Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 24. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Landsliðskonu í fimleikum …
2. Slysvaldur væntanlega ölvaður
3. Flóðbylgjuviðvörun vegna …
4. Útlit fyrir gamaldags stórhríð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Utandagskrá tónlistarhátíðar-
innar Myrkra músíkdaga hefst í
menningarhúsinu Mengi í kvöld kl.
21 með flutningi á Átta oktettum
eftir Guðmund Stein Gunnarsson.
Guðmundur kemur fram á tónleik-
unum með félögum úr Fersteini og
Fengjastrúti. Verkin voru samin að
mestu í Cork á Írlandi í yfirgefnu
bókasafni fransiskanamunka. Þau
hafa farið vítt og breitt og verið
flutt í ýmsum búningi og þá m.a. af
hljómsveitinni Fersteini. Verkin
voru upprunalega hugsuð sem
heild en hafa ekki verið flutt sem
slík og nokkur hafa aldrei verið
flutt. Sum voru á plötunni Lárviður
með Fersteini sem kom út hjá Trak-
tornum í fyrra en sex plötur komu
samtals út í fyrra með nýju efni
eftir Guðmund Stein og mun hann
kynna þær milli verka í kvöld.
Átta oktettar í Mengi
Sinfóníuhljómsveitir Norðurlands
og Færeyja munu sameina krafta sína
á tónleikum sem haldnir verða í Norð-
urlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum
3. febrúar. Söngkonurnar Eivör Páls-
dóttir og Valgerður Guðnadóttir og
gítarleikarinn Guðmundur Pétursson
koma fram með hljómsveitunum og
flytja tvö íslensk verk og eitt fær-
eyskt og einnig munu koma fram
meðlimir Kammerkórs Akureyrar og
Kórs Sinfóníuhljómsveitar Færeyja. Á
næsta ári er svo stefnt
að því að Sinfóníu-
hljómsveit Færeyja
komi til Íslands og að
haldnir verði Fær-
eyja-skotnir tón-
leikar í Hofi og í
Hörpu með sam-
einuðum hljóm-
sveitunum.
Sinfóníuhljómsveitir
sameinast í Þórshöfn
Á fimmtudag Minnkandi norðanátt og víða léttskýjað sunnan og
vestan til, en stöku él á Norður- og Austurlandi. Kólnandi veður.
Á föstudag Suðaustan og austan 8-15 m/s og dálítil snjókoma
sunnan- og vestanlands í fyrstu, en síðan slydda eða rigning.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 13-23, hvassast um landið norð-
an- og vestanvert og undir Vatnajökli. Hiti nálægt frostmarki.
VEÐUR
Íþróttamaður ársins, Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir úr
GR, mun á morgun hefja
leik á nýju keppnistímabili á
bandarísku LPGA-móta-
röðinni í golfi. Ólafía er
mætt til Bahama-eyja þar
sem Pure Silk-mótið fer
fram næstu dagana. Þar
hófst einmitt ferill Ólafíu á
mótaröðinni fyrir ári. Und-
irbúningur Ólafíu er hins
vegar gerólíkur í þetta
skipti. » 4
Ólafía er mætt til
Bahama-eyja
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðna-
son segir að 2017 hafi verið ömurlegt
ár, eftir að hafa gengið allt í haginn
2016, en hann er staðráðinn í að
bæta fyrir það með því að komast á
Evrópumeistaramótið í Berlín í sum-
ar. Hann hefur æft af krafti í Banda-
ríkjunum og segir 100 prósent líkur á
að hann nái sínu takmarki ef hann
helst heill heilsu. »1
Guðni ætlar að bæta
fyrir ömurlegt ár 2017
Valur tapaði sínum fyrsta leik á þess-
um vetri á Íslandsmóti kvenna í hand-
knattleik, Olísdeildinni, þegar Valur
sótti Fram heim í Safamýri í gær-
kvöldi. Íslandsmeistarar Fram unnu
með sex marka mun, 24:18, hleyptu
spennu í toppbaráttuna. Stjarnan
lagði Fjölni örugglega og Selfoss lyfti
sér upp úr botnbaráttunni með sigri
á Gróttu á heimavelli. »2
Fyrsta tap Valskvenna á
Íslandsmótinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Minningartónleikar um Bjarna Ei-
ríksson, lögmann, ljósmyndara og
trommara, undir yfirskriftinni Ástin
og dauðinn verða haldnir í Iðnó nk.
