Morgunblaðið - 30.01.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Við bjóðum gott úrval af
reimum í flesta snjósleða,
fjórhjól og bíla.
Ekki bara jeppar
Reimar í bíla,
vélsleða og fjórhjól
Ólafur Egill Egilsson hefur verið ráðinn til að leik-
stýra verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá
Leikfélagi Akureyrar. Ólafur lék þjófaforingjann
Fagin í uppfærslu leikfélagsins á Óliver! skömmu
eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarnámi árið
2002 og er haft eftir honum í fréttatilkynningu að
hann sé spenntur fyrir því að snúa aftur í Sam-
komuhúsið á Akureyri. Hann hlakki mikið til að
koma „þessu brjálaða og bráðskemmtilega verki“
á fjalirnar í samstarfi við leikhópinn og allt það
góða fólk sem starfi hjá leikfélaginu.
Ólafur leikstýrir Sjeikspír
Ólafur Egill Egilsson
Hvað eigum við að kallamannlífsvinkil Lóu Hlín-ar Hjálmtýsdóttur sembirtist í teikningum
hennar í blöðum, vefjum og bókum,
og er nú kominn á svið? Fyrir utan
„fyndinn“ og „nauðsynlegan“ auð-
vitað. Mér dettur í hug orðin
„martraðarraunsæi“ og „hvunn-
dagsgróteska“ yfir þessar grát-
hlægilegu myndir af fólki – aðallega
konum – að mistakast sú list að hafa
betur gagnvart áreiti og kröfum
umhverfisins. Að reyna án árangurs
að skapa sér einhverskonar vett-
vang eða griðastað til að líða sæmi-
lega í þessum tryllta sirkus sem
samtíminn er. Langoftast hittir Lóa
í mark, er morðfyndin og sannsögul
um það ástand sem hún lýsir. Auð-
vitað er freistandi að gefa svona
efnivið frekara líf á fjölum leikhúss-
ins.
Vandasamt er það samt. Það er
bæði kostur og galli að í listheimi
Lóu, rannsóknarstofunni Lóabora-
toríum, er engin framvinda, engir
fastagestir með nafn og kennitölu,
hvað þá forsögu. Límið felst í
afstöðu höfundar, persónuein-
kennum sem ganga manna –
aðallega kvenna – á milli. Hendur
leikskáldsins Lóu eru því óbundnar
hvað þetta varðar, en um leið færra
að halda sér í. Eins þarf að ákveða
að hve miklu leyti handritið á að
taka mark á kröfum og hefðum leik-
hússins. Leikhúsgestir nútímans
eru orðnir öllu vanir hvað þetta
snertir og að sumu leyti gengst Lóa
meira inn á leikreglurnar en bráð-
nauðsynlegt getur talist.
Tvær íbúðir í Reykjavík. Eða eig-
inlega lítil einbýlishús, ef skemmti-
leg umgjörð Sigríðar Sunnu Reynis-
dóttur er tekin á raunsæisorðinu. Í
öðru þeirra býr hinn rauðvínslegni
bókaútgefandi Stella, og þegar
verkið hefst er Anna, stillingarljósið
dóttir hennar, að flytja inn eftir að
hafa heykst á lokahnykknum í mast-
ersnáminu sínu. Handan götunnar
(girðingarinnar?) býr geðhvarfa-
sjúka YouTube-stjarnan Inga í húsi
foreldra þeirra Brynju, hvataferða-
fararstjórans sem leitar heim eftir
ástarlífsskipbrot.
Þarna er komin hæfileg rann-
sóknarstofa fyrir Lóu og upphefst
mikið, beitt og á köflum alveg
óborganlegt grín þar sem útlit,
hagsmunir, lífsviðhorf, matar-
smekkur, stíll, farsæld og árangur í
hamingjukapphlaupinu mynda ein-
hverskonar sjöþraut sem konurnar
fjórar keppa í af mismiklu harðfylgi
og ójöfnum árangri, öllum þó frekar
dapurlegum og eftir því hlægileg-
um. Orkan í handritinu tekur dálitl-
ar dýfur þegar reynt er að búa til
framvindu, tengja saman atriði,
gangast undir formkröfur leikrit-
unar. Reyndar er ruglingurinn með
pizzusendingarnar fjári skemmti-
legur, eins einfaldur og hann þó er,
ekki síst vegna tilhugsunarinnar um
að einhver panti sér Hawaii-pizzu
með engum ananas. Stórkostlega
sér-Lóu-leg hugmynd og synd að
forseti lýðveldisins var ekki á þess-
ari frumsýningu til að verða vitni að
þessu. Önnur element sem eiga að
skapa framvinduspennu, svo sem
æskuminningar og áhugi Brynju á
að koma húsi þeirra systra í verð,
verður meira til trafala. Annars er
best og skemmtilegast þegar repl-
ikkutennisinn fær að ganga ótrufl-
aður og nokkurn veginn stefnulaust.
