Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 4

Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Nýr formaður Félags grunnskóla- kennara, Þorgerður Laufey Diðriks- dóttir, er dóttir Kristínar Á. Guð- mundsdóttur, formanns Sjúkra- liðafélags Íslands, og er gift Hilmari Harðarsyni, formanni Samiðnar. Þorgerður á því líklega ekki langt að sækja áhuga sinn á stéttabaráttu. Morgunblaðið fékk hana í stutt spjall af forvitni um áhuga þeirra allra á málefnum starfsstétta sem hefur skilað þeim öllum formennsku í þremur stórum stéttarfélögum. Kjör og réttindi ber oft á góma „Brennandi áhugi á verkalýðs- hreyfingunni og kjörum þeirra stétta sem við tilheyrum,“ segir Þorgerður hress í bragði. „Það er ekkert laun- ungarmál að kjör og réttindi launa- manna ber oft á góma í umræðum í fjölskyldunni. En við erum auðvitað ekkert alltaf sammála, langt frá því og tilheyrum þremur ólíkum banda- lögum, mamma er búin að vera lengi formaður innan BSRB og Hilmar innan ASÍ. Það er margt sem sam- einar þó að hitni oft í kolunum og um- ræðan verði mikil og tilfinningarík um það sem greinir á,“ segir Þor- gerður og hlær. Spurð hvort þau hafi verið henni fyrirmynd og hvatning í sambandi við sitt framboð segir hún: „Það hefur auðvitað áhrif að þau séu á sínum stöðum, það hefur verið hvatning og ég veit að það er gríðar- mikil vinna framundan.“ Þorgerður segir það vera gott að fá fjölbreytt sjónarhorn, t.d. úr kvennastétt eins og sjúkraliðastétt- inni og frá Samiðn sem er með laun- þega úr atvinnulífinu, en stétt grunn- skólakennara eru að mestu opinberir starfsmenn. Margt sé líkt en annað ólíkt. Geta ekki lifað á loftinu „Það þarf að valdefla kennara- stéttina sem þarf að fá að vinna af festu og alúð, og við þurfum að róa öllum árum að því að byggja upp traust. Það þarf að auka skilning samfélagsins á inntaki starfsem- innar. En jafnframt því að auka traust þá þarf að hækka launin. Það er ekki hægt að lifa á loftinu, það á við um kennara eins og aðrar stéttir. Kennarar þurfa að finna fyrir mikil- vægi starfsins og finna það frá al- menningi.“ Aðspurð hvort hún telji að stuðn- ingur fyrir launahækkunum fáist í samfélaginu þegar íslenska skóla- kerfið hefur ekki staðið sig vel í al- þjóða samanburði segir Þorgerður að það sé ef til vill endurspeglun á því vantrausti sem kennarastéttin finni fyrir. „Það brennur á mér að finna lausn- ina og ná fram samtali. Draga það fram sem hefur verið sett til hliðar og byggja upp traust.“ Þrír í sömu fjölskyldu for- menn stórra stéttarfélaga Kristín Á. Guðmundsdóttir Hilmar Harðarson  Nýkjörinn formaður Félags grunnskólakennara á ekki langt að sækja brennandi áhuga á verkalýðshreyfingunni Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, for- maður Félags grunnskólakennara. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skatttekjur af íbúa í Reykjavík voru um 700 þúsund krónur árið 2016 og höfðu aldrei verið hærri. Þær voru til dæmis um 50 þúsund krónum hærri en þenslu- árið 2007. Tölurn- ar eru á föstu verðlagi 2017. Þetta kemur fram í útreikn- ingum Samtaka iðnaðarins fyrir Morgunblaðið. Tilefnið er sú stefnumörkun borgaryfirvalda að innheimta inn- viðagjald þar sem byggðin er þétt. Þar sem borgin hyggst fyrst og fremst byggja upp á slíkum svæðum næstu ár mun innviðagjaldið leggj- ast á hátt hlutfall