Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 2
Þrívíddarprentari sem
bjargar mannslífum
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Nýr og fullkominn þrívíddarprent-
ari sem leysir þann eldri af hólmi
opnar nýja og betri möguleika á
prentun líffæra í Heilbrigðis-
tæknisetri HR og LSH. Eldri prent-
ari hefur bjargað nokkrum manns-
lífum og sá nýi gæti bjargað enn
fleiri.
Paolo Gargiulo, dósent við tækni-
og verkfræðideild Heilbrigðis-
tæknisetursins, segir að úr nýja
prentaranum sé hægt að prenta út
nákvæmari líffæri úr fjölbreyttara
efni. Hann gefi tækifæri á að blanda
saman litum og hörðu og mjúku efni.
Með því gefist t.d. tækifæri á að
prenta taugar og æðar í sitthvorum
litnum.
Eykur öryggi sjúklinga
Að sögn Paolo er prentarinn ein-
stakur á heimsvísu hvað varðar
tækni og er fyrst og fremst notaður
við flóknar aðgerðir á Landspítal-
anum.
Paolo segir að prentarinn komi að
góðum notum í u.þ.b. 15 aðgerðum á
ári og geti stytt fjögurra tíma að-
gerð í þrjá tíma. „Þetta er eins og að
stytta maraþonhlaup um 10 km.
Notkun nýja prentarans mun auka
enn á öryggi sjúklinga og verður
hann notaður í flóknar hjarta- og
höfuðkúpuaðgerðir, í bæklunar-
lækningum og taugaskurðlækning-
um. Með þrívíddarprentaranum get-
um við smíðað eftirlíkingar af
líffærum sjúklinga og það gefur
læknum tækifæri á að æfa flóknar
aðgerðir,“ segir Paolo.
Hann segir að samstarf HR, LSH,
HÍ og Össurar hafi gengið mjög vel
og nýja þrívíddarprentaranum sé
ætlað að nýtast til fjölbreyttra rann-
sókna, prófana og kennslu innan Há-
skólans í Reykjavík, Háskóla Ís-
lands og Landspítala háskólasjúkra-
húss. Auk þess sem prentaranum sé
ætlað að nýtast heilbrigðistæknifyr-
irtækinu Össuri við gerð frumgerða.
„Nýi þrívíddarprentarinn er gríð-
arlega nákvæmur og sem dæmi þá
er skekkja í prentun innan við 0,1
millimetri,“ segir Paolo ánægður
með tilkomu nýja prentarans.
Morgunblaðið/Eggert
Fullkominn Þorgeir Pálsson, Paolo Gargiulo og Guðrún Sævarsdóttir á kynningu á nýja þrívíddarprentaranum.
Flóknar aðgerðir taka styttri tíma Einstakur á heimsvísu
Morgunblaðið/Eggert
Nákvæmt Eftirprentun af hjarta úr manni úr mjúku og hálfgangsæju efni.
Tæknibylting
» Er staðsettur í Heilbrigðis-
tæknisetrinu í Háskólanum í
Reykjavík
» Heilbrigðistæknisetrið var
stofnað fyrir þremur árum.
Össur og Háskóli Ísland. hafa
átt í góðu samstarfi við Heil-
brigðistæknisetrið.
» Tilgangur setursins er að
veita nemendum í heilbrigðis-
verkfræði aðstöðu til tilrauna
og þróunar á lækningatækjum.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Hvað varðar okkur og aðkomu
okkar þá vottaði ég starfsmönnum
samúð mína. Það er alvarlegt að
missa vinnuna. Það eru fjölskyldur
þarna á bak við, þetta er mikið áfall
og það var þungt yfir hópnum,“
segir Kristján Gunnarsson, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis, að loknum
fundi starfs-
manna United
Silicon með Geir
Gestssyni,
skiptastjóra hins
gjaldþrota fyrir-
tækis.
Öllum starfs-
mönnum United
Silicon var form-
lega sagt upp
störfum í gær og
munu einungis 9
starfsmenn vinna áfram að ein-
hverju leyti hjá fyrirtækinu.
Skiptastjóri boðaði til fundar með
verkalýðsfélaginu og starfsmönn-
um kl. 16.00 þar sem starfsmönnum
voru tilkynntar uppsagnirnar. Af
þeim 9 starfsmönnum sem starfa
áfram eru 3 stjórnendur og 6 verka-
menn. Þau munu væntalega fá nýj-
an samning að sögn Kristjáns og
verður umsjón eigna fyrirtækisins
líklegast aðalverkefnið.
