Morgunblaðið - 30.01.2018, Blaðsíða 27
Eftir stúdentspróf fór Stefán í
verkfræði og Sigríður í lyfjafræði.
Eftir BS-próf frá HÍ 1966 fluttu þau
til Þrándheims í Noregi þar sem
Stefán lauk verkfræðinámi og Sig-
ríður stundaði framhaldsnám í líf-
efnafræði og örverufræði við
Tækniháskólann í Þrándheimi.
Eftir heimkomuna var Sigríður
stundakennari við verklega kennslu í
lífefnafræði í læknadeild í u.þ.b. 30 ár
og kenndi lengi meinatækninemum
og nemum í framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans í Reykjavík. Hún var
lyfjafræðingur í afleysingum um
skeið, en Stefán sinnti verkfræði,
lengi með eigin stofu. Þar vann Sig-
ríður skrifstofustörf.
Þau hjónin byggðu sér einbýlishús
í Langagerði, fluttu í það tæplega
þrítug og fjölskyldan stækkaði.
Sigríður hefur alltaf haft áhuga á
gróðri, gekk í Garðyrkjufélag Ís-
lands, sat í stjórn félagsins í tæp 20
ár, var fyrsta konan sem þar varð
formaður, hefur skrifað greinar um
ræktun í blöð og tímarit, einkum
Garðyrkjuritið, og var sæmd gull-
merki GÍ fyrir störf sín, var ritstjóri
þáttarins Blóm vikunnar í Morg-
unblaðinu 1986-2009, fyrst ásamt
Ágústu Björnsdóttur.
Sigríður var formaður Félags
Framsóknarkvenna í Reykjavík, var
oft á framboðslistum til sveitar-
stjórnar- og alþingiskosninga og
varamaður á Alþingi í nokkrar vikur,
en þá sátu sjö ættmenni hennar á Al-
þingi. Sigríður lauk svo BA-námi í
sagnfræði frá HÍ 2002.
Lengi leið varla svo helgi að ekki
færi fjölskyldan í fjallaferð, enda hef-
ur góður fjallabíll verið fjölskyldunni
ómissandi frá því þau hjón komu frá
námi. Árið 1974 fengu þau skika til
ræktunar úr landi jarðarinnar
Fljótsdals í Fljótshlíð og þar komu
þau sér upp sumarbústað í fyllingu
tímans og sinntu ræktun í frí-
stundum. Árið 2000 keyptu þau jörð-
ina Múlakot II í Fljótshlíð, Stefán
hætti verkfræðistörfum , þau byggðu
sér íbúðarhús á jörðinni, fluttu alfar-
ið þangað árið 2004, hafa síðan verið
skógarbændur og hafa gróðursett á
annað hundrað þúsund aspir á Mark-
arfljótsaurum. Þau starfa í Félagi
skógareigenda á Suðurlandi þar sem
Sigríður gegnir ritarastörfum.
Gömlu bæjarhúsin og skrúðgarð-
urinn í Múlakoti voru friðuð haustið
2014. Eftir það var stofnuð sjálfs-
eignarstofnun sem þau hjónin eru
aðilar að, ásamt sveitarfélaginu,
Rangárþingi eystra, og Skógasafni.
Þau gáfu stofnuninni gömlu húsinn
og garðinn til eignar, en markmið
stofnunarinnar er að vinna að end-
urbyggingu húsnæðisins og opna það
almenningi. Eins var stofnað Vina-
félag sem í eru 100 manns en þar er
Sigríður í stjórn.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Guðjón
Stefán Guðbergsson, f. 7.7. 1943,
verkfræðingur og skógarbóndi. For-
eldrar hans voru hjónin Ingveldur
Stefánsdóttir, f. 1.5. 1906, d. 16.5.
1990, saumakona, og Guðbergur
Guðjónsson, f. 15.9. 1902, d. 7.12.
1987, húsvörður í Reykjavík.
Synir Sigríðar og Guðjóns Stefáns
eru 1) Hjörtur, f. 8.6. 1964, bygg-
ingaverkfræðingur í Reykjavík en
eiginkona hans er Auður Ólafsdóttir
byggingaverkfræðingur og eiga þau
þrjú börn; 2) Bergur, f. 21.5. 1974,
læknir, búsettur í Garðabæ en eig-
inkona hans er María M. Magnús-
dóttir geislafræðingur og eiga þau
þrjá syni, og 3) Hlynur, f. 24.6. 1976,
vélaverkfræðingur í Reykjavík en
eiginkona hans er Brynja Björk
Magnúsdóttir taugasálfræðingur og
eiga þau tvær dætur.
Systkini Sigríðar: Jóna Björg, f.
17.2. 1941, kennari í Hollandi; Elín, f.
20.9. 1944, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík, og Egill, f. 31.8. 1948, d.
11.3. 2017, rafmagnstæknifræðingur.
Foreldrar Sigríðar voru hjónin
Guðrún Jónsdóttir Hjartar, f. 23.11.
1915, d. 14.12. 2009, kennari, og
Hjörtur Hjartar, f. 9.1. 1917, d. 14.1.
1993, framkvæmdastjóri.
Sigríður Hjartar
Hjörtur Bjarnason
b. og sjóm. á Þingeyri, af Arnarhólsætt í Rvík
Steinunn Guðlaugsdóttir
húsfr. á Þingeyri
Ólafur Ragnar Hjartar
járnsmiður á Þingeyri
Sigríður Kristín Egilsdóttir
húsfr. á Þingeyri
Hjörtur Hjartar
framkv.stj. í Rvík
Egill Jónsson
sjóm. á Þingeyri
Sigríður Bergsdóttir
húsfr. á Þingeyri
Svanhildur
Ólafsdóttir Hjartar
húsfr. á Ísafirði
Ólafur Ragnar
Grímsson fyrrv.
forseti Íslands
Jón Leifs tónskáld Þorleifur Jónsson póstmeistari og alþm. í Rvík
Jón Kaldal ljósmyndari Jón Jónsson b. í Stóradal
Jón Pálmason
b. og alþingisforseti á Akri
Pálmi Jónsson
alþm. og ráðherra á Akri
Pálmi Jónsson
b. á Ytri-Löngumýri
Jón Guðmundsson
b. á Guðlaugsstöðum og í
Stóradal, sonur Guðmundar
Arnljótssonar alþm.
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. á Guðlaugsstöðum, dóttir Jóns Pálmasonar
alþm. í Stóradal, af Skeggsstaðaætt
Jón Jónsson
b. og alþm. í Stóradal
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir
húsfr. í Stóradal í A-Hún.
Brynjólfur Vigfússon
trésmiður á Blönduósi
Þórey Sveinsdóttir
húsfr. á Blönduósi
Úr frændgarði Sigríðar Hjartar
Guðrún Jónsdóttir Hjartar
kennari í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
30% afsláttur af
rafdrifnum skrifborðum
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Verð frá 68.947 kr.
Hæðarstillanleg rafdrifin borð stuðla að betri
líkamsstöðu og bættri líðan í vinnunni.
STOFNAÐ 1956
Ólafur Eggert Ólafsson fædd-ist að Valshamri í Geiradals-hreppi þann 30.1. 1918, eða
fyrir réttum hundrað árum. For-
eldrar hans voru Ólafur Elías Þórð-
arson, bóndi að Valshamri, og k.h.,
Bjarney S. Ólafsdóttir húsfreyja.
Föðurforeldrar Ólafs voru Þórður
Níelsson úr Strandasýslu og k.h.,
Herdís Einarsdóttir húsfreyja, en
móðurforeldrar Ólafs voru Ólafur
Eggertsson, bóndi og hreppstjóri í
Króksfjarðarnesi, og k.h., Þuríður
G. Runólfsdóttir húsfreyja.
Eiginkona Ólafs var Friðrikka
Bjarnadóttir húsfreyja, frá Höfn í
Hornafirði, sem lést 2007, en þau
eignuðust sex börn.
Börn Ólafs og Friðrikku: Bjarni
sölumaður; Ólafur Elías fram-
kvæmdastjóri; Bjarney, hjúkr-
unarfræðingur; Jón Sigurður líf-
fræðingur; Dómhildur Ingibjörg,
hjúkrunarfræðingur og Þóra Sigríð-
ur leikskólakennari.
Systkini Ólafs voru Guðmundur
Benedikt Ólafsson, viðskiptafræð-
ingur og framkvæmdastjóri Fram-
kvæmdasjóðs hjá Byggðastofnun, og
Þuríður Guðrún Ólafsdóttir sem var
húsfreyja á Staðarfelli í Dölum og
síðar í Reykjavík.
Ólafur stundaði nám við Sam-
vinnuskólann 1934-36. Hann starfaði
hjá SÍS í Reykjavík á árunum 1936-
38 og hjá Kaupfélagi Króksfjarðar á
árunum 1938-73. Hann var kaup-
félagsstjóri í Króksfjarðarnesi frá
1943. Ólafur varð síðan fulltrúi hjá
Ríkisendurskoðun í Reykjavík og
starfaði loks hjá Reykjavíkurdeild
Rauða kross Íslands.
Ólafur sat í stjórn SÍS um 12 ára
skeið. Hann var hvatamaður að
stofnun Þörungavinnslunnar á
Reykhólum og sat í stjórn hennar,
var formaður Æðarræktarfélags Ís-
lands, hreppstjóri í Geiradalshreppi
í tvo áratugi, sat í stjórn Flóabátsins
Baldurs og Gests hf. á Patreksfirði.
Hann gegndi auk þess ýmsum öðr-
um trúnaðarstörfum fyrir sveit sína
og samvinnuhreyfinguna.
Ólafur lést 11.4. 1996.
Merkir Íslendingar
Ólafur E.
Ólafsson
95 ára
Ragnheiður Klemensdóttir
90 ára
Helgi Hálfdánarson
85 ára
Bragi Ingason
Svava Sverrisdóttir
80 ára
Bjarni Björnsson
Gréta Hulda Hjartardóttir
Ólafur Haraldsson
Steina Einarsdóttir
75 ára
Bjarni Þórhallsson
Erna Kristín Jónsdóttir
Gréta Viðars Jónsdóttir
Hörður Alfreðsson
Sigríður Hjartar
Þorbjörn Broddason
70 ára
Árni Jóhannesson
Ástríður G. Daníelsdóttir
Eiríkur Briem
Eygló Alexandersdóttir
Hrefna Sigurðardóttir
Jóhanna S. Daníelsdóttir
Magnús Guðjónsson
Sigríður Númadóttir
60 ára
Christina G. Prince
Elías Geir Sævaldsson
Elínborg Hilmarsdóttir
Guðjón Hauksson
Hjörleifur Kjartansson
Ingunn Guðmundsdóttir
Jóna Soffía Þorbjörnsdóttir
Jón Kári Jónsson
Kjartan Hreinsson
Kristinn S.H. Styrmisson
Mekkín Kjartansdóttir
Ómar Ægir Kristjánsson
Witold Andrzej Naporowski
Þóranna Haraldsdóttir
50 ára
Björn Rúnar Agnarsson
Einar Þór Ásgeirsson
Einar Örn Einarsson
Guðmundur H. Erlendsson
Guðrún B. Gunnsteinsdóttir
Harpa Jóhannsdóttir
Hlynur Jóhannsson
Jóna Guðrún Elísdóttir
Margrét Ómarsdóttir
María Jóhanna Hrafnsdóttir
Ólöf Sveinsdóttir
Sigmar Björgvin Árnason
Sigrún Sigurðardóttir
Steingrímur Þorgeirsson
Svala Jóhannsdóttir
Sveinn Vignisson
40 ára
Árdís Björnsdóttir
Dagný Hauksdóttir
Elfa Hrönn Friðriksdóttir
Elísa Björnsdóttir
Elmar Örn Hjaltalín
Henry Trúmann Sverrisson
Páll Sigurgeir Jónasson
30 ára
Árni Þór Árnason
Bergþór Njáll Sigurðsson
Davíð Logi Jónsson
Edmunds Zvirgzdins
Harpa Rós Guðmundsdóttir
Karítas Dan Þórarinsdóttir
Kriselle Lou S. Jónsdóttir
Maciej Kleparski
Natalia Kruczkowska
Paulina Zielinska
Rósa Hauksdóttir
Sara Ólafsdóttir
Sveinmar Rafn Stefánsson
Vala Ósk Gylfadóttir
Valgerður Lilja Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
50 ára Einar Þór er Kópa-
vogsbúi. Hann er sjúkra-
þjálfari að mennt og vinn-
ur á Landakoti.
Maki: Gemma E.
Rodriques, f. 1975, d.
2001, spænskukennari og
yfirflugfreyja.
Foreldrar: Ásgeir Einars-
son, f. 1907, d. 1983,
vaktmaður hjá Málningu,
og Ingigerður Magnús-
dóttir, f. 1919, d. 2014,
húsmóðir og verkakona.
Þau voru bús. í Kópavogi.
Einar Þór
Ásgeirsson
30 ára Valgerður ólst upp
í Mosfellsbæ, býr í Kópa-
vogi, lauk MSc-prófi í
matvælafræði frá HÍ og
starfar að gæðamálum
hjá Innnesi.
Maki: Þórarinn Hauks-
son, f. 1984, lyfjafræð-
ingur.
Dóttir: Andrea Rán, f.
2017.
Foreldrar: Jón Sævar
Jónsson, f. 1947, og Kol-
brún Guðjónsdóttir, f.
1952.
Valgerður Lilja
Jónsdóttir
30 ára Sveinmar ólst upp
á Akureyri, býr þar, lauk
sveinsprófi í rafvirkjun og
er vélstjóri og vinnur nú
við rafvirkjun.
Maki: Benný Rós Björns-
dóttir, f. 1989, leikskóla-
kennari.
Börn: Hólmfríður, f. 2013,
og Björgvin, f. 2017.
Foreldrar: Stefán Sæv-
arsson, stórbóndi á Syðri-
Grund í Höfðahverfi, og
Hólmfríður Sveinmars-
dóttir stuðningsfulltrúi.
Sveinmar Rafn
Stefánsson