Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á öllum kjöttegundum sem framleiddar eru hér innanlands jókst á nýliðnu ári. Af stóru kjötgreinunum jókst mest sala á alifuglakjöti og styrkir sú grein stöðugt stöðu sína sem vinsælasta kjötið. Alifuglakjöt er sem fyrr vinsæl- asta kjötið á íslenska markaðnum og nálgast 10 þúsund tonna sölu á ári. Hlutfall þess af innlendu kjötkökunni er 30%. Til viðbótar er töluvert flutt inn af kjúklingi og fleiri kjötteg- undum og ruglar það samanburðinn um sölu á kjöti í heildina á mark- aðnum hér. Kindakjötið er enn næst- vinsælasta kjötið og er hlutfall þess tæp 25%. Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, telur að rekja megi verulega aukningu í sölu á ali- fugla- og nautakjöti til ferðamanna. Einnig sé nautakjöt að komast í tísku. Jákvætt sé að sjá 3,5% aukingu í sölu á kindakjöti. Veruleg umframframleiðsla Sala á kindakjöti jókst um 3,5% á nýliðnu ári sem er rúmlega einu pró- senti yfir aukningu í framleiðslu. Út- flutningur jókst og birgðir minnkuðu á árinu um 900 tonn. Miðað við sölu og framleiðslu kindakjöts á síðasta ári er framleiðslan þó enn 3600 tonn umfram sölu innanlands. Það kjöt þarf að flytja á erlenda markaði. Hefðbundnir markaðir hafa lokast og hefur þurft að selja kjötið á öðrum mörkuðum, oft við lægra verði. „Fyrri hluti ársins var mjög góður. Sumarið kom vel út og við sáum að það sem við höfum verið að gera gagnvart erlendum ferðamönnum er að virka. Við vorum að vonast til að ná svipaðri söluaukningu og á árinu 2016, sem var rúm 5%, en það hefur aðeins slegið af í haust,“ segir Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Markaðsráðs kindakjöts og markaðs- átaksins Icelandið lamb sem einkum er beint að erlendum ferðamönnum. Svavar segir ánægjulegt að sjá aukningu í sölu innanlands nú í tvö ár eftir nokkurra ára samdrátt. Það skipti verulegu máli því innanlands- markaður sé mikilvægasti markaður lambakjöts. Fuglakjöt langvinsælasta kjöttegundin  Sala á lamba- kjöti eykst annað árið í röð en minna en árið áður  Birgðir minnk- uðu um 900 tonn Nærri helmingur landsmanna, eða 46%, borðar lambakjöt að jafnaði einu sinni í viku eða oftar. Tæp 26% til viðbótar borða lambakjöt 2-3 sinnum í mánuði. Aðeins 4% segjast aldrei borða lambakjöt. Þetta er meðal niðurstaðna úr könnun sem Maskína gerði fyrir Icelandic lamb sem er markaðs- verkefni á vegum Markaðsráðs kindakjöts. Nánast allir sem spurðir voru í könnuninni lýstu yfir ánægju með íslenskt lambakjöt. Meirihlutinn sagðist borða kjötið heima hjá sér eða í matarboðum í heimahúsum. 36% sögðust borða það á veitinga- stöðum eða skyndibitastöðum. Lambið bragðast best heima KÖNNUN MEÐAL ÍSLENDINGA Hvar borðar þú oftast lambakjöt? H ei m ild : M as kí na Heima hjá mér Í matar- boðum í heimahúsumÁ veitingastöðum Á skyndi- bitastöð- um Í vinnunni eða í skóla 30,6% 25,4% 18,5% 17,2% 8,3% Morgunblaðið/Ómar Sunnudagskjúklingur Sala á alifuglakjöti hefur vaxið stöðugt í mörg ár og er fuglakjöt nú með rúman þriðjung af sölu kjöts sem hér er framleitt. Sala kjöts 2017 Tonn Tonn Heimild: Matvælastofnun Hlutdeild í % +6,9 +3,5 +2,2 +5,2 +26,9 Breyting í % frá 2015 Kindakjöt NautakjötAlifuglakjöt Svínakjöt Hrossakjöt 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Birgðir kindakjöts, tonn 6.653Ársbyrjun 5.751Árslok 34% 24,9%22,4% 16,4% 2,3% 9.530 7.481 7.395 6.667 6.976 6.269 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Matvælastofnun hefur samþykkt skráningu fyrir afurðaheitið Íslenskt lambakjöt / Icelandic lamb. Fram kemur í tilkynningu Mast að and- mæli hafi borist frá Ferskum kjöt- vörum en þeim hafi verið hafnað. Markaðsráð kindakjöts sótti um skráningu á grunvelli laga frá 2014 um vernd afurðaheita og gerði það með vísan til uppruna afurðanna. Sóst verður eftir sambærilegri vernd afurðaheitisins í Evrópusambandinu ásamt viðeigandi vottunarmerki. Til- gangur laganna er að stuðla að neyt- endavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta við- skiptahætti. Íslenskt lambakjöt verndað afurðaheiti Ómar Yamak komst á verðlaunapall á Evrópumeistaramótinu í bras- ilísku Jiu-Jitsu. Ómar náði þriðja sæti á þessu sterka móti, í sínum flokki og kom heim með brons. Evrópumeistaramótið sem haldið var í Lissabon um síðustu helgi er stærsta Jiu-Jitsu glímumót heims með yfir 4.000 keppendur að sögn Haraldar Dean Nelson, fram- kvæmdastjóra Mjölnis. Ómar vann fyrstu glímuna með Bow and Arrow-hengingu. Næstu tvær vann hann á stigum og komst þannig í undanúrslit. Í undanúrslitunum mætti Ómar, Richar Emiliano Nogueira, sem sigraði mótið en Ómar tapaði mjög jafnri glímu á stigum. Auk Ómars sem keppir og þjálfar í Mjölni, kepptu þau Kristján Helgi Hafliðason og Inga Birna Ársæls- dóttir, einnig úr Mjölni. ge@mbl.is Bronsverðlaun Ómar Yamak 3. á Evrópumeistaramótinu í Jiu-Jitsu. Brons á Evrópumeistaramóti Þrír varaþing- menn tóku sæti á Alþingi í fyrsta sinn í fyrradag þegar þingið kom saman og sóru þeir þar dreng- skapareið að stjórnarskránni. Þetta voru þau Elvar Eyvindsson sem kom inn sem varamaður fyrir Birgi Þórarinsson, Miðflokki, Olga Margrét Cilia tók sæti sem vara- maður fyrir Þórhildi Sunnu Ævars- dóttur, þingmann Pírata, og Una Hildardóttir tók sæti sem varamað- ur fyrir Rósu Björk Brynjólfs- dóttur, þingmann Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs. Þrír nýir tóku sæti á Alþingi í fyrradag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.