
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 17.40, 19.30,
19.50, 22.10
Háskólabíó 18.10
Borgarbíó Akureyri 20.00
Wonder
Metacritic 66/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 21.00
Ferdinand Ferdinand er risastórt naut
með stórt hjarta. Hann er
tekinn í misgripum fyrir
hættulegt óargadýr, og er
fangaður og fluttur frá heim-
ili og fjölskyldu. Hann er
ákveðinn í að snúa aftur
heim til fjölskyldunnar, og
safnar saman mislitri hjörð
aðstoðarmanna.
Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 17.30
Sambíóin Álfabakka 18.00
Smárabíó 15.00, 15.10,
17.30
Coco Röð atburða, sem tengjast
aldagamalli ráðgátu, fer af
stað. Það leiðir til óvenju-
legra fjölskylduendurfunda.
Metacritic 81/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Akureyri 18.00
Justice League 12
Batman safnar liði af ofur-
hetjum; Wonder Woman,
Aquaman, Cyborg og The
Flash, til að sigrast á að-
steðjandi ógn.
Metacritic 45/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Myndin byrjar þar sem sú síðasta endaði. Rey
heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og
Luke Skywalker.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.50, 20.20, 20.30
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.50, 21.00
Sambíóin Akureyri 17.50, 21.00
Star Wars VIII - The Last Jedi 12
Jumanji: Welcome to the Jungle 12
Fjögur ungmenni finna gamlan tölvuleik en komast fljótt að
því að þetta er enginn
venjulegur leikur.
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 17.30,
20.00, 22.15, 22.30
Smárabíó 15.00, 16.30,
17.10, 20.00, 22.00, 22.40
Háskólabíó 18.15, 20.50
Borgarbíó Akureyri
20.00, 22.10
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
The Disaster Artist 12
Mynd sem skyggnist bak við tjöldin þegar verið var að gera
myndina The Room, sem hefur
fengið stimpilinn versta kvik-
mynd allra tíma.
Metacritic 76/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00,
20.20, 22.40
Bíó Paradís 18.00, 22.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2..
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma