Morgunblaðið - 30.01.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Hægt er nota efni sem að uppi-
stöðu er safi úr sykurrófum til að
verjast og eyða hálku á götum og
gangstígum. Það er mun um-
hverfisvænni aðferð en notkun
salts. Þetta segir Símon Sím-
onarson hjá Hellubjörgum, en
hann hefur í um tvo áratugi starf-
að við hálkuvarnir og snjómokst-
ur í Reykjavík. Fyrirtæki hans
hefur fengið umboð fyrir vörur
frá Ecosolutions í Kanada sem
m.a. hefur notað sykurrófusafa
blandaðan í saltpækil til hálku-
varna með góðum árangri. Stend-
ur til að prófa aðferðina hér á
næstunni og kynna hana sveitar-
félögum, stofnunum og fyrir-
tækjum sem árlega leggja í mik-
inn kostnað við saltburð til að
eyða hálku á götum, bílastæðum
og gangstéttum.
Símon vekur athygli á grein í
nýjasta tölublaði Bændablaðsins
þar sem fram kemur að rann-
sóknir í Bandaríkjunum sýna að
notkun á salti til hálkuvarna er
farin að valda alvarlegri mengun
í ferskvatnsám, stöðuvötnum og
grunnvatnslindum. „Ég hef lengi
velt því fyrir hvort ekki sé hægt
að nota umhverfisvænni efni en
salt til hálkuvarna,“ segir hann.
Það verði mjög spennandi að
prófa sykurrófusafann hér á landi
en hann hafi gefist vel í Banda-
ríkjunum og Kanada.
Símon segir að efniskostnaður-
inn sem slíkur sé meiri þegar syk-
urrófusafi er notaður en við salt-
notkun. En tvær hliðar séu á því.
Sykurrófusafinn sé ekki aðeins
umhverfisvænni heldur líka end-
ingarbetri en saltið og nýtist að
auki við mun lægra hitastig, þ.e.
meira frost, þegar salt er hætt að
virka. Um fimmtungur af saltinu
fjúki að auki burt þegar verið er
að bera það á, en sykurrófusafinn
er svo klístraður að hann fer ekki
til spillis á sama hátt. Í reynd þýði
þetta að hagkvæmara sé að nota
nýju aðferðina við hálkuvarnir en
að halda saltaustrinum áfram.
„Ég tel að með þessari aðferð sé
hægt að draga úr saltnotkun til
hálkuvarna um allt að 30%,“ segir
Símon.
Sykur verið unninn úr sykur-
rófum í nær þrjár aldir. Hann er
að finna í rót jurtarinnar. Á Vís-
indavefnum segir að framleiðslan
fari þannig fram að sykurrófur
séu skornar niður og látnar í heitt
vatnsbað. Safinn úr þeim er síðan
látinn kristallast við uppgufun svo
að úr verður hrásykur.
Símon segir að hratið eða saf-
inn sem eftir verður við fram-
leiðsluna hafi hingað til ekki ver-
ið nýttur heldur fargað. Það sé
því þjóðráð að nota hann við
hálkuvarnir.
Vill eyða hálk-
unni með safa
úr sykurrófum
Salt til hálkuvarna er farið að valda
alvarlegri mengun í ferskvatni
Ljósmynd/City of Calgary.
Hálkuvörn Borgaryfirvöld í Calgary í Kanada eru meðal fjölmargra vest-
anhafs sem notað hafa sykurrófusafann í hálkuvarnir með góðum árangri.
Almenningssalernin í skiptistöð
Strætó í Mjódd í Breiðholti verða
opnuð að nýju um miðjan næsta
mánuð en þau hafa verið lokuð árum
saman.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgarráði hafa ítrekað lagt fram til-
lögur um úrbætur á skiptistöðinni í
Mjódd í því skyni að bæta þjónustu
við strætisvagnafarþega, nú síðast á
fundi ráðsins í síðustu viku.
Á fundinum var lögð fram umsögn
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
borgarinnar um málið. Þar kemur
fram að borgarfulltrúar hafi óskað
eftir að komið yrði til móts við þá
sem hafa ekki greiðslukort, t.d. börn
og unglinga og setja upp búnað sem
tæki bæði greiðslukort og peninga.
Þetta sé flóknari búnaður og kalli á
meiri þjónustu. Ákveðið hafi verið að
setja upp slíkan búnað og farið var í
að panta hann strax.
Til viðbótar þessu kom í ljós að
fara varð í meiri endurbætur á hús-
næðinu en upphaflega var gert ráð
fyrir og þá sérstaklega til að auka
aðgengi fatlaðra. Þörf var á því að
endurbæta rafkerfi, rafbúnað og ljós
og skipta út hluta salernistækja.
Þessi atriði hafi tafið opnun. Fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins þökkuðu
svörin í bókun og minntu um á leið á
aðrar tillögur um umbætur á skipti-
stöðinni í Mjódd í því skyni að bæta
þjónustu á þessari fjölförnustu um-
ferðarmiðstöð landsins. Fjölga þurfi
sætum í biðsal og lagfæra þau sem
fyrir eru. Þá er lagt til að skiptistöð-
in verði opin á kvöldin. „Er núver-
andi ástand óviðunandi þar sem bið-
salurinn er lokaður á kvöldin og
farþegar þurfa þá að bíða utandyra í
kulda og trekki,“ segir í bókuninni.
sisi@mbl.is
Salerni í Mjódd opnuð á ný
Morgunblaðið/Eggert
Skiptistöð í Mjódd „Farþegar þurfa þá að bíða utandyra í kulda og trekki.“
Leggja til að skiptistöð Strætó verði opin á kvöldin
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.
Ný verk eftir
Ole
Ahlberg
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Vefuppboð
Bragi Ásgeirsson – lýkur 2. febrúar
Þrívíð verk – lýkur 7. febrúar
Bókauppoð – lýkur 11. febrúar
Atvinna