Greiddu öll launatengd gjöld
United Silicon gerði upp laun
allra starfsmanna í fyrradag og
voru greiddar allar launatengdar
greiðslur. „Það sem eftir stendur er
að við þurfum að gera kröfu í
þrotabúið um laun í uppsagnar-
fresti, desemberuppbót, eftirstöðv-
ar orlofs og þess háttar. Það eru
kröfur sem ég vil bara lýsa í
þrotabúið innan örfáa daga,“ segir
Kristján og bætir við að fundurinn
hafi verið gríðarlega erfiður fyrir
starfsmenn í gær. „Menn voru ein-
hvern veginn að halda í vonina fram
á síðustu mínútu að það yrði eitt-
hvert framhald. Við ætlum að reyna
að aðstoða eins og við bara mögu-
lega getum. Aðalatriðið er að fólk
komist aftur í vinnu, númer tvö er
að sækja þessar bætur“.
Kristján fór yfir möguleika
starfsmanna á menntunarstyrkjum
á fundinum en sagði það hefði verið
erfitt að ná til fólks enda næstu
mánaðamót ofarlega í huga flestra.
„Ég var búinn að bjóða mönnum
upp á að nýta sér möguleikana á að
nota tímann til þess að læra eitt-
hvað. Nýta sér námsframboðið en
við eigum mjög sterkt bakland í
menntastyrkjum. Þannig að við
vorum að reyna að vera uppbyggi-
leg í hópnum en maður talaði ekki
fyrir rosalega áhugasömum eyrum.
Það voru allir að velta fyrir sér
næstu mánaðamótum,“ segir Krist-
ján.
Fyrrverandi forsvarsmenn
United Silicon þöglir
Að sögn Kristján mættu nánast
allir starfsmenn United Silicon á
fundinn og segir hann fundinn hafa
farið vel fram. „Menn voru mjög
kurteisir og málefnalegir og eiga
þessir starfsmenn allt mitt hrós
fyrir það.“ Skiptastjóri fór fyrir
fundinum en fyrrverandi forsvars-
menn United Silicon mættu einnig.
„Forsvarsmenn Silicon sögðu ekki
eitt einasta orð. Það er náttúrlega
búið að leysa þá frá störfum og þeir
voru bara gestir á fundinum.“
„Það eru fjölskyld-
ur þarna á bak við“
Öllum nema níu starfsmönnum Unit-
ed Silicon formlega sagt upp störfum
Morgunblaðið/RAX
Uppsagnir Skiptastjóri boðaði til
starfsmannafundar United Silicon.
Kristján
Gunnarsson
Uppsagnir United Silicon
» Skiptastjóri boðaði til
starfsmannafundar kl. 16.
» Öllum starfsmönnum nema
9 sagt upp störfum.
» Af þeim sem halda vinnunni
eru 3 stjórnendur og 6 verka-
menn.
Norska bílferjan Bodø fer sína fyrstu áætlunarferð frá í
Vestmannaeyjum í dag og mun ferjan sjá um siglingar á
milli lands og Eyja, á meðan Herjólfur hverfur til við-
gerða, næstu 14-16 daga. Bílferjan fór til Þorlákshafnar og
til baka í gær í þeim tilgangi að máta höfnina í Þorlákshöfn
og segir Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Herj-
ólfs, að allt hafi gengið mjög vel. „Það gekk allt eins og að
var stefnt. Hún fór til Þorlákshafnar bara í þeim tilgangi
að máta landgöngubrúna. Það er aðeins öðruvísi búnaður
á ferjunni en Herjólfi en þetta gekk allt saman og verður
fyrsta ferð farin í fyrramálið,“ segir Gunnlaugur.
Athygli hefur verið vakin á því að engir klefar með koj-
um séu í ferjunni og segir Gunnlaugur að því miður hafi
slík ferja ekki verið á lausu. „Við vissum það auðvitað, það
var vitað frá upphafi að það var ekki þannig. Svarið við því
er að því miður eru bara ekki á lausu þannig ferjur sem
eru með heimild til að sigla á þessu svæði. Það er ekki úr
mörgum ferjum að velja og engin önnur en þessi var í boði
fyrir Vegagerðina sem fer með þetta verkefni.“ Þá er bíl-
ferjan Bodø fljótari og stærri en Herjólfur.
Fyrsta áætlunarferð Bodø
Bílferjan siglir milli lands
og Eyja næstu tvær vikurnar
Bílferjan Bodø Norska ferjan er fljótari á milli lands og
Eyja en áætlunarferðir verða enn jafn margar og áður.