nýrra íbúða. Nýir íbúar geta því átt von á að innviða- gjaldið komi til viðbótar útsvarinu. Voru í sögulegum hæðum 2016 Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur líklegt að útsvarstekjur borg- arinnar hafi aukist frekar frá 2016. „Þegar horft er til þróunar á skatttekjum Reykjavíkurborgar á hvern íbúa á árabilinu 2002 til 2016 kemur í ljós að þær voru í sögu- legum hæðum á árinu 2016, á verð- lagi dagsins í dag. Útsvarstekjur á mann höfðu þá aldrei verið hærri. Líklegt er að þær hafi hækkað enn frekar milli áranna 2016 og 2017.“ Útreikningar Samtaka iðnaðarins benda til að tímabilið 2002 til 2016 hafi skatttekjur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu náð mestum hæðum í Mosfellsbæ árið 2016, eða um 734 þúsund krónum á hvern íbúa. Almennt hafa skatttekjur á hvern íbúa hækkað mikið í sveitarfélögun- um síðustu ár. Til upprifjunar sam- einuðust Álftanes og Garðabær í ársbyrjun 2013. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Reykjavík- urborg hyggst innheimta um 15 þús- und krónur í innviðagjald á fermetra vegna nýrra íbúða í Furugerði. Þar stendur til að reisa 35-37 íbúðir á lóð þar sem var áður gróðrarstöðin Grænahlíð. Gjaldið samsvarar 1,5 milljónum á 100 fermetra íbúð. Sigurður segir aðspurður þessa gjaldtöku bætast við miklar skatt- tekjur sveitarfélagsins. „Í samanburði við önnur sveitar- félög er Reykjavík með háar tekjur af hverjum íbúa en samanburður yf- ir tíma sýnir að flest sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins voru með sögulega háar tekjur af íbúum á árinu 2016. Það skýtur því skökku við að Reykjavíkurborg bæti við inn- viðagjaldi sem jafnvel finnst ekki lagastoð fyrir, sem á síðan að standa undir borgarlínu sem allir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa hag af. Ef af þeirri framkvæmd verður verður hún væntanlega fjármögnuð af öllum sveitarfélögum og ríkinu.“ Sigurður setur svo innviðagjaldið í samhengi við byggingarkostnað. „Byggingarkostnaður fjölbýlis- húss á 4-5 hæðum er um 340 þúsund krónur á fermetra samkvæmt reiknilíkani sem stuðst er við. Því er ljóst að 1,5 milljóna króna innviða- gjald á hverja 100 fermetra hækkar byggingarkostnað fjölbýlis um 4-5%. Þótt erfitt sé að fullyrða um áhrif á fasteignaverð, þar sem það er háð markaðsaðstæðum, blasir við að þetta hefur teljanleg áhrif á bygg- ingarkostnað,“ segir Sigurður. Gjaldtakan álitin ólögmæt Hann rifjar svo upp lagaleg álita- efni vegna innviðagjalds. „Það liggur fyrir álit lögmanna þar sem færð eru rök fyrir því að gjaldtaka Reykjavíkurborgar í formi innviðagjalds sé ólögmæt. Í álitinu segir meðal annars að það dugi að nefna að það eru ekki til staðar sett lög frá Alþingi sem mæla fyrir um álagningu innviðagjaldsins. Þá geta stjórnvöld, á borð við sveitarfélög, ekki ákveðið að standa fyrir gjald- heimtu til almennrar tekjuöflunar nema fyrir því sé skýr lagaheimild. Það lítur því út fyrir að innviðagjald- ið sé a.m.k. að stórum hluta tekjuöfl- unartæki Reykjavíkurborgar til við- bótar við þá tekjustofna sem borginni standa nú þegar til boða á grundvelli laga,“ segir Sigurður. Tekjur af íbúa aldrei meiri Útreikningar Samtaka iðnaðarins á skatttekjum sveitarfélaganna af hverjum íbúa benda til að þær hafi ekki aðeins aukist vegna fjölgunar íbúa, heldur hafi tekjur á hvern íbúa