Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt komast að því að hæfileikar
þínir liggja á mörgum sviðum. Bryddaðu upp á
einhverju nýju á heimavígstöðvunum. Gakktu
glaður til verka því árangurinn verður frábær.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur úr mörgu að velja í viðskiptum
og þarft að vera vel vakandi svo ekkert fari úr-
skeiðis. Enginn er fullkominn og heimurinn
ferst ekki þótt eitthvað þurfi að bíða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að búa þig undir breytingar
á vinnustað þínum og þarft að tileinka þér ný
vinnubrögð. Ef þú heldur áfram á sömu braut
færðu orð á þig fyrir geggjaða snilligáfu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú þarftu að komast að niðurstöðu í
máli, sem þú hefur lengi velt fyrir þér. Vanda-
málið sem þú hélst að myndi aldrei hverfa ger-
ir það á augabragði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er það óvænt ánægja hvað þú upp-
skerð fljótt árangur erfiðis þíns. Þegar hæfi-
leikar þínir blómstra muntu hljóta viðurkenn-
ingu víða. Haltu þínu striki því þú hefur engu
að tapa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er engin ástæða til þess að láta
hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt
áætlun. Sumt er bara svona og við því er ekk-
ert að gera nema viðurkenna staðreyndir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekki þitt verk að laga alla nema
sjálfan þig - og hvað þá ef þú ert ekki í skapi til
þess. Leitaðu ráða hjá þér eldri manneskju í
dag. Sýndu fyrirhyggju í fjármálum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu engan komast í þína hluti,
nema þú hafir áður gengið úr skugga um að
þú getir treyst viðkomandi. Hafðu það hugfast
áður en þú gengur að samningaborði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú nýtur óvenjumikillar athygli og
ættir því að leggja þig fram um að líta sem
best út. Sum tækifæri koma aldrei aftur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það skiptir öllu máli að þér takist
að halda þig utan við deilur sem geisa á vinnu-
staðnum. Hugsanlegt er að tekjur maka þíns
aukist í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ósætti milli vina eða í hópi sem þú
tilheyrir er hugsanlegt í dag. Skjótt skipast
veður í lofti og það sem þú taldir öruggt, er allt
í einu ótryggt og snúið mál.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert kappsfullur með áhuga á mörg-
um sviðum og átt auðvelt með að laða fólk til
samstarfs. Nýr smekkur, nýir vinir og annað
umhverfi eru til marks um aukinn lífsþrótt.
Hér voru í gær „hissingsvísur“eftir Ólaf Stefánsson og Sig-
rúnu Haraldsdóttur, sem kvartaði
undan kulda og taldi lakar líkur á
að hún lifði fram á vor. Sigmundur
Benediktsson sendi henni „ylboð“:
Sigrún kvaðst ekki geta verið
þekkt fyrir annað en að reyna að
svara svona notalegri vísu:
Kíma fór, í kinnum rjóð,
kæti tók ég mína,
fékk er þennan fína óð
fór mér strax að hlýna
En Fía á Sandi var praktískari:
Einn, tveir, þrír og ekkert slór,
æ skal leysa vanda.
Það má prófa að bragða bjór
en betra að drekka landa.
Auðvitað fer Sigrún að ráðum
Fíu:
Lítt hér dugar leti og slór,
leysa kýs ég vanda.
Strax ég fæ mér stóran bjór
og staup af eiturlanda.
„Já, áfram stelpur! Skál!“ segir
Sigmundur:
Ei þó detti allt í sukk
áfram skolum svalĺ ánn
því skal að sér draga drukk
og djamma þorrann allan.
Og smám saman birtir yfir
Sigrúnu:
Óðar fyllir öll mín spor
illur, kaldur snjár,
kalla ég því: „kæra vor,
komdu snemma í ár“!
Fía á Sandi skaut inn:
Höldum gleði hátt á loft
þó hún sé bara í nösunum
Sinnaskipti eru oft
ofarlega í glösunum.
Og áfram hélt hún:
Hvítt er úti, dagur dvín,
dýrleg vetrar blíða.
Byrja ég að bragða vín,
bráðum dett ég í ‘ða
Mér þykir rétt að láta Sigrúnu
eiga síðasta orðið en nóg er kveðið:
Með tilþrifunum tókst með glans
að tæma úr nokkrum glösunum.
