Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Kína og Suður-Kóreu
hafa mótmælt ákvörðun Donalds
Trump Bandaríkjaforseta um að
leggja verndartolla á innfluttar
sólarrafhlöður, eða sólskildi, og
þvottavélar til að hjálpa bandarísk-
um fyrirtækjum. Suður-Kóreu-
menn segjast ætla að kæra
verndartollana til Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar, WTO, og
talið er að Kínverjar geri það einn-
ig.
Þingmenn í sambandsríkjum,
þar sem iðnfyrirtæki hafa átt und-
ir högg að sækja, hafa fagnað
verndartollunum, þeirra á meðal
nokkrir demókratar. „Ég vil hrósa
ríkisstjórninni fyrir þessa miklu
aðstoð,“ sagði demókratinn
Sherrod Brown, sem á sæti í öld-
ungadeild þingsins fyrir Ohio og
sækist eftir endurkjöri í kosning-
unum í nóvember. Talið er að bar-
áttan um þingsætið verði mjög tví-
sýn.
„Skattar á fjölskyldur“
Nokkrir þingmenn repúblikana
voru ekki ánægðir með verndar-
tollana, að sögn The Wall Street
Journal. „Hér er nokkuð sem
repúblikanar áttu auðvelt með að
skilja: tollar eru skattar á fjöl-
skyldur,“ hefur blaðið eftir repú-
blikananum Ben Sasse, sem á sæti
í öldungadeildinni fyrir Nebraska.
Hagfræðingar, sem aðhyllast
frjálshyggju, hafa gagnrýnt
verndartollana og sagt að þeir
verði til þess að neytendur þurfi að
greiða hærra verð fyrir varning-
inn. Þeir vara einnig við því að
verndartollarnir geti leitt til við-
skiptastríðs.
Að sögn The Wall Street Journ-
al hyggst Trump grípa til fleiri að-
gerða á næstu mánuðum til að
vernda bandarísk iðnfyrirtæki.
Stjórn hans íhugar m.a. ráðstaf-
anir til að vernda bandarísk stál-
fyrirtæki og álver í nafni þjóðarör-
yggis og nýta til þess lagaheimild
sem hefur ekki verið beitt frá ní-
unda áratug aldarinnar sem leið.
Áður hafði Trump ákveðið að
draga Bandaríkin út úr fríversl-
unarsamningi landsins við ellefu
Kyrrahafsríki (e. Trans-Pacific
Partnership, TPP) og hótað að
segja upp NAFTA, fríverslunar-
samningi Norður-Ameríkuríkja.
Slíkir samningar um aukið frelsi í
milliríkjaviðskiptum hafa verið á
meðal hornsteinanna í efnahags-
stefnu Repúblikanaflokksins síð-
ustu áratugi. Repúblikaninn
George Bush eldri undirritaði
t.a.m. NAFTA-samninginn 17. des-
ember 1992, rúmum mánuði áður
en hann lét af embætti. Sonur
hans, George W. Bush, undirritaði
nokkra fríverslunarsamninga þeg-
ar hann var forseti á árunum 2001
til 2009 og var hlynntur TPP-
samningnum við Kyrrahafsríkin.
Andstaða Trumps við fríversl-
unarsamningana er því uppreisn
gegn frjálshyggjustefnu Repúblik-
anaflokksins síðustu áratugi.
Allt að 50% tollar
Trump ákvað að leggja 20%
verndartolla á fyrstu 1,2 milljónir
innfluttra þvottavéla og 50% á all-
an þvottavélainnflutning umfram
þann kvóta. Tollarnir verða síðan
lækkaðir í 16% og 40% að tveimur
árum liðnum. Tollar á sólarraf-
hlöður, eða sólskildi, verða 30% í
þrjú ár og lækkaðir í 15% á fjórða
árinu.
Forsetinn nýtti ákvæði í lögum
frá árinu 1974 sem heimilar sér-
staka tolla til að vernda fyrirtæki
ef þau geta sannað að þau hafi
orðið fyrir alvarlegum skaða vegna
stóraukins innflutnings. Stjórn
George W. Bush beitti heimildinni
árið 2002 til að vernda bandarískar
stálverksmiðjur en afnam verndar-
tollana á innflutt stál eftir að Al-
þjóðaviðskiptastofnunin úrskurðaði
að þeir samræmdust ekki alþjóða-
samningum. Síðan þá hefur enginn
Bandaríkjaforseti beitt þessari
heimild þar til nú.
Verndartollarnir koma einkum
niður á þvottavélaframleiðendum í
Suður-Kóreu og sólarrafhlöðufram-
leiðendum í Kína. Innflutningur á
kínverskum sólarrafhlöðum stuðl-
aði að því að sólarorkuframleiðslan
þrefaldaðist í Bandaríkjunum á
milli áranna 2012 og 2016 en varð
einnig til þess að verðið á rafhlöð-
unum lækkaði um 60%. Bandarísk-
ir framleiðendur urðu undir í sam-
keppninni, stöðvuðu framleiðsluna
eða urðu gjaldþrota.
