Morgunblaðið - 11.01.2018, Page 41

Morgunblaðið - 11.01.2018, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2018 Stjórn og framkvæmdastjóri Menn- ingarfélags Akureyrar (MAk) til- kynntu í gær að ákveðið hefði verið að Jón Páll Eyj- ólfsson, leik- hússtjóri Leik- félags Akureyrar (LA), myndi ekki starfa út upp- sagnarfrest sinn heldur ljúka störfum þegar í stað. Á vef MAk segir að ákvörð- unin byggist á því að ekki ríki lengur traust um störf hans hjá félaginu. Þar kemur einnig fram að ákvörðunin sé tekin að vel athuguðu máli og um hana ríki einhugur. Jón Páll greindi á facebook í des- ember frá því að hann hefði sagt starfi sínu lausu frá 1. janúar af persónulegum og faglegum ástæð- um og gagnrýndi í því sambandi óvissuna um fjárhagsstöðu LA. Til stóð að lokaverkefni hans hjá LA væri leikstjórn hans á gamansýn- ingunni Sjeikspír eins og hann leggur sig sem frumsýna átti 2. mars. Í samtali við mbl.is staðfesti Jón Páll að ákvörðun MAk tengdist #metoo-byltingunni og máli sem kom upp fyrir um áratug. Þuríður Helga Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri MAk, neitaði því ekki að uppsögn Jóns Páls tengdist #metoo-byltingunni, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig. Er nú unnið að því að endurskipuleggja þau verkefni sem framundan voru hjá LA. Jón Páll lýkur störfum þegar í stað Jón Páll Eyjólfsson Catherine Deneuve er ein hundrað franskra kvenna sem rita undir op- ið bréf sem birt var í dagblaðinu Le Monde fyrr í vikunni þar sem þær verja rétt karla til að reyna við konur og vara við því sem þær kalla nornaveiðar og ofursiðavendni eða tepruskap í samskiptum kynjanna í kjölfar #metoo- byltingarinnar. Deneuve er eina þekkta kvik- myndastjarnan sem ritar undir bréfið, en meðal annarra kvenna eru sálfræðingurinn Sarah Chiche, listarýnirinn Catherine Millet og leikkonan Catherine Robbe-Grillet. „Nauðgun er glæpur. En það er ekki glæpur að reyna við konur jafnvel þótt það sé gert ítrekað eða klunnalega,“ skrifa þær og segja ósanngjarnt að refsa körlum fyrir slíkt. Segja þær karla hafa orðið fórnarlömb nornaveiða þar sem þeim sé refsað og þeir neyddir til að segja af sér „þegar þeirra eini glæpur var að snerta hné, reyna að stela kossi, ræða persónulega hluti yfir vinnutengdum málsverði eða senda skilaboð með kynferðislegum undirtexta til kvenna sem ekki höfðu áhuga á þeim“. Í bréfinu gagnrýna þær harðlega frönsku útgáfu #metoo-bylting- arinnar sem nefnist #balance- tonporc og segja þetta nýja tegund af ofursiðavendni eða tepruskap. Að sjálfsögðu sé nauðsynlegt að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi, ekki síst á vinnumarkaði, en bar- áttan hafi breyst í nornaveiðar sem séu ógn við kynfrelsi. Bréfritarar segja nauðsynlegt að afhjúpa og fordæma þá misnotkun valds sem sumir karlar geri sig seka um, en að sú holskefla for- dæmingar og ásakana sem #metoo-bylgjan hafi leitt af sér sé komin úr böndunum. „Sem konur, þá þekkjum við ekki sjálfar okkur í þessu afbrigði femínisma, sem læt- ur sér ekki nægja að fordæma mis- notkun valds, heldur breytist í hat- ur á karlmönnum og hvatalífi kynjanna.