Sokkabandskonur njóta sín vel í
þessum efnivið og Kolfinna Nikulás-
dóttir stýrir þeim af skilningi og
smekkvísi. Stella, þessi drafandi og
uppgerðarsjálfsörugga subba, varð
ljóslifandi og morðfyndin hjá Arn-
dísi Hrönn Egilsdóttur. Brynja er
mögulega sú „venjulegasta“ í gall-
eríinu, en þá kemur sér vel hvað
Maríu Hebu Þorkelsdóttur lætur
vel að lýsa óöryggi. Það er vanda-
samt að halda uppi orkunni í senum
þar sem persóna mótleikarans er
nánast óstarfhæf af þunglyndi, en
það tekst Maríu Hebu og þegar
Elma Lísa Gunnarsdóttir skríður
loksins undan sænginni eins og
pallíettufiðrildi og svífur á djammið
á vængjum maníunnar er það líka
listavel gert og fjári vel skrifað.
Þær þrjár hafa lengi verið nokkuð
áberandi í sýningum í leikhópageir-
anum og það nýtist þeim í týpuleik-
húsi eins og hér er á ferð. Jóhanna
Friðrika Sæmundsdóttir er nær því
að vera óskrifað blað og það er
kannski meðal annars þess vegna
sem það er í persónu Önnu sem mér
fannst ég fá hreinustu myndina af
hinum teiknaða heimi Lóu. Mér
þótti Jóhanna Friðrika til dæmis
hreyfa sig eins og ég ímynda mér að
þessar persónur myndu gera. Svona
myndu þær ganga, einmitt svona
myndu þær spritta á sér hendurnar,
svona væri að sjá þær hekla. Og
auðvitað myndu þær hekla. Fínlega
unnin persóna og viss furða að hún
skili sér til áhorfenda í gegnum
brussuganginn allt í kring. Ekki
fylgir sögunni í leikskrá hvað dreng-
urinn heitir sem færir þeim pizz-
urnar en hann skilaði sínu óaðfinn-
anlega. Nema pizzunum reyndar.
Þó umbúnaður sé hvorki ríkuleg-
ur né fágaður þá er hann áhrifarík-
ur. Leikmyndin þénug og sannfær-
andi og mikil prýði, ef það er rétta
orðið, að draslinu hjá þeim systrum
Ingu og Brynju. Búningar Sigríðar
Sunnu meira og minna nákvæmlega
jafn ósmekklegir og þörf er á. Víd-
eóin sniðug og „rétt“ og tónlistin vel
valin og unnin hjá Árna Rúnari
Hlöðverssyni. Gaman að dansútgáf-
unni af hringitóninum og dans-
uppbrotin öll skemmtileg, en Ásrún
Magnúsdóttir á heiðurinn af sviðs-
hreyfingum.
Litla svið Borgarleikhússins hef-
ur verið mikilvægur vettvangur fyr-
ir rannsóknir á þjóðarsálarástand-
inu í vetur. Kartöfluætur Tyrfings
Tyrfingssonar og nú Lóaboratóríum
Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur eru
tvær vel heppnaðar atlögur að því
að skoða persónur á jaðrinum tak-
ast á við samtímann. Í báðum er
boðið upp á frumlega nálgun og
húmor af súrara og svartara taginu.
Lóaboratóríum hefði grætt á meira
sjálfsöryggi gagnvart forminu, að
efniviðnum sjálfum hefði verið
treyst betur. Eða þá ef stigin hefðu
verið fleiri og markvissari skref í átt
að rétt formuðu leikriti. Eða jafnvel
söngleik, ég heyri hann alveg fyrir
mér. Engu að síður stendur það sem
Sokkabandið ber á borð algerlega
fyrir sínu og mun vekja hlátur og
skapa hroll hjá öllum þeim sem voga
sér inn á tilraunastofuna.
Við lifandi komin
Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson
Borgarleikhúsið
Lóaboratóríum bbbbn
Eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Leik-
stjórn: Kolfinna Nikulásdóttir. Leikmynd
og búningar: Sigríður Sunna Reynis-
dóttir. Lýsing: Valdimar Jóhannsson.
Sviðshreyfingar: Ásrún Magnúsdóttir.
Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson. Leik-
arar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma
Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Friðrikka
Sæmundsdóttir og María Heba Þorkels-
dóttir. Sokkabandið frumsýndi á Litla
sviði Borgarleikhússins 26. janúar
2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST Hvunndagsgróteska „Mér dettur í hug
orðin „martraðarraunsæi“ og „hvunn-
dagsgróteska“ yfir þessar gráthlægilegu
myndir af fólki – aðallega konum – að mis-
takast sú list að hafa betur gagnvart áreiti
og kröfum umhverfisins,“ segir í rýni.