Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 Nýjar vinnureglur hafa tekið gildi hjá PricewaterhouseCoopers (PwC) í tengslum við afhendingu Óskarsverðlaunanna til að tryggja að mistökin frá síðasta ári endur- taki sig ekki. Þá fengu Warren Beatty og Faye Dunaway rangt um- slag í hendur með þeim afleiðingum að tilkynnt var að La La Land hefði sigrað sem mynd ársins í stað Moonligt. Nýju vinnureglurnar fela í sér að farið verður rækilega yfir það hvort kynnar séu með rétt umslag í höndum áður en þeir stíga á svið. Starfsmönnum PwC, Brian Cull- inan og Martha Ruiz sem báru ábyrgð á mistökum síðasta árs, hef- ur verið skipt út fyrir Kimberly Bourdon og Rick Rosas, sem árum saman sá um umslögin. Þriðji starfsmaður fyrirtækisins mun leggja allan vinningslistann á minn- ið og verður við hlið útsendingar- stjóra svo hægt sé að grípa strax inn í. Allir þrír starfsmennirnir munu taka þátt í æfingum fyrir af- hendinguna og æfa hvernig brugð- ist verði við hvers kyns mistökum. Vegamesta breytingin á vinnu- reglum felst þó í því að starfsmenn- irnir þrír mega ekki nota farsíma sína eða vera á samfélagsmiðlum meðan á útsendingunni stendur. Samkvæmt heimildum var Cullinan að tísta rétt áður en hann rétti Beatty ranga umslagið. Vinnureglum breytt til að hindra mistök AFP Uppnám Mistök síðasta árs þóttu pínleg. Kvikmyndin The Shape of Water í leikstjórn Guillermo del Toro hlýtur flestar tilnefningar til Óskarsverð- launanna í ár. Þetta var upplýst í gær. Myndin hlýtur samtals 13 til- nefningar, m.a. sem mynd ársins, fyrir leikstjórn og handrit. Verð- launin verða afhent við hátíðlega at- höfn vestanhafs 4. mars. Myndin Dunkirk hlýtur næst- flestar tilnefningar, eða átta talsins, m.a. sem mynd ársins, fyrir kvik- myndatökuna, klippingu og hljóðið. Fast á hæla Dunkirk kemur Three Billboards Outside Ebbing, Missouri með sjö tilnefningar, m.a. sem mynd ársins og fyrir frumsamið handrit, auk þess sem þrír leikarar myndar- innar eru tilnefndir. Alls keppa níu myndir um titilinn besta myndin. Þetta eru Call Me By Your Name, Darkest Hour, Dun- kirk, Get Out, Lady Bird, Phantom Thread, The Post, The Shape of Wa- ter og Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Tilnefndir fyrir leikstjórn eru Christopher Nolan fyrir Dunkirk, Jordan Peele fyrir Get Out, Greta Gerwig fyrir Lady Bird, Paul Thom- as Anderson fyrir Phantom Thread og Guillermo del Toro fyrir The Shape of Water. Leikkonurnar sem tilnefndar eru fyrir leik í aðalhlutverki eru Sally Hawkins í The Shape of Water, Frances McDormand í Three Bill- boards Outside Ebbing, Missouri, Margot Robbie í I, Tonya, Saoirse Ronan í Lady Bird og Meryl Streep í The Post. Leikaranir sem tilnefndir eru fyr- ir leik í aðalhlutverki eru Timothee Chalamet í Call Me By Your Name, Daniel Day-Lewis í Phantom Thread, Daniel Kaluuya í Get Out, Gary Oldman í Darkest Hour og Denzel Washington í Roman J. Isra- el, Esq. Leikkonurnar sem tilnefndar eru fyrir leik í aukahlutverki eru Mary J Blige í Mudbound, Allison Janney í I, Tonya, Lesley Manville í Phantom Thread, Laurie Metcalf í Lady Bird og Octavia Spencer í The Shape of Water. Leikararnir sem tilnefndir eru fyrir leik í aukahlutverki eru Willem Dafoe í The Florida Project, Woody Harrelson í Three Billboards Out- side Ebbing, Missouri, Richard Jenkins í The Shape of Water, Chri- stopher Plummer í All the Money in the World og Sam Rockwell í Three Billboards Outside Ebbing, Mis- souri. Fyrir frumsamið handrit eru til- nefnd Emily V. Gordon og Kumail Nanjiani fyrir The Big Sick, Jordan Peele fyrir Get Out, Greta Gerwig fyrir Lady Bird, Guillermo del Toro og Vanessa Taylor fyrir The Shape of Water og Martin McDonagh fyrir Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Teiknimyndirnar sem tilnefndar eru þetta árið eru Boss Baby, The Breadwinner, Coco, Ferdinand og Loving Vincent. Spennan um Óskarinn eykst Frances McDormand  The Shape of Water með 13 tilnefningar Guillermo del Toro Gary Oldman Ástarsaga Sally Hawkins með sæskrímslinu í The Shape of Water. Greta Gerwig Undir trénu 