föstudagskvöld og hefjast klukkan
21. Félagar Bjarna standa að við-
burðinum og rennur allur ágóði til
Pieta Ísland, samtaka gegn sjálfs-
vígum og sjálfsskaða, í nafni Bjarna.
Þórður Bogason lögmaður er
helsti hvatamaðurinn að tónleik-
unum, en þeir Bjarni kynntust í
Menntaskólanum við Sund og voru
félagar alla tíð þar til Bjarni lést 12.
júní í fyrra. Bjarni var ljósmyndari á
Morgunblaðinu um árabil en fór síð-
an í lögfræði og starfaði sem lögmað-
ur þar til yfir lauk.
„2011 stofnuðum við pönkbandið
Toivoton Keis, sem þýðir vonlaus
ístra og við hefðum kannski átt að
stofna það 30 árum áður, og okkur
vantaði trommara,“ rifjar Þórður
upp. „Ég á trommusett og fékk
Bjarna til þess að setjast við það,
hann kunni vel við það, ég réð hann
og þar við sat.“
Þrjú bönd
Mikil gleði var í kringum bandið
og því varð það Bjarna mikið áfall,
að sögn Þórðar, þegar hann fór í að-
gerð á hné og varð að hætta að
tromma í kjölfarið. „Hann var á
heimavelli í tónlistinni enda mikill
músíkant og þetta hafði mikil áhrif á
hann,“ segir Þórður. Hann bætir við
að með þetta í huga hafi hann viljað
halda minningu Bjarna á lofti með
tónleikum og styrkja gott málefni í
leiðinni í hans nafni. Eðlilega sé mál-
ið viðkvæmt og framkvæmdin sé
með fullu samþykki aðstandenda
Bjarna. „Þetta verður svona vaka í
írskum stíl, þar sem við gleðjumst
yfir því liðna frekar en að láta sorg-
ina ráða.“
Auk síðpönkbandsins Toivoton
Keis, sem Þórður, Bjarni, Einar
Mäntylä og Ingólfur Björnsson
stofnuðu (síðan hafa Ólafur Haralds-
son og Björn Hannesson bæst við),
stígur sveitin Úrkula á svið. Hún er
skipuð bræðrunum Ásgeiri og Viggó
Ásgeirssonum, Arnari Þórissyni,
Haraldi Þorsteinssyni og Tómasi
Bjarnasyni. „Halli og Tommi voru
með Skonrokk í gamla daga og
bandið hefur verið í samkeppni við
okkur,“ segir Þórður.
Þriðja bandið verður síðan hljóm-
sveitin LHG Rokk & blús. Í henni
eru Hermann Sæmundsson, fyrrver-
andi liðsmaður TK, Lárus Grímsson,
Árni Sigurðsson, Þórólfur Guðna-
son, Guðjón Hilmarsson og Ársæll
Másson. „Við teljum að við munum
frumflytja hérlendis lagið Fire með
Arthur Brown,“ segir Hermann um
helsta leynivopn sveitarinnar.
„Þarna er hver snillingurinn á fætur
öðrum,“ bendir Þórður á.
Ástin og dauðinn í Iðnó
Minningartón-
leikar um Bjarna
Eiríksson
LHG rokk&blús Sveitin var stofnuð sérstaklega fyrir viðburðinn í Iðnó. Frá vinstri: Árni Sigurðsson, Ársæll Más-
son, Lárus Halldór Grímsson, Þórólfur Guðnason, Guðjón Hilmarsson og Hermann Sæmundsson.
Stofnfélagar Toivoton Þórður Bogason, gítar, Ingólfur Björnsson, hljóm-
borð, Einar Mäntylä, bassi, og Bjarni Eiríksson, trommur.