Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018
Nýjasta Transformers-myndin,
Transformers XVII: The Last
Knight, fékk flestar tilnefningar til
Razzies-verðlaunanna (Gullna hind-
bersins) en það eru háðungarverð-
laun sem veitt eru fyrir þær kvik-
myndir sem þykja lélegastar.
Myndin hlýtur samtals níu tilnefn-
ingar og er tilnefnd í öllum verð-
launaflokkum nema fyrir verstu
frammistöðu leikkonu.
Leikarinn Mark Wahlberg er til-
nefndur fyrir frammistöðu sína í
myndinni og keppir þar við Tom
Cruise í The Mummy, Johnny Depp í
Pirates of The Caribbean XIII: Dead
Men Tell No Tales, Jamie Dornan í
Fifty Shades Darker og Zac Efron í
Baywatch.
Leikstjórinn Michael Bay er til-
nefndur fyrir Transformers og
keppir við Darren Aronofsky fyrir
Mother!, James Foley fyrir Fifty
Shades Darker, Alex Kurtzman fyr-
ir The Mummy og Anthony Leonidis
fyrir The Emoji Movie.
Um titilinn versta mynd ársins
keppa auk Transformers myndirnar
Baywatch, Fifty Shades Darker,
The Mummy og The Emoji Movie.
Verstu frammistöðu í aðal-
hlutverki þótti sýna þær Katherine
Heigl í Unforgettable, Dakota John-
son í Fifty Shades Darker, Jennifer
Lawrence í Mother!, Tyler Perry í
BOO! 2: A Medea Halloween og
Emma Watson í The Circle.
Verðlaunin verða afhent 3. mars,
degi áður en sjálfur Óskarinn er
veittur.
Ofmetinn? Mark Wahlberg í hlutverki sínu í Transformers-mynd.
Tilnefnt til skammar-
verðlauna vestanhafs
Bandaríski tónlistarmaðurinn Neil
Diamond hefur tilkynnt að hann
muni ekki fara í frekari tónleika-
ferðir þar sem hann hafi greinst
með Parkinsons-sjúkdóminn.
Diamond á afmæli í dag, verður 77
ára og hefur hann aflýst tónleika-
ferð um Ástralíu og Nýja-Sjáland í
mars á þessu ári, skv. ráðlegg-
ingum lækna.
Diamond hefur nú lokið um
helmingi þeirra tónleika sem halda
átti í tilefni af 50 ára ferilsafmæli
hans og í tilkynningu segir hann að
erfitt hafi verið að taka þá ákvörð-
un að hætta tónleikahaldi. „Það
hefur verið mér mikill heiður að
halda tónleika fyrir almenning síð-
astliðin 50 ár,“ segir Diamond í til-
kynningunni og biður þá innilega
afsökunar sem keypt hafa miða á
tónleika hans sem nú hefur verið
aflýst.
Á vef BBC er greint frá því að
Diamond hafi selt yfir 130 milljónir
platna á heimsvísu og mun hann
hljóta heiðursverðlaun fyrir ævi-
starfið á Grammy-verðlaunahátíð-
inni á sunnudaginn.
Vinir og aðdáendur hafa sent
Diamond baráttukveðjur á sam-
félagsmiðlum, m.a. söngvararnir
Barry Manilow og Nancy Sinatra.
Diamond með Parkinsons-sjúkdóminn
AFP
77 ára Diamond hefur aflýst öllum
tónleikum vegna veikinda sinna.
Kvikmyndin The Nile Hilton Inci-
dent var sigursælust þegar verðlaun
sænsku kvikmyndaakademíunnar,
Guldbaggen eða Gullbjallan, voru
afhent sl. mánudagskvöld. Myndin
hlaut samtals fimm verðlaun, sem
besta myndin, fyrir bestu leikmynd,
búninga og hljóð auk þess sem
Fares Fares var verðlaunaður sem
besti leikari í aðalhlutverki.
