Morgunblaðið - 30.01.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 30.01.2018, Síða 17
AFP Viðræður May og Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ráðherrar aðildarríkja Evrópusam- bandsins samþykktu í gær kröfur þess í samningaviðræðum við Bret- land um skilmála nær tveggja ára aðlögunartímabils eftir útgöngu landsins úr sambandinu. Mikill ágreiningur er um skilmálana í ríkis- stjórn Theresu May, forsætisráð- herra Bretlands, einkum um þá kröfu að landið verði bundið af lög- um sem ESB setur á aðlögunar- tímabilinu þótt Bretar verði þá ekki lengur með atkvæðisrétt innan sam- bandsins. Brexitsinnar í þingflokki íhaldsmanna eru andvígir skilmál- unum og segja þá gera Bretland að „lénsríki“ Evrópusambandsins. Evrópumálaráðherrar ESB- ríkjanna samþykktu fyrirmæli til aðalsamningamanns sambandsins, Michels Barnier, um samnings- kröfur þess í viðræðunum um aðlög- unartímabilið. Það á að hefjast þeg- ar Bretland gengur formlega úr Evrópusambandinu 29. mars á næsta ári og ESB-ríkin vilja að tíma- bilinu ljúki 31. desember 2020. May hefur hins vegar talað um að aðlög- unartímabilið geti staðið í tvö ár, eða til mars 2021, og nokkur ríki ESB hafa léð máls á þeim möguleika. Samkvæmt samningskröfunum eiga Bretar að fylgja lögum og reglum ESB á aðlögunartímabilinu eins og þeir ættu aðild að samband- inu, jafnvel lögum sem samþykkt verða eftir útgöngu þeirra í mars á næsta ári. Ennfremur er gert ráð fyrir því að Bretar haldi aðgangi sín- um að innri markaði ESB, haldi áfram að greiða í sjóði sambandsins, viðurkenni reglu ESB um frjálsa för vinnuafls og fallist á að dómstóll Evrópusambandsins hafi lögsögu yf- ir Bretlandi á aðlögunartímabilinu, að sögn fréttaveitunnar AFP. Gert er ráð fyrir að viðræðurnar um aðlögunartímabilið hefjist síðar í vikunni og að þeim ljúki ekki síðar en í mars, til að viðræður um fram- tíðarviðskiptatengsl Bretlands við ESB geti hafist í apríl. Fréttaskýr- endur segja þó að viðræðurnar geti tekið lengri tíma þar sem ágrein- ingsmálin séu flókin og mikið sé í veði. Íhaldsflokkurinn klofinn Mikil óeining er í ríkisstjórn May í Brexit-málunum, m.a. um hvort Bretland eigi að vera áfram í innri markaði og tollabandalagi ESB. Philip Hammond fjármálaráðherra sagði í vikunni sem leið að hann von- aði að „mjög lítil“ breyting yrði á viðskiptatengslum Bretlands og ESB eftir Brexit og andstæðingar ESB-aðildar í Íhaldsflokknum reiddust þeim ummælum. Jacob Rees-Mogg, sem fer fyrir rúmlega 50 ESB-andstæðingum í þingflokki íhaldsmanna, segir að ef stjórnin fallist á skilmála ESB á aðlögunartímabilinu verði Bretland að „lénsríki“ Evrópusambandsins. Báðar fylkingarnar í Íhalds- flokknum leggja nú fast að May að útskýra betur fyrir almenningi hvers konar Brexit-samning hún vilji í viðræðunum við ESB. Vaxandi óánægja er meðal ESB-andstæðinga með framgöngu forsætisráðherrans í Brexitmálunum og hermt er að for- ystumenn í flokknum óttist uppreisn meðal þingmanna taki May ekki á sig rögg. „Hún er berskjaldaðri en nokkru sinni fyrr. Hún verður að taka ákvörðun,“ hefur The Guardian eftir einum þingmanna Íhaldsflokks- ins. Að sögn blaðsins fylktu Brexit- sinnarnir í flokknum sér um May eftir þingkosningarnar í fyrra, þrátt fyrir fylgistap flokksins, vegna þess að hún hafði lofað að Bretland gengi úr innri markaðnum og tollabanda- laginu. Þeir óttuðust að ef efnt yrði til leiðtogakjörs í flokknum gæti það orðið til þess að May biði ósigur fyrir einhverjum sem félli frá þessu lof- orði. Síðustu vikurnar hafa Brexit- sinnarnir þó haft vaxandi áhyggjur af því að ríkisstjórnin gefi of mikið eftir í viðræðunum um Brexit. Ther- esa Villiers, ein Brexitsinnanna, sak- aði stjórn May um að hafa „þynnt út Brexit“ á síðustu mánuðum í grein sem hún skrifaði í Sunday Tele- graph. „Ef ríkisstjórnin heldur áfram á þessari braut er raunveru- leg hætta á því að hún fallist á samn- ing sem yrði til þess að Bretland yrði í ESB að öllu leyti nema að nafninu til, samning sem samrýmdist ekki niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um Brexit.