aukist. Launaskrið síðustu missera á vafalítið þátt í þeirri þróun. Vegna sögulega hárra skatttekna á hvern íbúa og nýs innviðagjalds, sem bætist við gatnagerðargjöld, má leiða líkur að því að Reykjavíkur- borg hafi aldrei haft jafn miklar skatttekjur af nýjum íbúum. Útsvarsprósentan í Reykjavík er nú 14,52%, sem er hámarksútsvar. Vegið meðaltal þess er nú 12,44%. Skatttekjurnar aldrei meiri  Skatttekjur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í sögulegum hæðum  Samtök iðnaðarins gagnrýna að innviðagjald leggist ofan á skattbyrðina Skatttekjur af íbúa í Reykjavík 2002-2016 Þúsundir króna á föstu verðlagi 2017 Heimild:SI 700 600 500 400 300 200 100 0 Útsvarstekjur Fasteignagjöld Framlag úr jöfnunarsjóði ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 484 498 520 558 598 648 631 571 529 576 584 598 618 651 699 Skatttekjur af íbúa á höfuðborgarsvæðinu Þús. kr.* 2007/2016 Garðabær Hafnarfjörður Kópavogur Mosfellsbær Reykjavík Seltjarnarnes 704/714 643/687 636/657 583/734 648/699 701/654 *Á verðlagi ársins 2017. Heimild:SI. Útsvarstekjur Fasteignagjöld Framlag úr jöfnunarsjóði 2007 2016 2007 2016 2007 2016 2007 2016 2007 2016 2007 2016 Sigurður Hannesson Afrekskona í fimleikum, Tinna Óð- insdóttir hefur stigið fram og greint frá því að landsliðsmaður frá öðru landi hafi nauðgað henni á lokahófi hefðbundins keppnisferðalags ís- lenska landsliðsins í fimleikum til Þýskalands. Tinna skýrir frá þessu í viðtali við Nútímann. Þar segir hún að tveir menn hafi aðstoðað nauðgarann við verknaðinn og þeir alveg gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að gera. Hún hafi ítrekað sagt þeim að hætta og það hefði átt að vera nóg. Í kjölfar #metoo-byltingarinnar hafa fjölmargar íþróttakonur stigið fram og lýst því yfir að þær sætti sig ekki við mismunum, ofbeldi eða áreitni. Tinna segist í viðtalinu við Nútímann vonast til þess að ákvörð- un hennar um að stíga fram geti hjálpað einhverjum í svipaðri stöðu. Hún segir að forsvarsmenn Fim- leikasambands Íslands (FÍ) hafi veitt henni mikinn stuðning þegar hún greindi frá ofbeldinu. Þau hafi verið til staðar fyrir hana, hvatt hana til þess að stíga fram og heitið aðstoð ef hún vildi kæra. Í fyrrnefndu viðtali lýsir hún því hvernig henni hafi fundist hún þurfa að sanna fyrir fólki að hún hefði sagt nei. En réttilega þurfi hún þess ekki. Hún sagði nei og það væri meira en nóg. ge@mbl.is Morgunblaðið/Eva Björk Landsliðskona Tinna Óðinsdóttir. Var nauðgað í keppnisferð  FÍ veitti Tinnu mikinn stuðning Slæmt veður var austan- og norðanlands í gær og gaf Veðurstofan út við- vörun um mikla snjó- flóðahættu á Aust- fjörðum og að töluverð hætta væri á snjóflóðum á utanverðum Trölla- skaga og á norðanverðum Vest- fjörðum. Í dag er búist við að á Norðurlandi verði blanda af snjókomu, skafrenn- ingi og vindi en það lægi þegar líði á daginn. Hins vegar er búist við stormi í dag í Öræfum og þar austan af. Björgunarsveit frá Seyðisfirði var kölluð út til aðstoðar við vegfar- endur á Fjarðarheiði í gærmorgun og í gær- kvöldi þurftu björg- unarsveitir að aðstoða vegfarendur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði. Lokað var fyrir umferð á þessum stöðum og á Öxnadalsheiði og í Vík- urskarði. Varað var við snjóflóðum austanlands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.