Næstflest verðlaun, eða samtals
fern, hlaut Sameblod, en myndin var
sem kunnugt er tilnefnd til Kvik-
myndaverðlauna Norðurlandaráðs
fyrir hönd Svía. Leikstjórinn
Amanda Kernell var verðlaunuð fyr-
ir handrit sitt og Lene Cecilia
Sparrok þótti besta leikkonan í aðal-
hlutverki, en myndin var einnig
verðlaunuð fyrir klippinguna.
Myndirnar The Square og Borg
hlutu tvenn verðlaun hvor. Ruben
Östlund var verðlaunaður fyrir leik-
stjórn á The Square auk þess sem
myndin þótti sú best kvikmyndaða.
Stellan Skarsgård þótti besti leik-
arinn í aukahlutverki í Borg auk
þess sem myndin þótti bjóða upp á
bestu sjónrænu brellurnar. Sem
kunnugt er fer Sverrir Guðnason
með hlutverk Björns Borg í mynd-
inni.
Óhætt er að segja að sænskar
leikkonur hafi stolið senunni á verð-
launakvöldinu með óvæntum gjörn-
ingi. Margar þeirra mættu svart-
klæddar líkt og starfssystur þeirra
þegar Golden Globe-verðlaunin voru
afhent í fyrr í mánuðinum. Svarti lit-
urinn fól í sér mótmæli gegn þeirri
kynferðislegu áreitni og ofbeldi sem
konur verða fyrir í kvikmynda-
bransanum, en alls hafa rúmlega
800 sænskar leikkonur mótmælt of-
beldinu undir merkjum #tystnad-
tagning sem er sænska útgáfan af
#metoo. Svartkæddu sænsku leik-
konurnar gengu í upphafi kvölds
hönd í hönd eftir rauða dreglinum
undir kröftugum trommuslætti. Í
miðri verðlaunadagskrá á mánudag,
sem sýnd var í beinni útsendingu á
SVT, risu um fimmtíu þeirra úr sæt-
um sínum og fóru upp á svið. Þar
ávörpuðu Mia Skäringer, Angelika
Prick og Ingela Olsson gesti og
gerðu #metoo-byltinguna að um-
talsefni. „Í dag líkist það vísinda-
skáldskap að hugsa sér að konur
njóti réttinda til jafns við karla, fái
jafnlangan tíma til að tjá sig jafnt á
vinnufundum sem og á hvíta tjald-
inu. Sú hugmynd að konur geti
ferðast öruggar er enn fjarlægur
draumur. Er þetta framtíðin? Er
það svona sem við viljum hafa hlut-
ina? Við viljum gjarnan taka næsta
skref. En sumum finnst við nú þeg-
ar hafa gengið of langt,“ sagði Mia
Skäringer.
„Tökum næsta skref saman inn í
framtíðina. Kæri bróðir, kæra syst-
ir, við veljum ekki eigin húðlit og við
veljum heldur ekki eigið kyn,“ sagði
Angelika Prick.
„Hættum að flissa að óviðeigandi
bröndurum – við þurfum að rjúfa
þögnina þannig að heimurinn allur
skilji að ekki verður lengur þagað
yfir afleiðingum kynferðislegrar
áreitni,“ sagði Ingela Olsson.
„Núna tökum við þetta skref sam-
an, fyrir þau sem á undan hafa
gengið og þau sem eftir koma, fyrir
systur okkar og bræður,“ sagði Mia
Skäringer að lokum og hlaut hópur-
inn ákaft lófatak frá gestum verð-
launaafhendingarinnar sem risu öll
úr sætum.
silja@mbl.is
Ljósmynd/Skjáskot af vef SVT
Svart Um fimmtíu svartklæddar leikkonur tóku þátt í gjörningi við afhendinguna og mótmæltu kynbundnu ofbeldi.
Gullbjallan afhent
Amanda Kernell Ruben Östlund
Sænskar leikkonur vöktu athygli með óvæntri uppákomu
Er bíllinn tilbúinn
TUDOR TUDOR
TUDOR er hannaður til þess að þola
það álag sem kaldar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur.
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
fyrir kuldann í vetur?
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 5.30