“ Segja Bretland verða „lénsríki“  Mikil andstaða í Íhaldsflokknum í Bretlandi við skilmála ESB fyrir aðlögunartímabili eftir Brexit  Vaxandi óánægja meðal Brexitsinna í flokknum með framgöngu Theresu May forsætisráðherra Helstu samningamennirnir Samningaviðræður um Brexit Bretland gengur úr ESB Bretar virkjuðu 50. greinina í Lissabon- sáttmálanum um úrsögn úr ESB 19. júní 14.-15. des. Október ESB og Bretar hófu viðræður um Brexit Samkomulag náðist í aðalatriðum um: Síðustu forvöð að ganga frá drögum að Brexit-samningi sem hægt er að leggja fyrir þing allra ESB-ríkjanna 29. janúar ESB lagði fram kröfur sínar í viðræðum um aðlögunartíma eftir útgöngu Breta Mars Viðræður hefjast um viðskipta- tengslin 29. mars Hugsanleg lok aðlögunar- tímabilsins Fyrirhugað aðlögunartímabil Mars 29. mars 2017 2018 2019 2020 2021 landamæri Írlands og N-Írlands „skilnaðargreiðslur“ Breta réttindi ESB-borgara í Bretlandi að hafa aðgang að markaði ESB að viðurkenna reglu ESB um frjálsa för vinnuafls að greiða í sjóði ESB Michel Barnier (ESB) Theresa May, forsætisráðherra Bretlands David Davis (Bretl.) Bretland heldur áfram: Merkel gerði grín að May » Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gerði grín að framgöngu Theresu May, for- sætisráðherra Bretlands, þeg- ar hún lýsti samninga- viðræðum við hana á bak við tjöldin fyrir blaðamönnum, að sögn breska dagblaðsins The Daily Telegraph í gær. » Angela Merkel sagði að þær Theresa May færu alltaf í hringi þegar þær ræddu út- göngu Bretlands úr ESB vegna þess að May segði aldrei hvað hún vildi og svaraði alltaf: „Gerðu mér tilboð“. FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018 Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu. Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur. Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR Stjórnvöld í Kína hafa gefið út hvít- bók þar sem þau útlista áform sín um „heimskautasilkiveg“ á norður- slóðum, að sögn The Financial Tim- es. Kínverjar hvetja þar til aukins alþjóðlegs samstarfs um uppbygg- ingu innviða og siglingaleiða á norðurslóðum og segjast vilja gegna mikilvægu hlutverki í þeirri uppbyggingu. Í hvítbókinni segir að vegna hlýnunar jarðar sé „líklegt að sigl- ingaleiðir á norðurslóðum verði mikilvægar í flutningum og al- þjóðaviðskiptum“ þegar fram líða stundir. Kínverjar vilji gera ráð- stafanir til að vernda umhverfið á norðurslóðum og styðja rannsóknir vísindamanna á heimskautasvæð- unum. Að sögn The Financial Times getur það tekið flutningaskip 48 daga að sigla frá norðurhluta Kína til Rotterdam með því að fara um Súesskurðinn. Í fyrra hafi það tekið rússneskt tankskip aðeins 19 daga að sigla norðurleiðina frá Noregi til Suður-Kóreu án fylgdar ísbrjóta. Yong Sheng varð fyrsta kín- verska flutningaskipið til að sigla Norðausturleiðina svonefndu árið 2013 og sex kínversk skip sigldu hana síðasta sumar. Kína er á meðal þrettán landa sem eru með áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu. NORÐURSLÓÐIR Kínverjar kynna áform um „heim- skautasilkiveg“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.