12 Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði for- eldranna skyggir á garð ná- grannanna, sem eru þreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Morgunblaðið bbbbn IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.00, 22.15 On Body and Soul 12 Óvenjuleg ástarsaga sem gerist í hversdagsleikanum, sem hverfist um markaleysið á milli svefns og vöku, huga og líkama. Metacritic 71/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 17.30, 20.00, 22.30 Gotowi na wszystko. Eksterminator Myndin fjallar um fimm vini sem ákveða að hrista upp í pólsku þungarokkssenunni. IMDb 6,1/10 Bíó Paradís 20.00 Eldfim ást 16 IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 17.30, 22.30 I, Tonya 12 Metacritic 73/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 20.00 12 Strong 16 Myndin segir frá fyrstu sér- sveitinni sem er send til Afg- anistan til að berjast við Ta- líbana eftir hryðjuverkin 11. september 2001. Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 19.40, 22.00, 22.30 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Fjögur ungmenni finna gaml- an tölvuleik en komast fljótt að því að þetta er enginn venjulegur leikur. Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 16.50, 19.20, 19.40, 22.20 Háskólabíó 21.00 Svanurinn 12 IMDb 7,0/10 Háskólabíó 18.10, 20.50 Borgarbíó Akureyri 18.00 Father Figures 12 Metacritic 23/100 IMDb 5,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.40 Wonder Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 16 Mildred Hayes, fráskilin móðir hefur ekki enn jafnað sig á hrottalegu morði sex- tán ára dóttur sinnar. Metacritic 88/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 16.40, 22.30 Háskólabíó 18.00, 20.50 Downsizing 12 Metacritic 63/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.30 Sambíóin Egilshöll 19.40 The Disaster Artist 12 Metacritic 76/100 IMDb 8,2/10 Sambíóin Egilshöll 22.20 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20 Bíó Paradís 18.00 All the Money in the World 16 Metacritic 73/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Háskólabíó 18.00 Pitch Perfect 3 12 Metacritic 40/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 15.10, 17.20, 20.00 The Greatest Showman 12 Metacritic 48/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Háskólabíó 18.10, 21.10 Ævintýri í Undirdjúpum IMDb 4,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.50 Paddington 2 Paddington hefur sest að hjá Brown fjölskyldunni og er orðinn visæll meðlimur sam- félagsins. Metacritic 89/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.00, 17.20 Ferdinand Ferdinand er risastórt naut með stórt hjarta. Hann er tekinn í misgripum fyrir hættulegt óargadýr, og er fangaður og fluttur frá heim- ili og fjölskyldu.. Metacritic 58/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.00, 17.30 Coco Röð atburða, sem tengjast aldagamalli ráðgátu, fer af stað. Það leiðir til óvenju- legra fjölskylduendurfunda. Metacritic 81/100 IMDb 8,7/10 Sambíóin Kringlunni 17.40 Yfirhylming sem náði yfir setu fjögurra Banda- ríkjaforseta í embætti, varð til þess að fyrsti kvenkyns dagblaðaútgefandinn og metn- aðarfullur ritstjóri, lentu í eldlínunni. Metacritic 83/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 18.30, 21.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 20.00 The Post 12 Star Wars VIII - The Last Jedi 12 Myndin byrjar þar sem sú síðasta endaði. Rey heldur áfram ferðalagi sínu með Finn, Poe og Luke Skywalker. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 85/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.30 Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 19.30 Sambíóin Akureyri 17.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio The Commuter 12 Tryggingasölumaðurinn Michael ferðast daglega með lest til og frá vinnu. Dag einn hefur ókunnugur og dularfullur ein- staklingur samband við hann. Metacritic 68/100 IMDb 5,7/10 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 19.50, 22.20 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.