Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 4. J A N Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  20. tölublað  106. árgangur  ÍSLAND ER SEM LEIKFANGABÚÐ JARÐFRÆÐINNAR 868 FRAMÚR- SKARANDI FYRIRTÆKI SÉRBLAÐ 88 SÍÐURPÁLL EINARSSON 12 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útreikningar Samtaka iðnaðarins (SI) benda til að skatttekjur af íbúa í Reykjavík hafi verið um 700 þúsund krónur árið 2016. Það er um 50 þús- und krónum meira en 2007 sem lengi var metárið. Tölurnar eru á föstu verðlagi 2017. Lagðar eru saman tekjur af útsvari, fasteignagjöldum og framlag úr jöfnunarsjóði. Tilefni útreikninganna er umfjöll- un í Morgunblaðinu í gær um að inn- viðagjöld í Furugerði í Reykjavík verða sem svarar 1,5 milljónum á 100 fermetra íbúð. Nýir íbúar munu greiða gjaldið með íbúðaverðinu. Bætist við miklar skatttekjur Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir þessa gjald- töku bætast við miklar skatttekjur sveitarfélagsins. „Í samanburði við önnur sveitarfélög er Reykjavík með háar tekjur af hverjum íbúa … Það skýtur því skökku við að Reykja- víkurborg bæti við innviðagjaldi sem jafnvel finnst ekki lagastoð fyrir. Engin borgarlína á Nesinu Fram hefur komið að innviðagjald í Reykjavík á meðal annars að standa undir kostnaði við borgarlínu. Þau tíðindi hafa orðið í undirbún- ingi borgarlínunnar að hún mun ekki liggja inn í Seltjarnarnesbæ. Skattarnir aldrei meiri  Skatttekjur af íbúa í Reykjavík voru um 50 þúsund krónum hærri 2016 en 2007  Samtök iðnaðarins gagnrýna að innviðagjald komi til viðbótar skattbyrðinni MSkatttekjurnar »6 og 11 Skatttekjur í borginni 700 600 500 400 300 Í þúsundum króna á föstu verðlagi 2017 ’02 ’04 ’06 ’08 ’10 ’12 ’14 ’16 2002: 484 2007: 648 2016: 699 Heimild:SI Kjararannsóknarnefnd hefur sagt upp þjónustusamningi sínum við Hagstofuna. Það er á grundvelli þess samnings sem stofnunin hefur m.a. reiknað hina svokölluðu launa- vísitölu sem hart hefur verið deilt á að undanförnu. Þetta upplýsir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Samningurinn felur í sér fjár- framlag úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði sem nemur nærri 60 millj- ónum króna á ári. Gylfi segir að aðilar vinnumarkaðarins hafi lengi sett stórt spurningarmerki við þá aðferðafræði sem lögð er til grund- vallar vísitölunni en að nú sé mál að linni. Er samhljómur í orðum hans og Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, sem í Morgunblaðinu í gær lýsti því yfir að vísitalan gæfi mjög bjagaða mynd af launaþróun í landinu. Í kjararannsóknarnefnd eiga sæti ásamt forseta ASÍ, fram- kvæmdastjóri og aðstoðarfram- kvæmdastjóri SA og hagfræðingur ASÍ. Vonast nefndin eftir því að upp- sögn samningsins leiði til breytinga á þeirri aðferðafræði sem miðað er við þegar vísitalan er reiknuð. »16 Þrýsta á breytt verklag Morgunblaðið/Eggert Hagstofan Aðferðin við útreikning launavísitölu hefur verið gagnrýnd.  Segja upp samn- ingi við Hagstofuna Hvalaskoðunarskipin Eldey og Andrea láta úr höfn í Reykjavík og sigla út Faxaflóa með hóp ferðamanna á leið í hvalaskoðun. Ferðamenn láta hvorki kulda né smávelting fæla sig frá því að freista þess að líta hvali við Íslands- strendur augum. Mikil fjölgun ferðamanna yfir vetrartímann gerir hvala- skoðunarfyrirtækjum kleift að starfa allt árið. Hvalaskoðun nýtur mikilla vinsælda hjá erlendum ferðamönnum. Siglt til móts við ævintýri á köldum vetrardegi Morgunblaðið/Eggert  Nærri helmingur lands- manna, eða 46%, borðar lambakjöt að jafnaði einu sinni í viku eða oftar. Tæp 26% til viðbótar borða lambakjöt 2-3 sinnum í mánuði. Aðeins 4% segjast aldrei borða lambakjöt. Þetta er meðal niður- staðna úr könnun sem Maskína gerði fyrir Ice- landic lamb sem er mark- aðsverkefni á vegum Markaðsráðs kinda- kjöts. Nánast allir sem spurðir voru í könnuninni lýstu yfir ánægju með íslenskt lamba- kjöt. Sala á öllum kjöttegund- um sem framleiddar eru hér innanlands jókst á nýliðnu ári. Af stóru kjötgreinunum jókst mest sala á alifugla- kjöti og styrkir sú grein stöðugt stöðu sína sem framleiðandi vinsælustu kjötafurðanna. Sala á lambakjöti jókst, ann- að árið í röð, og birgðir minnkuðu. »10 Landsmenn segjast almennt ánægðir með íslenska lambakjötið í viðhorfskönnun og salan á því jókst Lamb Íslendingar borða lamba- kjöt mest á heimilum sínum.  Allir átta flokkarnir sem buðu fram í sveit- arstjórnarkosningunum í Reykjavík fyrir fjór- um árum stefna á framboð í vor. Útlit er fyrir að fjórir flokkar geti bæst í hópinn; Miðflokk- urinn, Viðreisn, Sósíalistaflokkur Íslands og Flokkur fólksins. Verði sú raunin munu borg- arbúar geta valið milli tólf framboða – fleiri en nokkru sinni fyrr. Forsvarsmenn þessara flokka staðfestu við Morgunblaðið að unnið væri að framboði en flokkarnir eru komnir mislangt á veg í undirbúningi. Fyrirséð er að fjölgun borgarfulltrúa og þessi fjöldi framboða muni hafa áhrif á það hversu mörg atkvæði þarf til að koma inn manni. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir að hægt sé að ganga út frá því sem vísu að 4,2% atkvæða tryggi lista sæti í borgar- stjórn. »6 Tólf stjórnmálaflokkar stefna á framboð í Reykjavík í vor og hafa aldrei verið fleiri Morgunblaðið/Golli Reykjavík Útlit er fyrir harða baráttu í vor.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.