“ Verja rétt karla til að reyna við konur AFP Franska leikkonan Catherine Deneuve á hátíð í Berlín í fyrra. Gjörningaklúbburinn var útnefnd- ur Listhópur Reykjavíkur 2018 og nýtur styrks að upphæð tvær milljónir króna. Þetta kom fram á fundi í Iðnó í gær þegar upplýst var hvaða menningarstofnanir, listhópar og listamenn fá styrk á árinu 2018. Í umsögn faghóps sem velur styrkþega kemur fram að Gjörningaklúbburinn hafi í tvo áratugi náð að heilla borgarbúa með framandlegum uppákomum og sýningum. „Gjörningaklúbb- urinn hefur unnið með flesta miðla myndlistar en starfar á mörkum listgreina og hefur á síðustu árum tengst sviðslistinni enn sterkari böndum. Hugmyndir Gjörn- ingaklúbbsins tengjast oft fé- lagslegum málefnum með femin- ískum áherslum í bland við glettni og hressandi einlægni,“ segir í um- sögninni. Ný aðstaða fyrir danslistina Helstu nýmæli í styrkveitingum ársins eru þau að Reykjavíkurborg hefur leyst húsnæðisvanda Dans- verkstæðisins með leigusamningi við Reiti til 15 ára um Hjarð- arhaga 45-47. Gerður hefur verið samstarfssamningur við Dansverk- stæðið til þriggja ára um 17 m. kr. árlegt framlag vegna aukins húsaleigukostnaðar og rekstr- arumfangs. „Með Dansverkstæð- inu er verið að skapa aðstöðu fyrir danslistina og nauðsynlegt vinnu- rými á viðráðanlegum kjörum,“ segir í tilkynningu frá Reykjavík- urborg. Þá hafa verið gerðir nýir samstarfssamningar til þriggja ára við Nýlistasafnið um 17,3 m.kr. á ári og Kling og Bang um 8,5 m.kr. árlega. Alls sótt um 282 milljónir Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg var faghópi skip- uðum fulltrúum Bandalags ís- lenskra listamanna og Hönn- unarmiðstöðvar Íslands falið að fara yfir aðrar styrkumsóknir og gera tillögur til menningar- og ferðamálaráðs, sem samþykkti þær. Alls bárust 179 umsóknir sem námu samtals rúmum 282 m.kr. Til úthlutunar voru um 66,5 m.kr. sem skiptust milli 103 verkefna. Þar af hljóta átta listhópar, hátíðir og samtök nýjan samning til þriggja ára fyrir samtals 15,4 m.kr., en fyrir eru 20 hópar með eldri samn- inga í gildi. Þeir sem hljóta nýjan samstarfs- samning til þriggja ára frá árinu 2018 auk Dansverkstæðisins, Nýló og Kling og Bang eru Jazzhátíð Reykjavíkur með 3 m.kr., Blúshá- tíð í Reykjavík með 2 m.kr., Myrk- ir músikdagar, Stórsveit Reykja- víkur, Tónlistarhópurinn Caput og Kammersveit Reykjavíkur með 1,8 m.kr. á ári og Kammerhópurinn Nordic Affect með 1 m.kr. árlega. Hæsta árlega styrkinn hlaut Myndhöggvarafélagið í Reykjavík þar sem 1,4 m.kr. fara í sýning- arröðina Hjólið og 1 m.kr. til rekstrar félagsins. Ice Hot Reykjavík fær 2 m.kr., Pera óp- erukollektíf 1,4 m.kr. og Mýrin fé- lag um barnabókmenntahátíð 1,2 m.kr. Aðrir styrkir nema hæst 1 m.kr. en lægst 200 þús. krónum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tilþrif Gjörningaklúbburinn framdi gjörninginn Aqua Maria í Iðnó í gær. 103 verkefni styrkt um alls 66,5 milljónir króna  Gjörningaklúbburinn valinn Listhópur Reykjavíkur 2018 Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 7.50, 10.15 Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 5.30, 10.30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.