Samtök bandarískra fyrirtækja,
sem setja upp sólarrafhlöður, hafa
mótmælt verndartollunum. Þau
segja að tollarnir verði til þess að
24.000 Bandaríkjamenn í atvinnu-
greininni missi vinnuna og að fjár-
festingar í sólarrafhlöðum að and-
virði milljarða dollara tefjist eða
verði afturkallaðar.
Verndartollum Trumps mótmælt
Kínverjar, S-Kóreumenn, bandarískir frjálshyggjumenn og nokkrir þingmenn repúblikana gagn-
rýna verndartolla á þvottavélar og sólarrafhlöður Nokkrir þingmenn demókrata fagna verndinni
Báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu í fyrradag
að framlengja fjárheimildir til ríkisstofnana um þrjár
vikur til að þær gætu hafið starfsemi að nýju eftir
þriggja daga lokun. Fjárheimildirnar voru samþykktar
eftir að leiðtogi repúblikana í öldungadeild þingsins,
Mitch McConnell, hét því að leggja fram frumvarp til
laga um réttindi svonefnds „draumafólks“, innflytjenda
sem voru á barnsaldri þegar þeir komu til Bandaríkj-
anna með ólöglegum hætti. Forystumenn demókrata
höfðu neitað að samþykkja fjárheimildirnar nema rétt-
indi ungu innflytjendanna yrðu tryggð en loforð
McConnells varð til þess að þeir gáfu eftir. Málamiðlun-
in varð til þess að stofnanir sem höfðu verið lokaðar í
þrjá daga gátu hafið starfsemi að nýju. Niðurstaðan er
umdeild meðal demókrata því að vinstrimenn í flokkn-
um segja að forystumenn hans hafi gefist upp fyrir
repúblikönum og Donald Trump forseta í deilunni.
Fjárheimildirnar voru samþykktar í öldungadeild-
inni með 81 atkvæði gegn 18. Sextán demókratar og
tveir repúblikanar greiddu atkvæði gegn þeim. Fjár-
heimildirnar voru síðan samþykktar með 266 atkvæð-
um gegn 150 í fulltrúadeildinni.
Fjárlög:
0
1
2
3
4
$ billj.
tekjur
Síðustu lokanir
Frá árinu 1990 hefur ríkisstofnunum í Bandaríkjunum verið lokað fimm sinnum vegna deilna um fjárlög
1989 1993 2001 2009 2017
halli í billjónum bandaríkjadala
3,65
4,09
útgjöld
Fimm lokanir á tæpum þremur áratugum
Heimild: Stjórnunar- og fjárlagaskrifstofa Hvíta hússins
Bill
Clinton
George
W. Bush
George
Bush
Barack
Obama
Donald
Trump
1990
6.-8. okt.
3 dagar
1995
14.-19. nóv.
6 dagar 15 dagar
3 dagar
21 dagur
2013
1.-16. okt.
2018
20.-22. jan.
1995-96
16. des.-6. jan.
1,4
0,44
Demókratar gáfu eftir í fjárlagadeilu
Stjórnendur Ueno-dýragarðsins í
Tókýó lengdu „vinnudag“ pöndu-
húnsins Xiang Xiang um tvær
klukkustundir í gær til að gera
fleiri gestum kleift að sjá hann með
eigin augum. Húnninn er sjö mán-
aða gamall og sá fyrsti sem fæddist
í dýragarðinum frá árinu 1988.
Rúmlega 250.000 manns tóku þátt í
happdrætti sem efnt var til í því
skyni að velja þá sem fá að skoða
húninn og fjöldi gestanna var í
fyrstu takmarkaður við 400 á dag.
Hver þeirra fékk að sjá húninn í
tvær mínútur. Hann var til sýnis í
þrjár klukkustundir á dag en sýn-
ingartíminn var lengdur í fimm
klukkustundir í gær og ráðgert er
að lengja hann í sjö klukkustundir í
næsta mánuði. Fréttaveitan AFP
hefur eftir nokkrum gestum dýra-
garðsins að þeir séu ekki vissir um
að pönduhúnninn sé orðinn nógu
gamall fyrir svo langan „vinnudag“
og telji að hann hefði átt að fá
lengri tíma til að aðlagast lífinu í
Japan sem er þekkt fyrir langan
vinnutíma og mikið starfsálag.
AFP
Vinsæl mæðgin Xiang Xiang (t.v.) með mömmu sinni, Shin Shin.
Vinnudagur pöndu-
húnsins lengdur