Er að syngja Óli Skans
alveg hreint á nösunum
Ármann Þorgrímsson yrkir sér
til dundurs:
Samið hef ég mikið magn,
mest í litlum gæðum,
aldrei varð neitt af því gagn,
engum breyttu fræðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hissingsvísur
og frosthörkur
FATABÚÐIR GERA OFTAST LÍTIÐ
ÚR ÚRVALINU FYRIR KARLKYNS
FATAFELLUR.
„ÞÍN BESTA VON UM BATA ER AÐ ÞÚ
ENDURHOLDGIST.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar sveitastrákur
hittir borgarstelpu.
VÆRI ÞAÐ EKKI FRÁBÆRT
EF VIÐ GÆTUM FARIÐ AFTUR
Í TÍMANN?
ÉG MYNDI FARA AFTUR
TIL FYRSTA DAGSINS
Á LEIKSKÓLANUM!
Í ÞETTA SINN MYNDI ÉG VITA
HVAR SALERNIÐ VÆRI ÁÐUR EN
ÞAÐ VÆRI UM SEINAN
ÉG MYNDI FERÐAST
AFTUR TIL TÍMANS
ÁÐUR EN ÞETTA SAM-
TAL ÁTTI SÉR STAÐ
ÉG ÆTLA Á PÖBBINN MEÐ HRÓLFI,
NÝJA VINI MÍNUM!
KOMDU
HEIM ÁÐUR
EN SÓLIN
KEMUR UPP!
VIÐ HÖFUM
HÁLFT ÁR!
ÉG Á EFTIR AÐ KUNNA
VEL VIÐ MIG HÉRNA!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AUÐVELT AÐ RÍFA AF
Kvikmyndin The Post hefur hlotiðmikið lof. Þar er fjallað um það
þegar Pentagon-skjölunum var lekið
í fjölmiðla árið 1971 og í ljós kom að
bandarísk yfirvöld höfðu blekkt al-
menning um gang stríðsins í Víet-
nam auk þess að viðhafa ýmsar
kúnstir til að hafa áhrif á gang mála
bak við tjöldin. Maðurinn á bak við
lekann heitir Daniel Ellsberg. Hann
vann í bandaríska stjórnkerfinu og
blöskraði tvískinnungurinn. Ells-
berg burðaðist með skjalabunkana,
þúsundir síðna, fram hjá öryggis-
vörðum. Nú kemst slíkt efni fyrir á
litlum minnislykli.
x x x
Ellsberg var sóttur til saka fyrir aðleka ríkisleyndarmálum og átti
yfir höfði sér rúmlega 150 ára fang-
elsi. Ellsberg var ekki vinsæll í
Hvíta húsinu. Var brotist inn á skrif-
stofu sálfræðings hans í leit að upp-
lýsingum, sem kynni að vera hægt
að nota gegn honum. Á upptökum úr
skrifstofu Richards Nixons er sam-
tal forsetans og Henrys Kissingers
þar sem sá síðarnefndi segir að
kannski sé rétt að draga réttar-
höldin yfir Ellsberg á langinn þar til
sigur hafi unnist í Víetnam því þá
verði öllum „slétt sama um stríðs-
glæpi“. Síðan kallar hann Ellsberg
„fyrirlitlegan drullusokk“. Svo fór að
dómarinn vísaði málinu frá.
x x x
Í kvikmyndinni er fjallað um þáttThe Washington Post í birtingu
Pentagon-skjalanna. The New York
Times reið hins vegar á vaðið eins og
fram kemur í myndinni og hlaut
blaðið Pulitzer-verðlaunin árið eftir.
x x x
Þótt birting Pentagon-skjalannahafi haft áhrif á viðhorf almenn-
ings til stríðsins í Víetnam og verið
Nixon til mikillar armæðu kom hún
ekki í veg fyrir að hann ynni stór-
sigur í forsetakosningunum 1972.
Nixon fékk 60,7% atkvæða, sigraði í
49 ríkjum og fékk næstum 18 millj-
ónum fleiri atkvæði en andstæð-
ingur hans, George McGovern. Tæp-
um tveimur árum eftir kosninga-
sigurinn sagði Nixon af sér vegna
Watergate-málsins. vikverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn.
(Sálm: 71:8)
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3