Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX Galvaniseraðir ruslagámar Til á lager Auðveldar steypuvinnu. Til í ýmsum stærðum Frábær lausn til að halda öllu til haga á byggingarsvæði. Aukahlutir fyrir byggingakrana Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk. Tveir þingmenn stjórnarandstöð-unnar, Helga Vala Helgadóttir frá Samfylkingu og Jón Þór Ólafs- son frá systurflokknum, eru stað- ráðnir í að vera með hávaða og standa fyrir sýndarréttarhöldum í þingnefnd til að reyna að knýja ráð- herra til afsagnar.    Jón Þór viður-kenndi í gær að hann hefði ekki stuðning á þingi til að knýja dóms- málaráðherra til að víkja, en þau gætu „haldið málinu lif- andi með rannsókn sem er það líklegasta í stöðunni til að fá hana til að axla ábyrgð.“    Jón Þór segist vilja setja þrýstingá þingmenn VG til að fá fram vantraust. Hann segist jafnframt þeirrar skoðunar að ekki sé þörf á að upplýsa málið sem deilt er um frekar, þannig að „rannsókn“ stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er aðeins sýndarmennska.    Ekki þarf að koma á óvart aðBirgir Ármannsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins, skuli hafa lýst þeirri skoðun sinni að einungis væri verið „að búa til pólitískan hávaða og skrípaleik“, enda fátítt að fram komi svo skýrt dæmi um skrípaleik á þingi.    Píratar komust inn á þing meðþau orð á vörum að vilja breyta vinnubrögðum í stjórnmálum.    Þeir boðuðu málefnalegi umræð-ur og vandaðri vinnubrögð.    Er þetta breytingin sem kjós-endum var lofað? Jón Þór Ólafsson Pólitískur skrípa- leikur pírata STAKSTEINAR Birgir Ármannsson Veður víða um heim 23.1., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 2 rigning Akureyri 1 slydda Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 5 léttskýjað Ósló 1 rigning Kaupmannahöfn 0 þoka Stokkhólmur -2 alskýjað Helsinki -6 snjókoma Lúxemborg 6 skýjað Brussel 9 skýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 8 rigning London 12 súld París 10 alskýjað Amsterdam 8 þoka Hamborg 6 skýjað Berlín 3 þoka Vín 2 þoka Moskva -9 snjókoma Algarve 14 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 18 heiðskírt Róm 14 heiðskírt Aþena 7 skýjað Winnipeg -6 snjókoma Montreal -4 þoka New York 8 rigning Chicago 0 alskýjað Orlando 23 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:32 16:49 ÍSAFJÖRÐUR 10:57 16:33 SIGLUFJÖRÐUR 10:41 16:15 DJÚPIVOGUR 10:06 16:13 Ragnhildur Steinunn Jóns- dóttir hefur verið ráðin aðstoðar- dagskrárstjóri RÚV Sjónvarps. Greint var frá ráðningu hennar á starfsmanna- fundi í gærmorg- un. Þar var til- kynnt um ýmsar breytingar og tilfærslu verkefna í framhaldi af viðameiri skipulags- breytingum sem kynntar voru í október. Starfið var ekki auglýst. Magnús Geir Þórðarson útvarps- stjóri segir að ráðningin sé í sam- ræmi við reglur Ríkisútvarpsins. Um sé að ræða skipulagsbreytingu og tilfærslu á verkefnum. Nýja starfið komi í stað þess sem áður hét framleiðslustjóri. „Ragnhildur Steinunn hefur verið í hópi dagskrárgerðarmanna og stýrt ýmsum verkefnum. Hún held- ur áfram þeim verkefnum sem hún var með en fær nú aukin verkefni og dagskrárstjóri fær hana sér við hlið til að aðstoða sig í sínum störfum,“ sagði Magnús Geir. gudni@mbl.is Aðstoðar- dagskrár- stjóri RÚV  Ragnhildur Stein- unn hækkar í tign Ragnhildur Stein- unn Jónsdóttir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) sér ekki tilefni til að aðhafast vegna ákvörðunar Íslandspósts ohf., um að fækka dreifingardögum á bréfapósti og tekur breytingin gildi óbreytt 1. febrúar 2018. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birtist í gær. Frá og með 1. febr- úar mun dreifingardögum bréfapósts í þéttbýli fækka þannig að móttak- endur fái til sín bréfapóst annan hvern dag. Þýðir það að pósturinn er borinn út til móttakanda innan þriggja daga. Í tilkynningu Íslands- pósts var vísað til nýlegrar breyting- ar á reglugerð um alþjónustu nr. 595/ 2017, þar sem kveðið er á um að heimilt sé að fækka dreifingardögum niður í allt að tvo virka daga í viku ef kringumstæður eða landfræðilegar aðstæður hindri hagkvæma dreif- ingu. Í ákvörðun Póst- og fjarskipta- stofnunar kemur fram að vegna fækkunar dreifingardaga þarf Ís- landspóstur ohf. að endurskoða gjaldskrá innan einkaréttar eigi síðar en 1. júní 2018. 220% hækkun á gjaldskrá Verðhækkanir í bréfasendingum eru reifaðar í ákvörðuninni og kemur þar fram að ef litið er til verðþróunar á burðargjöldum bréfa, innan einka- réttar, á tímabilinu frá 2007 til 2017, samanborið við vísitölu neysluverðs og vísitölu launa, kemur í ljós að á tímabilinu hækkaði gjaldskrá A- pósts um 220% og B-pósts um 195%. Á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 67% og vísitala launa um 102%. „Hér gætir því töluverðra áhrifa hinnar miklu magnminnkunar innan einkaréttar á tímabilinu, en magnið minnkaði um 57% á árunum 2007 til 2017,“ segir í ákvörðun PFS. Dreifingardögum fækkar í febrúar  Ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar um færri dreifingardaga stendur óbreytt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.